Bændablaðið - 01.04.1989, Page 8
AUKABLAÐ MEÐ 2. TBL 3. ÁRG. 1989 BÆNDA- 8
BLAÐIÐ
BYLTING í ÍSLENSKUM HEYSKAP? ER RÚLLUBINDINGIN BYLTING í ÍSLENSKU
70 hestafla dráttarvél með ámoksturstækjum
veröur stofnkostnaður viö þrjú áðurnefnd
tæki ekki undir 1100 þúsund krónum.(Sjá
nánar um verð einstakra tegunda f sérstakri
samantekt annarsstaðar f blaðinu.)
Og það veröur aö líta á þessa upphæö
sem lágmarksstofnkostnaö þar sem gera
verður ráð fyrir aö dráttarvélarkaup verði
nauösynleg, einkum á þeim búum þar sem
notast hefur verið við minni dráttarvélar. Þá
eru breytingar sem nauösynlegar kunna að
vera á útihúsum og búnaður til fóðrunar ekki
talin með en slíkar breytingar eru mjög ein-
staklingsbundnar og fara eftir þeim bygging-
um og aðstöðu sem er fyrir hendi á hverjum
sveitabæ. Meö hliösjón af því má gera ráð
fyrir að heildarkostnaður bónda sem skiptir
yfir f rúllubindingu og hefur byggt á jörðinni
fyrir cinum til tveimur áratugum geti hæglega
oröiö tvær milljónir króna. Viö þetta verður
að bæta aö eldri verkfæri svo sem hey-
hleðsluvagnar, heydreifikerfl og bindivélar
fyrir þurrheysbagga falla úr notkun. Ef rúllu-
bindiaöferðin ryöur sér hratt til rúms má gera
ráð fyrir aö slík tæki veröi meö öllu verðlaus
þótt þau séu f góðu ásigkomulagi og gætu
hæglega notast mörg sumur í viðbót. Þá er ó-
talinn sá kostnaður sem veröur af kaupum á
polythene filmu. Verð á henni er háö olíu-
veröi á hverjum tfma og getur verið sveiflu-
kennt. Nú er verð á hverri 20,9 kg. pakkningu
af filmu um kr. 4400. Þaö þarf 0,8 kg. að
meöaltali til aö pakka einni rúllu inn. Pakkn-
ing sem kostar kr. 4400. dugar þvf til aö
pakka 25 rúllum. Efni til að pakka hverri
rúllu inn kostar þvf 176 kr. Ef miðað er við
heyskap á meöal búi, 20 til 25 nautgripi og
um 150 Qár veröur kostnaöur við pökkun á
bilinu 80 til 90 þúsund krónur á sumri.
Heyhleðsluvagn, bindivél og
rúllubindivél á sama bænum!
Nokkrir bændur hafa skipt um heyverk-
unaraðferð í einu lagi. Þeir eru þó fleiri sem
hafa fengið sér rúllubindivél, nota hana að
hiuta en heyja einnig með öörum aöferðum.
"Ég ætla að auka rúllubindinginn næsta sum-
ar," sagöi Ari Björn Árnason á Finnastöðum.
Þorsteinn Gunnarsson á Vatnsskaröshólum
og Eiríkur Sigfússon á Sflastöðum hafa einnig
rúllubundið hluta af sínum heyskap. Leifur
Þórarinsson í Keldudal notar þrjár heyverk-
unaraðferöir. "Ég bind f þurrheysbagga fyrir
sauöféð. Ég er með 14 ára gamla heybindivél
sem væri einskis viröi að selja og meö því aö
binda f þurrheysbagga er ég nánast búinn að
gefa fénu fyrir veturinn." Leifur flytur einnig
laust hey f hlöðu og gefur nautgripum og
hrossum það ásamt rúlluböggum. Þorsteinn
Gunnarsson á Vatnsskaröshólum taldi góðan
kost aö hiröa f súgþurrkun og sagöist fyrst og
fremst hafa skipt frá votheyinu yfir í rúllu-
bagga. "Þetta er alveg átakalaus heyskapur,"
sagði Þorsteinn, sem notar meöal annars 100
hestafla dráttarvél við heyskapinn. Hann
kvaðst hiröa á öðrum degi frá slætti en sam-
dægurs ef veöurfar væri ótryggt. Hann sagöi
aö sér fyndist rúllubindingin hafa algjöra
yfirburöi þegar heyskapartíð er stirfln.
Rúllubindinguna hefur boriö að með mis-
munandi hætti hjá bændum. Margir viröast
hafa farið af staö með þetta sem hluta af hey-
skapnum. Miðaö viö þann kostnaö sem fyrir-
sjáanlega er samfara þvf að hefja rúllubind-
ingu er eölilegt að álykta að hagkvæmast sé
aö breyta alveg um og nota aöeins eina aö-
ferð. Mismunandi aðstæður hvers bónda geta
þó valdiö því aö sumir telji aðrar leiðir heppi-
legri. Erfitt er aö leggja dóm á þaö fyrr en
meiri reynsla er fengin af þessum heyskap.
Vandamál á vetrum
Eins og getiö er um aö framan eru rúllu-
baggar 400 til 500 kg. að þyngd og geta farið í
um 800 kg. ef um grænfóður er að ræöa. Það
gefur auga leið að þeir verða lftiö hreyfðir
meö handafli einu saman. Vélabúnaður er
nauðsynlegur til að annast fóörun þegar hey
er geymt á þennan hátt. Húsakynni á sveita-
bæjum henta misjafnlega fyrir tækjabúnaöi til
að flytja rúllubagga af geymslustaö á hlöðu-
gólfi í fóðurganga. Aö öðru jöfnu er auöveld-
ara að laga nýrri byggingar og koma nauðsyn-
legum búnaöi þar fyrir. Yngri byggingar cru
oft vélgengar, hægt að nota lyftara, fóður-
vagna og talíur. Eldri hlöður eru jafnvel nið-
urgrafnar, gólfflötur lftill og vegghæð mikil.
Einnig er algengt aö þröngar dyr séu á milli
hlööu og gripahúsa auk þess sem fóðurgang-
ar voru oft hafðir mjóir f eldri byggingum. Á
mörgum sveitabæjum eru því erfiöar aðstæð-
ur til að geyma rúllubagga og flytja þá f gripa-
hús þegar þeirra er þörf til fóðrunar.
Bændur hafa reynt að leysa þessi vanda-
mál og sumir hafa gripiö til þess ráös aö
geyma rúllurnar úti. Talið er heppilegt aö
raða rúllunum f þrjár raöir á hæö og þurfa
þær því mikinn gólfflöt en litla hæö. Það gcf-
ur auga leið aö ef byggja þarf yfir rúllubagg-
ana, jafnframt þvf aö kaupa öll tæki veröur
fjárfesting of mikil til aö meöalbú geti staðiö
undir henni. "Það er algjört skilyröi að geta
komiö rúllunni inn áöur en hún er tekin f
sundur ef heyiö er geymt úti," segir Helgi
Bergþórsson f Eystra Súlunesi. Helgi notar
flatgryfju, sem hann aflagöi þegar hann fór að
rúllubinda, til að geyma rúllubaggana. Hann
lftur á þaö sem bráðabirgðalausn og telur
nauðsynlegt fyrir sig aö byggja skemmu.
Leifur Þórarinsson f Keldudal segist nota
dráttarvél með ámoksturstækjum til aö flytja
baggana en hann geymir þá í hlöðu sem ekki
er áföst þeim gripahúsum sem heyið er gefiö
f. Leifur segir að menn veröi að gera sér fulla
grein fyrir þvf hvernig þeir ætli að geyma
rúllubundið hey og nálgast það yfir veturinn
áður en þcir byrja aö binda það. Hann sagði
að rúllubinding hafi oröiö aö æöi í Skagafiröi
á sföastliðnu sumri og eftirköstin væru sum-
staöar slæm. Rúllur lægju úti, sumstaðar
undir snjó og bændur ættu f erfiöleikum meö
að nálgast heyið.
Erlendur Eysteinsson á Stóru Giljá sagö-
ist vera heppinn aö þvf leyti aö útihús hjá sér
hentuöu mjög vel fyrir þessa aöferð. Hægt
væri aö aka um hlöðuna og f fjárhúsum væru
breiðir gangar sem auövelt væri aö koma
heyinu um. Ari Björn Árnason á Finnastöð-
um kvaöst hafa geymt rúllubundna heyiö úti í
vetur. Það hefði tekist mjög vel og engin af-
föll orðiö. Hann taldi þó nauðsynlegt að
bændur heföu einhver skýli til að geyma það f
en gat þess aö þetta yrði ekki gleypt á einu
ári. Þaö yröi aö dreifa kostnaðinum við að
taka þessa hcyskaparaðferö upp á lengri tfma.
Eirfkur Sigfússon á Sflastööum sagöist
hafa geymt rúllurnar í pokum og nota lyftara
til að færa þær á veturna. Hann taldi aö
pokarnir hefðu fælt menn frá því að rúllu-
binda en þegar fariö væri aö pakka þeim inn í
filmu myndi viðhorf manna breytast.
Ódýrar lausnir
Þeir bændur sem rætt var viö hafa farið
nokkuö mismunandi leiöir viö að geyma
rúllubagga og fóöra úr þeim. Þær aðferðir
hafa aö mestu miðast viö byggingar og aö-
stæður á hverjum staö. Þaö kom fram f máli
þeirra að ákveðinnar fyrirhyggju yröi að gæta,
menn yrðu aö hugsa dæmiö til enda og gera
sér fulla grein fyrir því hvernig þcir ætluðu að
gefa heyiö áöur en þeir fjárfestu í dýrum bún-
aöi. Nokkuö er um aö bændur hafi fengið ná-
granna sína, sem eiga rúllubindivélar, til aö
binda eitthvert magn af heyi fyrir sig. Á þann
hátt gefst mönnum kostur á að prufa sig á-
fram meö fóðrúnina og finna út hvað þeir
þurfi gera til að geta notfært sér rúllubagga á
auöveldan hátt áöur en þeir taka ákvöröun
um miklar fjárfestingar.
Fullyrða má að verktakastarsemi af því
tagi eigi ekki aðeins fullan rétt á sér, heldur sé
hún hentug þegar bændur vilja aöeins nota
rúllubindiaðferöina viö lftinn hluta af sínum
heyskap. Félagseign f vélum getur auöveld-
lega oröiö aö vandamáli. Fleiri en einn telja
sig þurfa aö nota tækin á sama tíma og einnig
geta deilur spunnist út af viðhaldi. Menn
verða ekki sammála um hver hafi skemmt