Börn og bækur - 01.04.1987, Blaðsíða 20

Börn og bækur - 01.04.1987, Blaðsíða 20
SIGRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR Sigrún Guðjónsdóttir er fædd 15.11. 1926 í Reykjavík. Hún er nú búsett í Hafnarfirði. Sigrún lauk myndlistarkennaraprófi frá Myndlista - og handíðaskóla íslands og stundaði framhaldsnám við Listaakademíuna í Kaupmannahöfn. Þegar heim kom setti hún á stofn leirverkstæði ásamt manni sínum Gesti Þorgrímssyni, þar sem þau unnu þekkta list- muni, Laugarnesleir. Þau hjón hafa unnið mikið saman að leirlist og hannað m.a. stórar skreytingar bæði utan húss og innan og haldið sýningar. Sigrún hefur kennt myndlist á flestum skólastigum, nú við keramikdeild Myndlistar- og handiðaskólans. Einnig hefur hún fengist við ýmis konar listsköpun, hönnun og myndskreytingar m.a. fyrir Bing & Gröndal og Uilleroy og Boch, tekið þátt í fjölmörgum sýningum bæði hér og erlendis og haldið einkasýningar. Sigrún hefur myndskreytt fjölda bóka. Sú fyrsta var bók Gests Þorgrímssonar, Maður lifandi, útg. 1960 og síðar margar bækur móður sinnar Ragnheiðar Jónsdóttur, m.a. Kötlubækurnar og Atla og Unu. Ein bók hefur komið út eftir Sigrúnu, þ.e. myndabókin: Rauði fiskurinn / Sigrún Guðjónsdóttir. - Rv. : Barnabókaútg. Fagur fiskur í sjó, 1972.

x

Börn og bækur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og bækur
https://timarit.is/publication/921

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.