Bændablaðið - 13.01.2004, Blaðsíða 14
14 Þriðjudagur 13. janúar 2004
Verðskrá yfir nautgripakjöt helstu sláturleyfishafa í janúar 2004
Tekið saman af Landssambandi kúabænda
Sláturh. Norð- KS Sölufélag SS Brákar- B. Slátur-
Hellu lenska A-Hún. sund ehf. Jensen félag KVH
UN 1 Ú A - holdanaut 350 340 340 340,41 350 341
UN 1 Ú B - holdanaut 350 323 340 323,01 350 341
UN 1 Ú C - holdanaut 300 284 295
UN 1 Ú A 310 306 340 316 306,52 310 307
UN 1 Ú A, léttari en 230 kg 310 292 292,92 302 293
UN 1 Ú B 300 301 340 301 291,97 310 302
UN 1 Ú B, léttari en 230 kg 300 291 281,3 295 292
UN 1 Ú C 270 260 248 269 260,47 267 261
UN 1 Ú C, léttari en 230 kg 280 260
UN 1 Ú M+ 280 262 265 278 270,49 255 263
UN 1 Ú M 280 250 260 269 260,47 240 251
UN 1 A 300 297 285 297,79
UN 1 A, þyngri en 230 kg 300 298 300 307 309
UN 1 A, léttari en 230 kg 280 285 285 287,1 294 287
UN 1 A, léttari en 200 kg 280 275
UN 1 B 290 281 285 282,27 282 291
UN 1 B, þyngri en 230 kg 290 298 281 290 293
UN 1 B, léttari en 230 kg 270 271 272 272,57 280 273
UN 1 B, léttari en 200 kg 270 275
UN 1 C 250 251 245 250 242,5 252 250
UN 1 C, þyngri en 230 kg 250 261 263
UN 1 C, léttari en 230 kg 230 235
UN 1 M+ 260 245 248 250 257,05 255 246 255
UN 1 M 250 235 238 240 243 240 236 240
UN 2 A 210 204 200 200 208,05 204 206
UN 2 B 210 204 200 200 208,05 204 206
UN 2 C 150 142 146 146,46 142 144
UN 2 M+ 200 190 194,49 200
UN 2 M 185 170 180 180 181,42 170 172
N 220 206 208,05 206
K 1 U A 230 229 215 218 230 219 230 210
K 1 U B 230 209 215 213 230 209 210
K 1 U C 190 175 175 175 190 175 176 175
K 1 A 220 208 200 200 216 208 209 205
K 1 B 200 194 195 190 201 194 195 194
K 1 C 150 140 130 146 149 130 142 130
K 2 175 150 160 170 173 150 152 150
K 3 155 130 120 146 154 130 132
K 4 155 45,6
MK 1 330 271 296 321,2 210 321
UK 1 220 160 170 188 210,43 145 210
UK 2 170 111 130 156 160 100 180 110
UK 3 130 91 110 120 130 75 100 90
AK 1 260 209 230 237 258,26 209 258
AK 2 190 130 150 180 180,43 130 180
AK 3 160 106 140 156 155,67 106 155
Seinagangur í afgreiðslu
umsókna
Meðal þess sem athugasemdir
hefðu verið gerðar við var að
stundum væri seinagangur í af-
greiðslu lánsumsókna. Því væri til
að svara að almennt væri vinnslu-
tími umsókna 2-5 vinnudagar.
Hins vegar væri afgreiðslutími
lánveitinga oft lengri þegar afla
þyrfti veðleyfa auk þess sem
þinglýsing og önnur umsýsla við
lánveitinguna tæki ávallt nokkurn
tíma. Það væri þó staðföst stefna
sjóðsins að stytta og einfalda eftir
megni afgreiðslutíma lánsum-
sókna, en þó án þess að það kæmi
niður á vönduðum vinnubrögðum
og öryggi í afgreiðslu.
Einnig hefðu komið fram á
fundunum ábendingar til sjóðsins
að koma betur til móts við bændur
með fjármögnun á framkvæmda-
tíma. Guðmundur sagði að í reynd
væri það gert með því að greiða út
lánin eftir því sem framkvæmdum
miðaði. Lánasjóðurinn væri þó
opinn fyrir því að koma betur til
móts við bændur í þessu efni og
það mál væri til skoðunar.
Gengistryggð lán
Þá komu einnig fram óskir um
að sjóðurinn tæki upp lánveitingar
í erlendum gjaldmiðli. Guðmund-
ur sagði að það mál hefði verið í
skoðun um nokkurn tíma hjá
sjóðnum og í lánareglum sem tóku
gildi 1. janúar sl. væri gert ráð fyrir
slíkum lánum. Vextir erlendra
gjaldmiðla væru um þessar mundir
mun lægri en krónunnar og því
gæti verið hagstætt að taka lán í
erlendri mynt. Slíkri lántöku
fylgdi þó ávallt ákveðin áhætta ef
tekjur lántakanda væru í annarri
mynt en lántökumyntinni og því
þyrftu flestir bændur að hugsa
þessi mál vel áður en til
ákvörðunar kæmi. Hins vegar
mætti einnig segja að aðrir bænd-
ur, t.d. loðdýrabændur, ættu frekar
að taka lán í erlendri mynt því
þeirra tekjur væru að mjög miklu
leyti miðaðar við erlenda mynt.
Rafrænar umsóknir
Guðmundur sagði að mikill
áhugi væri hjá sjóðnum að bjóða
bændum möguleika á rafrænum
umsóknum. Þau mál væru í
vinnslu, en hingað til hefðu verið
annmarkar á að afla með rafrænum
hætti ýmissa gagna sem verða að
fylgja umsókn, s.s. veðbókarvott-
orða og skattskýrslna. Nú væri
stutt í að veðbókarvottorð yrðu
rafræn og mikill hluti skattskýrslna
væri það nú þegar. Tími rafrænna
umsókna væri því ekki upp runn-
inn, en greinilegt væri að í það
styttist. Þess væri örugglega ekki
langt að bíða að bændur gætu notið
þess hagræðis og þess sparnaðar
sem mun fylgja rafrænum um-
sóknum.
Skoðanakönnun
Í skoðanakönnun sem sjóður-
inn gerði hjá fyrrgreindum bú-
greinafélögum kom m.a. fram að
þau eru öll hlynnt sérstökum
lánasjóði fyrir landbúnaðinn og öll
sem svöruðu eru einnig hlynnt því
að bændur greiði sérstakt gjald til
sjóðsins til að eiga aðgang að lægri
vöxtum. Hins vegar taldi
meirihluti að lækka ætti þetta gjald
frá því sem nú er, jafnvel um
helming. Þá var meirihluti bú-
greinafélaganna á því að fella bæri
niður kröfuna um 1. veðrétt. Guð-
mundur sagði að vissulega væri
hér um mikilvæg mál að ræða,
bæði fyrir bændur og sjóðinn sem
slíkan. Vaxtastig sjóðsins endur-
speglaðist auðvitað að nokkru af
hlutdeild hans í búnaðargjaldi og
einnig í kröfunni um 1. veðrétt.
Þetta væru þó mál sem heyrðu
undir löggjafarvaldið en sjóðurinn
fagnaði allri umræðu um þau og
vildi gjarnan taka þátt í henni.
Almennt hefði þó komið fram
ánægja með starfsemi sjóðsins sem
stjórn hans og starfsfólk væri
þakklátt fyrir.
Gengistryggð lán og
rafrænar umsóknir
Fundir stjórnar Lánasjóðs landbúnaðarins og búgreinafélaga
Stjórn Lánasjóðs landbúnaðarins átti í nóvember fundi meðfulltrúum nokkurra búgreinafélaga um samskipti sjóðsins ogviðkomandi búgreina. Þau búgreinafélög sem um ræðir eru
Landssamband kúabænda, Landssamtök sauðfjárbænda, Svína-
ræktarfélag Íslands, Félag kjúklingabænda, Samband
garðyrkjubænda og Samband ísl. loðdýrabænda. Tilgangur þessara
funda var að kynnast viðhorfum fulltrúa umræddra búgreina
varðandi starfsemi sjóðsins og hvernig hann gæti best þjónað þeim í
framtíðinni. Í samtali við Bændablaðið sagði Guðmundur Stefáns-
son, framkvæmdastjóri Lánasjóðsins, að þessir fundir hefðu að mati
sjóðsins verið gagnlegir og ánægjulegir. Ýmsar gagnlegar ábend-
ingar og athugasemdir hefðu komið fram hjá búgreinafélögunum
sem hefðu þegar verið teknar til athugunar hjá sjóðnum.
Samningamál
Enn er vinnu við undirbúning á
nýjum mjólkursamningi ekki lokið
en stefnt er að því að þessum
hluta samningaundirbúnings ljúki á
næstu vikum. Í framhaldi af því
munu samninganefndir bænda og
ríkis setjast niður og er enn stefnt
að því að klára þessa vinnu á
skömmum tíma. Að gefnu tilefni er
enn minnt á að núverandi
samningur kúabænda við ríkið
rennur út í lok ágúst eftir 19
mánuði og á meðan ekki er búið
að semja við hið opinbera um
hvað tekur við er mikilvægt að
bændur taki þá óvissu inn í
útreikninga á arðsemi hugsanlegra
viðskipta með greiðslumark.
Markaðsmál mjólkur
Í desmber varð samdráttur í
innvigtun mjólkur þriðja mánuðinn
í röð samkvæmt
bráðabirgðauppgjöri Samtaka
afurðastöðva í mjólkuriðnaði.
Innvigtun mjólkur í desember varð
4,6% minni en á sama tíma fyrir
ári og því til viðbótar voru fleiri sk.
innvigtunardagar í desember sl.,
þannig að gera má ráð fyrir að
samdrátturinn sé um 7-8% í raun.
Heildarframleiðsla mjólkur frá
september til ársloka er nú um 5%
minni en á sama tíma fyrir ári. Ef
skoðaðar eru hugsanlegar
ástæður fyrir þessum mikla
samdrætti, þá kemur fram í
upplýsingum úr skýrsluhaldinu að
mikil tilfærsla er á burði kúa nú.
Þannig báru á tímabilinu janúar til
apríl 2003 um 10% fleiri kýr en á
sama tímabili árið 2002. Að sama
skapi báru mun færri kýr nú í
haust en haustið 2002, þannig að
greinilegt er að burðartíminn er að
færast nokkuð til sem vonandi
skýrir að mestu minni
mjólkurframleiðslu.
Markaðsmál nautakjöts
Nú fyrir áramótin var eins og
undanfarin 4 ár lögð áhersla á
nautakjötsauglýsingar. Sendir voru
út um 25 þúsund
uppskriftabæklingar og
kjötsöluaðilar hvattir til dáða.
Samkvæmt upplýsingum frá helstu
söluaðilum gekk salan mjög vel og
hefur salan nú vaxið jafnt og þétt 4
ár í röð. Ljóst er að nautakjöt er að
ná góðum sess á hátíðarborðum
landsmanna og er það vel.
Sala á nautgripakjöti hefur
almennt gengið þokkalega
undanfarna mánuði. Þegar þetta
er skrifað liggja þó ekki fyrir
upplýsingar um slátrun í
desember. Verð til bænda hefur
heldur verið á uppleið og ágætit
útlit með frekari hækkanir. Nánari
upplýsingar má sjá á vef LK:
www.naut.is.
Kjarnfóðurverð heldur á uppleið
Samkvæmt nýju yfirliti um verð á
kjarnfóðri til kúabænda kemur
fram að kjarnfóður stærstu
fyrirtækjanna hefur heldur hækkað
síðustu mánuði. Samkvæmt
upplýsingum sem LK hefur borist
felast skýringarnar í almennum
hækkunum heimsmarkaðsverðs á
korni og hækkun launa. Þrátt fyrir
hækkanir hefur þó verð til bænda
lækkað frá Bústólpa en eins og
kunnugt er er það fyrirtæki í eigu
Fóðurblöndunnar. Nánari
upplýsingar má sjá á vef LK:
www.naut.is.
Skrifstofa LK
Sími: 433 7077, fax: 433 7078.
Netfang: lk@naut.is. Veffang:
www.naut.is. Heimilisfang:
Landssamband kúabænda,
Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311
Borgarnesi.
Umsjón:
Snorri Sigurðsson,
framkvæmdastjóri LK