Árblaðið - 09.12.1977, Side 4
4
spyr3.des.
Blaðamaður og ljósmyndari
Árblaðsins fóru á stúfana fyrir
skömmu og lögðu nokkrar
spurningar fyrir vegfarendur á
Selfossi.
Spurning 1. Ert þú byrjuð
(aður) að gera jólainnkaupin?
Spurning 2. Hvar gerir þú
jólainnkaupin?
Spurning 3. Eyðir þú meiru
í desember cn aðra mánuði?
Ólafur Ólafsson, Austurvegi
36:
Sp. 1. Nei, og byrja áreiðan-
lega ekki fyrr en eftir 10. des.
Sp. 2. Aðaljólainnkaupin geri
ég á Selfossi, 90%, allt sem ég
fæ, en að vísu bregð ég mér í
bæinn til að ná í það sem á
vantar.
Sp. 3. Ilef undanfarin ár eytt
allavega helmingi meira þenn-
an mánuð en aðra, en geri þó
tæplega í ár.
Edda 13. Jónsdóttir, Kirkju-
vegi 27:
Sp. 1. Nei, ekki neitt.
Sp. 2. Ég fer nú oftast til
Reykjavíkur, en ef mér líst vel
á eitthvað hér, þá kaupi ég það
hér.
Sp. 3. Nei, almáttugur, ég
hef ekki gert mér grein fyrir
hve miklu meira ég eyði.
ingibjörg Bjarnadóttir, Reyni-
vöilum 4:
Sp. 1. Svolítið.
Sp. 2. Hérna á Selfossi.
Sp. 3. Ég eyði miklu meira,
það eru svo margar gjafir sern
þarf að gefa.
Pórunn Einarsdóttir, Reyni-
völlum 12:
Sp. 1. Nei.
Sp. 2. Hérna á Selfossi, það
sem fæst, allavcga matvöru.
Sp. 3. Nei, ég hef ekki hug-
mynd um það, helmingi meira
minnsta kosti.
Halldóra Gunnarsdóttir,
Skólavöllum 7:
Sp. 1. Já.
Sp. 2. Selfossi, og í Reykja-
vík það sem ekki fæst á Sel-
fossi.
Sp. 3. Nei, ég vil ekki hugsa
um það, það mundi sjálfsagt
líða yfir ntig ef ég tæki það
saman.
Guðbjörg Sigurbjörnsdóttir,
Lambhaga 8.
Sp. 1. Lítið.
Sp. 2. Allt sem fæst hér á
Selfossi, en leita til Reykjavík-
ur eftir því sem ekki fæst hér.
Sp. 3 Minnsta kosti helmingi
meira.
Sigurður Grímsson, Heima-
haga 13:
Sp. 1. Ekki nema að litlu
leyti.
Sp. Aðallega í Reykjavík,
það er nteira úrval, og maður
fer hvort eð er í bæinn og
kaupir þá flest.
Sp. 3. Ég hugsa að það sé
alveg helmingi meira.
Guðrún Pálsdóttir, Rauð-
holti 11:
Sp. 1. Nei.
Sp. 2. Á Selfossi yfirleitt.
Sp. 3. Helmingi meira í des-
ember.
Helgi Garðarsson, Sigtúni
17:
Sp. Sérðu það ekki maður.
(Hann var að koma klyfjaður
úr G.Á.B.)
Sp. Mest hérna á Selfossi.
Sp. 3. Nei, það veit ég ekki,
ég eyði svo miklu venjulega
mánuði.
Ingvi Rafn Sigurðsson, Lamb
haga 24:
Sp. 1. Nei.
Sp. 2. Selfossi, ekki í Reykja-
vík sem neinu nenuir, allavega
ekki jólagjafir.
Sp. 3. Erfitt að segja.
Guðbjörg Gestsdóttir, Stekk-
holti 13:
Sp. 1. Já, svona smávegis.
Sp. Mest hér á Selfossi, en í
Reykjavík það sem ég fæ ekki
hér, en flest fæst nú orðið hér
og er ástandið mun betra en
hefur verið.
Sp. 3. Helmingi meira og
jafnvel vel það, ekki svo gott
að segja um.
Kaupmenn
Jólaundirbúningur er greini-
lega að hefjast, auglýsingar
dynja yfir landsmenn bæði í út-
varpi og sjónvarpi, verslanir
skarta glæsilegum gluggaskreyt-
ingum, og börnin byrjuð að spá
í jólasveinana. I upphafi jóla-
mánaðar lagði ÁRBLAÐIÐ
eftirfarandi spurningar fyrir tvo
kaupmenn á Selfossi.
1. Er jólaösin byrjuð?
2. Býstu við mikilli verslun
í desember?
3. Hvenær hefst undirbún-
ingur kaupmanna undir
jólaösina?
4. Bætirðu við fólki til af-
greiðslustarfa jólamánuð-
uðinn?
5. Verður þú var við að fólk
sæki til Reykjavíkur til að
versla áður en það athug-
ar vöruúrvalið hér?
í jólaösinni
Helgi Björgvinsson, verslun
H.B. Selfossi:
1. Já, það er óhætt að segja
það.
2. Já, ég verð að gera það,
þetta er aðal verslunar-
mánuður ársins.
3. Hann getur hafist alveg
um mitt sumar, þá fer
maður að leggja drög að
jólainnkaupunum.
4. Já, það verður að tvöfalda
starfsmannafjöldann.
5. Ég verð ekki var við það,
fólk passar sig á að segja
ekkert um slíkt, en stund-
um heyrir maður óvart
fólk segja: Kvað, fæst
þetta hér, ég sem var bú-
inn að leita um alla
Reykjavík eftir þessu.