Árblaðið

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Árblaðið - 09.12.1977, Qupperneq 3

Árblaðið - 09.12.1977, Qupperneq 3
3 „ Byggðastefna" Byggðastefna er orð sem flestir kannast við í dag, og þýðir í stuttu máli stuðnings- yfirlýsingu við mannlífið í hin- um dreifðu byggðum landsins, í víðtækustu merkingu þess hug- taks. Stjórnmálaflokkar, stjórn- málamenn og fleiri aðilar hafa reynt að taka þátt í þessari stefnumótun og framkvæmd hennar, einkum hin síðari ár. Framkvæmdastofnun ríkisins varð til, og hefir undir sinni stjórn tvo öfluga fjárfestingar- sjóði: Framkvæmdasjóð ríkisins og Byggðasjóð, til þess m. a. að tryggja framgang byggða- stefnunnar af hálfu ríkisvalds- ins, t. d. með bráðnauðsynleg- um fjárveitingum til atvinnu- uppbyggingar hvers konar. Sveitarstjórnir um allt land hafa líka reynt að tryggja frarn- gang byggðastefnunnar hver á sínum stað, en að vísu með misjöfnum árangri eins og geng- ur. En stóra spurningin er, hvernig hefur fólkið sjálft í hinum dreifðu byggðum lands- ins þ. e. ég og þú tekið undir þessa stuðningsyfirlýsingu við landsbyggðina frá opinberum aðilum, hvað höfum við gert til að tryggja framgang byggða- stefnunnar, og treysta búsetu- skilyrðin, þ. e. a. s. þegar frá eru talin framlög okkar úr sam- eiginlegum sjóðum sveitarfé- lagsins og stuðningur ríkis- valdsins sem áður var vikið að? F.g geri ekki ráð fyrir því að svör séu almennt á reiðurn höndum, og sjálfsagt verða svörin jafn mörg og breytileg og einstaklingarnir sem kynnu að svara. Eigi að síður er okk- ur hollt að hugieiði þessi mál í alvöru, og leggja okkar lóð á vogarskálina jafnvel þótt lítið sé, til þess að treysta hið marg- umtalaða jafnvægi í byggð landsins. Hér á Selfossi er gott að búa segir fólkið, en þrátt fyrir það hefur iítið borið á svoköll- uðum byggðakærleika hjá hin- um almenna innbyggja, þegar undan eru skildir örfáir land- nemar staðarins. Mcð stórbætt- um samgöngunt við stór-Reykja víkursvæðið síðustu árin hefur þessi byggðakærleikur enn þorrið, hafi hans verið farið að gæta að einhverju ráði. I stað þess að taka þátt í að efla allt menningar- og athafnalíf á staðnum, sækir fólk í talsverð- um mæli verslun og þjónustu suður, að maður tali nú ekki um skemmtan ýmiss konar. Hér er það hin frjálsa sam- keppni sem gildir segir fólkið, úrvalið meira í Reykjavík og ekkert fyrirtæki að renna í bæinn, til innkaupaferða. Pað er þessi hugsunarháttur sem er erkióvinur byggðastefn- unnar, vegna þess að hann er órökstuddur oft á tíðum, vöru- val hefur ekki verið kannað heima fyrir og ekki heldur verð og gæði. Sérverslanir og sér- hæfð þjónusta í heimabyggð á erfitt uppdráttar ef íbúarnir skipta ekki við slík fyrirtæki, á sama hátt getur þessi þjónusta stóreflst og veitt mikla atvinnu, ef fólkið skilur sitt hlutverk í byggðastefnunni. Pað sem er nýjast í þessari öfugþróun byggðastefnunnar, er að nú er fólk farið að steðja til útlanda í stórum stíl í inn- kaupaferðir. Á sl. ári hefur átt sér stað á Selfossi meiri uppbygging af hálfu sveitarfélagsins, fyrir- tækja og einstaklinga en flesta hafði órað fyrir, og auðvitað er það traust undirstaða til þess „Betur má ef duga skal" Sföndum vörð um sunnlensk fyrirfæki og beinum viðskipfum til þeirra. Þannig er hagsmunum heildarinnar besl borgið að efla byggðina, en þrátt fyrir þessa miklu uppbyggingu hefur okkur ekki tekist að treysta at- vinnulífið að sama skapi og er það mikið umhugsunar- og áhyggjuefni. Samvinnufélögin hafa að vísu aukið umsvif sín í atvinnurekstri og örfáir ein- staklingar. í verslunar- og þjón- ustufyrirtækjum stöndum við í stað, og ekki hefur okkur tek- ist að koma hér upp eða laða hér að áhugaverðan atvinnu- aukandi framleiðsluiðnað sem vert væri um að tala, þrátt fyrir nokkra tilburði sveitarfélagsins til þess að hafa áhrif í þá veru. Iðnkynningarár er senn á enda runnið. Vonandi ber það einhvern árangur í þá átt, að fá okkur til þess að efla inn- lenda framleiðslu og nota frem- ur slíka vöru en innflutta. Von- andi fær það okkur einnig til þess að beina viðskiptum okk- ar í ríkari mæli til iðnfyrirtækja í þjónustuiðnaði í okkar heima- byggð og vonandi gera þessi fyrirtæki sitt til þess að laða okkur heimamenn til viðskipta, því vel að nierkja eru skyld- urnar gagnkvæmar, vandinn er sá að hver skilji og skynji sitt hlutverk í framkvæmd byggða- stefnunnar að þessu leyti. Góðir Selfossbúar. Ég vil halda því fram, að þessir síð- ustu og bestu tímar bjóði upp á mikla möguleika. Ég vil líka trúa því að hugsjón byggða- stefnunnar takist að tendra með hverjum einstaklingi fyrr eða síðar. Mótframlag okkar verður best tryggt með því að „Byggja og treysta á Selfoss" okkar heimabyggð. Hafsteinn Þorvaldsson. Húsbyggjendur Búsáhöld Byggineavðrur Austurv. 15 Sclfossi AIIjiI 1ar Simi 1335 athugið Framleiöum miöstöövarofna úr stál- og prófílrörum. Kynnið yður verö og gæði. Gerum föst verðtilboð, ef óskað er. OFNASMIÐJA SUÐURLANDS HF. - Þelamörk 53 - Hveragerði Sími (99)4380 og 4305, heima Hcimilist. Járnv. Vcrkfxri Jólagjafavörur i úrvaii. Braun: Hringburstinn vinsæli nýkominn. Hraðgrill á ótrúlega hagstæðu verði. Öll önnur rafmagnstæki. Black and Decker: Borvélar og fylgihlutir í úrvali. Allt til JÓLAGJAFA

x

Árblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árblaðið
https://timarit.is/publication/931

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.