Börn og bækur - 01.04.1987, Blaðsíða 3

Börn og bækur - 01.04.1987, Blaðsíða 3
TIL LESENDA Að þessu sinni er bryddað upp á þeirri nýjung að helga þetta hefti þeim sem hafa bæði samið og myndskreytt barnabækur. Er það mjög ánægjulegt að sjá að nokkrir af þeim lista- mönnum okkar sem hafa helgað sig myndlist hafa einnig viljað miðla börnum af list sinni . í þessu hefti eru alls 1,5 listamenn sem allir eiga það sameiginlegt að hafa samið og mynd- skreytt eina eða fleiri bækur ætlaðar börnum. Eylgir stutt æviágrip, listi yfir barnabækur viðkomandi listamanns, og sýnishorn af mynd- efninu. Þótt aðeins sé um að ræða svart-hvít afrit og margir listamennirnir hafa mynd- skreytt í lit, er það von okkar sem að þessu stöndum að sýnishornin gefi til kynna þá fjölbreytni sem ríkt hefur í myndskreytingum. Er það von þeirra sem að samtökum þessum standa aðþetta verði aðeins fyrsta skrefið á þeirri braut að kynna myndlistarmenn sem hafa skreytt barnabækur og munum við síðar leitast við að kynna þá sem hafa myndskreytt barna- bækur, án þess að vera höfundar af textanum en þeir eru að sönnu miklu fleiri. Enn er erfitt um vik að hafa yfirsýn yfir alla barnabókaútgáfu á íslandi frá upphafi, og er því ljóst að einhverjir hafa ef til vill orðið útundan í þessari umfjöllun. Rit- nefnd og stjórn IBBY tæki því með þökkum að fá ábendingar um fleiri íslenska aðila hafa samið og myndskreytt bækur fyrir börn. Sigrún Klara Hannesdóttir formaðu r

x

Börn og bækur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og bækur
https://timarit.is/publication/921

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.