Skátapósturinn - 01.04.1938, Blaðsíða 5

Skátapósturinn - 01.04.1938, Blaðsíða 5
Brown tók eftir, að manninum veitt- ist erfitt að halda hinum kurteislega hreim í röddinni. Auk þess sá hann að það voru járngrindur fyrir sumum gluggunum. Fullvissaður um að frúin og stúlkan væru þarna lokaðar inni, fór hann til borgarinnar. Nú var um að gera, að frelsa þær. Ef til vill yrði hann neyddur til að fara til lögregl- unnar. Þó enginn mundi trúa orði af því, sem hann segði, þá var hann þess fullviss, að enginn myndi leita að frú Fulton. En — hann gat fengið póstþjóninn til að fara til lögreglunnar. Þó enginn mundi trúa orði af því, sem hann segði, þá var hann þess fullviss, að enginn myndi leita að frú Fulton. En — hann gat fengið póstþjóninn til að fara til Hulton með bréf frá hon- um, Brown, til frú Fulton. Þegar Brown hafði beðið í 3 klukkustundir, eftir að póstþjónninn kæmi aftur, fór hann á lögreglustöðina. ,,Hefir ykkur nokkuð verið tilkynnt, að kona hafi týnzt?“ ,,Já“, sagði lögregluþjónninn, ,,okk- ur hefir verið tilkynnt, að frú Fulton hafi horfið með bíl og öllu saman. Hún er rík ekkja eins af stærstu útgerðar- mönnum okkar. Þannig er það nú — það á að neyða hana til þess að greiða lausnargjald. Hugmyndin með bréfið, sem þeir sendu til Hilton er góð, en kannske dálítið áhættusöm — bæði fyrir frú Fulton og póstþjóninn. Ég held að við megum engan tíma missa“. Litlu seinna þaut bíll, með fjórum lögregluþjónum á mikilli ferð út að Hilton. James Brown var glaður — hér var æfintýrið, sem hann hafði beðið eftir öll sín ár. Þegar þeir komu þangað, stóð grár Daimler og sjúkrabifreið fyrir fram- an húsið. Tveir menn komu út úr hús- inu með börur. „Stöðvið þá!“ hrópaði James Brown og stökk út. ,,Eruð þið brjálaðir? “ hrópaði læknirinn, „ætlið þið að ónáða dauð- veikan mann. En þegar hann sá skammbyssurnar, í hinum rólegu höndum lögregluþjón- anna, þagnaði hann og rétti upp báð- ar hendurnar. James Brown gekk að börunum og lyfti upp sænginni. Þar lá nábleik, fullklædd kona. Undarleg lykt angaði frá börunum. „Kloroform“, sagði lögreglustjórinn. „Setjið handjárn á þá“, sagði hann við lögregluþjónana. Næsta dag hittust frú Fulton, vinnu- kona hennar, póstþjónninn og James Brown á lögreglustöðinni. Lögreglu- stjórinn kynnti þau. „Nú, og ég sem helt að þetta væri Holmes“, sagði stúlkan vonsvikin, þeg- ar nafn James Brown var nefnt. Frú Fulton hló. „Já, þetta er reglu- legur Scherlock Holmes — við eigum yður mikið að þakka, herra Brown — og yður, herra lögreglustjóri“. „Þetta voru hræðilegir dagar“, sagði hún, og snéri sér að Brown. „Ég var lokuð inni í smáklefa og fékk engan mat. í þess stað settu óþokkarnir bezta mat, sem þeir áttu, fyrir utan dyrnar. Ég gat séð það, en ekki náð í það. Fyrir að gefa mér hann, heimtuðu þeir að ég skrifaði 10.000 kr. ávísun, en án þess að ég hefði nokkra tryggingu fyrir, að mér yrði sleppt. En eigi mað- ur að borga hverja máltíð með 10.000 krónum, þá eru peningarnir fljótir að fara. Síðast var ég orðin svo svöng, að ég held að ég hefði farið að borga. Hafið þér aldrei reynt, hvernig það er að vera sársvangur, og hafa kræsingar Skátapósturinn 5

x

Skátapósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátapósturinn
https://timarit.is/publication/926

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.