Skátaforinginn - 01.02.1991, Blaðsíða 27
Skáta-
starf á
Akur-
%
eyri
Nyliði segir fra:
Skemmitlegt,
lærdómsríkt
og góður
félagsskapur
„...öðlast þátttaiuMict*
urnlr þekklngu sem
hver og elr»n gæti
þurft að nota hvenser
sem er”.
Þegar starfsemi nýliðaflokks
HSSA hófst í haust bjrjaði ég að
starfa í honum. Að bald þeirrar
ákvörðunar voru margar ástaeð-
ur: Ég var ekki alls ókunnugur
starfi sveitarinnar þegar ég byrj-
aði, ég hef starfað með skátun-
um í nokkur ár og því kynnst
starfi HSSA lítillega. Þar hef ég
meðal annars verið notaður sem
sjúklingur á æfingum. Ég held
að það sé ekki síst vegna þessara
kynna minna af starfinu sem ég
byrjaði. Einhvern veginn var
þetta eðlileg þróun fyrir mig, rétt
eins og aö fara í níunda bekk á
eftir áttunda bekk.
Starf nýliðaflokksins hefúr í vet-
ur aðallega byggst á vikulegum
kvöldnámskeiðum. Þar hefur
verið farið í útbúnað, rötun, fjar-
skipti, Unuleit, böruburð og
fleira. Einnig er búið að fara f
eina útilegu þar sem ýmis atriði
voru aefð. Údlegan tók einn og
hálfan sólarhring og þurfti m.a.
aö finna slasaöan mann og koma
honum í hús kl. fjögur um nótt-
ina.
í desembermánuði fer nær allur
tími nýliða, eins og allra annarra
meðlima sveitarinnar, ívinnu við
flugeldasölu og undirbúning
hennar. Eftir áramót eru fleiri
námskeið, þar á meðal helgar-
námskeið í skyndihjálp og útih'fl.
Eftir að hafa gengið í gegnum
nýliöaþjálfunina er maður mun
betur undir það búinn að að-
stoða þcgar á reynir.
Þetta er skemmtilegt og lær-
dómsríkt starf og félagsskapur-
inn er góður. Eg held að sem
flestir ættu að prófa þetta, því þó
þeir komi ekld til með að starfa
lengi öötast þátttakendurnir
þekldngu sem hver og einn gætí
þurft að nota hvenær sem er.
Eitt er víst að ég á ekki eftír að sjá
eftir þeim tíma sem ég hef varið
í riýliðastarfið. Égvonast bara tíl
að sjá sem flesta nýliða á næsta
ári.
Högni Hallgrímsson
Hjálparsveit
skáta Akureyri
20 ára
„Þátttaka í vfrku
atarfl göðrar hjálpar*
svaltar ®r atnstakl-
iagmsm stórkosticigt
tmtMmri tH náms og
þ|áifunar”.
Þessi orð voru rituð í fúndar-
gerðarbók þann 17. janúar
1971 þegar ungir og óþolin-
móðir menn stofnuðu róver-
og hjálparsveit skáta, sem síö-
ar var breytt f Hjálparsveit
skáta á Akureyri.
Á þessum 20 ára ferli sveitar-
innar hcfur margt breyst,
bæöi hvað varðar tækja- og
húsakost hennar. í fyrstu
fundargerð sveitarinnar segir
að hér sé verið að stofna „létt-
vopnaða” hraðleitarsveit sem
lítíð ættí að eiga af búnaöi
sjálf, heldur skyldi hver ein-
staklingur eiga svo futlkom-
inn ferðabúnað sem kostur
væri. Sveitín ættí að starfa f
smáhópum sem stunduöu
haröa þjálfún.
Útbúnaöur sveitarinnar hefur
auldst jafnt og þétt miöaö viö
kröfúr samfélagsins. Einnig
hafa kröfúr um þjálfún og við-
bragðsflýti sveitarinnar auk-
ist. Markmiðiðerþóalltafhið
sama, að vera ávallt viðbúin
að bregðast við hinum ýmsu
aðstæðum er kunna að skap-
ast.
Nokkur ár eru síðan ákvcðið
var að sveitín skyldi starfa f
flokkum tíl þess að félagar
gætu betur sérhæft sig á hin-
um ólfku sviðum. Skyndi-
hjálparflokkur með það að
markmiði að sjá um þjálfun
annarra félaga f skyndihjálp
og afla nýrrar þelddngar í
þeim efnum. Urih'fsflokkur
sem sér um útbúnaðar- og
ferðamennskunámskeið.
Innan þess flokks eru líka
starfandi þeir sem sérhæfa sig
í björgun úr klettum og bratt-
lendi við erfíðar aöstæður.
Véiadeild sem sér um allt er
snýr að farartækjum sveitar-
innar. Stjómstöðvarflokkur
sem sér um uppbyggingu
stjómstöðvar og fylgist með
nýjungum í þeim efiium. Þá
hefúr verið starfandi nýliða-
flokkur síðan 1979 og sér
hann um að þjálfa þá félaga
sem æskja inngöngu f sveit-
ina. Til að svo getí orðið þarf
viökomandi að hafa starfað í
nýliöiðaflokki og lokið við
ákveðin grunnnámskeið sem
snúast um það að veita sem
víðtækasta grunnþekkingu á
sviði björgunar. Þjálfun þessi
tekur hið minnsta 2 ár og aö
þvf loknu, með samþykki
stjómar, undirrita menn eið-
staf svcitarinnar, þar sem
menn eru minntir á þær
skytdur sem hvíla á þeim sem
fullgildir félagar í hjálpar-
sveit.
HSSA er aðili að Landssam-
bandi hjálparsveita skáta,
LHS, og hefúr verið frá stofh-
unþess. Því er ætlað aö vinna
aö sameiginlegum málum
hjálparsveitanna og vcra
nauðsynlegur máisvari þeirra
gagnvart opinberum aðilum.
Fyrir um ári síðan var gert átak
f þvt að flokka sveitír innan
LHS svo betur mættí meta
getu hverrar sveitar fyrir sig.
Það er án efa hvatning fyrir
sveitína að reyna að bæta sig
tíl að komast sem efst í þessari
flokkun.
Félagar HSSA er um 50 en
mun fleiri hafa tekið þátt í
starfinu frá stofnun hennar.
Þaö er alltaf alvara á ferðum
þegar hjálparsveit er kölluð
tíl björgunarstarfa. Þá em
félagar sveitarinnar tílbúnir
aðverða aðhvers konarliði tíl
hjálpar almenningi, oft við
hin erfiðustu skilyrði, fjarri
byggð. Þar reynir ekld hvað
sfst á andlega hhð björgunar-
mannsins, því bak við hina
hörðu skel er jú mannleg sái.
Með skátakveðju,
Magnús V. Amarsson
sveitarforingi
27 - Skátaforinginn