Bændablaðið - 28.09.2004, Page 2
2 Þriðjudagur 28. september 2004
Endursmíði gamalla dráttarvéla
er sívinsælt viðfangsefni. Í flest-
um tilvikum eru það karlmenn
með sterkar taugar í sveitina
sem taka að sér gamlar vélar og
gera þær þannig úr garði að þær
eru eins og splunkunýjar. Hér
má sjá höfuðborgarbúann og
Austurbæinginn Pál R. Pálsson
sem á sér það áhugamál að gera
upp gamla traktora.
Á meðfylgjandi mynd situr
Páll við stjórnvölinn á Farmal Cub
árg. 1952. Raunar er þessi vél sett
saman úr þremur. Tvær komu frá
Jóni Gunnarssyni frá Arnarnesi í
Kelduhverfi og sú þriðja frá Ás-
mundi Guðmundssyni, Arkarlæk í
Skilmannahreppi.
Vélin sem er fjær er Farmall
Cub árg. 1957, en hana keypti Páll
af Ingólfi Péturssyni á Húsavík.
Svo ætt vélarinnar sé rakin þá fékk
Ingólfur hana hjá Ásmundi Karls-
syni, bónda á Vaði I í Reykdala-
hreppi.
Páll sagði við tíðindamann
Bbl. að hann hefði gert upp fleiri
traktora en hér eru nefndir til
sögunnar. "Þetta er skemmtilegt
áhugamál," sagði Páll og gat þess
að í sjálfu sér væri ekki erfitt að út-
vega varahluti í þessar vélar. Enn
væru framleiddir "orginal" hlutir
og merkimiðar, en sannast sagna
væru þeir nokkuð dýrir. Aðspurður
sagði Páll að menn hefðu rætt um
nauðsyn þess að stofna félagsskap
þeirra einstaklinga sem gerðu upp
gamla traktora. "Það hlýtur að vera
grundvöllur fyrir svoleiðis félagi.
Til eru félög þeirra sem hafa
endursmíðað gamla bíla. Gamlar
dráttarvélar eru ekki síður
merkileg tæki," sagði Páll.
Flottir traktorar í Austurbænum!
Páll og dráttarvélarnar hans.
Úttekt á
gróður-
setningu frá
upphafi Suður-
landsskóga
Tveir starfsmenn á vegum
Suðurlandsskóga, þeir
Björgvin Eggertsson skógar-
verkfræðingur og Jón Þór
Birgisson skógfræðinemi eru
að taka út gróðursetningar
frá upphafi Suðurlandsskóga
og til ársins 2002 á um 40
jörðum á Suðurlandi. Verið
er að safna upplýsingum um
ástand viðkomandi ungskóga.
Þá er tekinn út vöxtur og við-
gangur, talið er í reitum og
trén hæðarmæld. Tilgangur-
inn er að sjá framvindu
skógræktarinnar frá upphafi.
Björn B. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Suðurlands-
skóga, sagði í samtali við
Bændablaðið að í fyrra hefði
verið gerð úttekt á öllum jörð-
um sem byrjuðu skógrækt áður
en Suðurlandsskógar urðu til en
eru inn í verkefni Suðurlands-
skóga. Nú er verið að taka út
þær jarðir sem hafa verið með
alveg frá byrjun og fram til
ársins 2002. Síðan verður
komið með aðgerðarplan
varðandi endurgróðursetningu
og fleira sem gera þarf.
,,Við fyrstu sýn er útkoman
vel viðunandi en samt misjöfn.
Þessi úttekt mun nýtast bænd-
um vel því að henni lokinni
munu þeir fá í hendur saman-
tekt á úttektinni og síðan ætlum
við að vinna aðgerðaplanið í
samvinnu við þá. Það ætti því
að vera meira öryggi fyrir
bændur um að það verði skógur
þar sem á að verða skógur,"
sagði Björn.
Gróðursetningu hjá Suður-
landsskógum nú í ár lauk nær
alveg í lok júní og var plantað
rúmlega einni milljón plantna í
vorgróðursetningu. Sagði Björn
að þær hefðu gengið óvanalega
vel. Haustgróðursetning er því
mjög lítil í ár. Hann segir það
fara vaxandi ár frá ári að
gróðursett sé með vélum.
Þeim fjölgar jafnt og þétt
sem gerast skógarbændur en
takmörk eru fyrir því hve hratt
þeim getur fjölgað og fer það
eftir því hvað Suðurlands-
skógar ráða við og því fjár-
magni sem er til ráðstöfunar.
Björn segir að þess vegna sé
alltaf biðlisti fólks sem vill
gerast skógarbændur.
Margir bændur hafa
keypt sér ISDN
símstöðvar frá
Símanum til að komast
í betra netsamband. Í
A-Skaftafellssýslu hafa
verið brögð af því að
þessar símstöðvar bili
sem má mjög líklega
rekja til óstöðugleika í
rafmagni frá RARIK. Í
september mánuði hafa
dottið út símstöðvar á
um tíu bæjum á
Mýrum og nágrenni
vegna rafmagns-
truflanna.
Ferðaþjónustubæn
dur hafa orðið fyrir
mestum óþægindum
vegna þessa enda þá
símasambandslausir og
þar með án tengingar
við netið.
Eigendum
ISDN
símstöðvanna
hefur verið
bent á þeir
geti fengið sér
varaaflstöðvar
sem verji tæki
gegn sveiflum
í rafmagni en
eðlilega eru
bændur ekki
sáttir við að
þurfa dýran
búnað til að
verja
rafmagnstæki
sín vegna
óstöðugleika í rafmagni
frá RARIK. Síminn
lánaði fólki ISDN síma
endurgjaldslaust til að
bjarga málum
um
stundarsakir
eða þar til
varanleg lausn
er fundin.
Bændur á
svæðinu eru
seinþreyttir til
vandræða en
núna þegar
þetta er farð að
gerast trekk í
trekk þá leituði
þeir til
tölvudeildar
Bændasamtaka
Íslands um
liðveislu.
Að sögn Jóns
Baldurs Lorange,
forstöðumanns
tölvudeildar
Bændasamtakanna, er
ljóst að RARIK og
Síminn verði að finna í
sameiningu varanlega
lausn á þessu og hefur
hann rætt við báða
aðila sem taka jákvætt
í að leysa málið á
viðunandi hátt fyrir
bændur. Svo virðist
vera sem ISDN
símstöðvarnar séu
viðkvæmari en önnur
rafmagnstæki vegna
yfirspennu en Jón
Baldur taldi allt benda
til þess að ástand á
rafmagni á þessu svæði
væri slæmt og hefði því
áhrif á endingu allra
rafmagnstækja.
Rafmagnstruflanir skemma
ISDN símstöðvar hjá bændum
Eins og er kunnugt hafa bændur haft miklar
áhyggjur af kálfadauða. Blaðið innti Þórólf
Sveinsson, formann Landssambands kúa-
bænda, eftir því hvað væri að frétta af rann-
sóknum á orsökum kálfadauða. Þórólfur
sagði málið hafa verið til umfjöllunar á vett-
vangi fagráðs í nautgriparækt. Fagráð hefði
skipað þá Braga Líndal, Halldór Runólfsson
og Jón Viðar Jónmundsson í starfshóp til að
fjalla um málið og hvað væri til ráða. Í um-
ræðu um málið og frekari skoðun á því hefur
svo komið í ljós að augljósar brotalamir eru
varðandi þekkingu á eðli vandans. Þess
vegna hefur verið unnin áætlun um það
hvernig best megi greina áhættuþætti og
orsakir þessa vandamáls.
Það sem ákveðið var að gera í fyrstu er
eftirfarandi:
A: Vinna víðtæka greiningu á snefilefnum í
íslensku gróffóðri því að ljóst er að talsvert
vantar á að fyrirliggjandi þekking sé nægileg til
að meta hvort efnaskortur er orsakavaldur í
þessu efni.
B: Í öðru lagi er ætlunin að greina mögulega
áhættuþætti með því að afla talsvert víðtækra
upplýsinga af nokkrum hópi kúabúa. Um 90
kúabændur hafa lent í úrtaki og hefur þeim
þegar verið sendur spurningalisti vegna þessa.
Þessum lista á ekki að svara skriflega, heldur
verður hringt í þá sem hafa fengið lista og sam-
ræmdra svara aflað símleiðis.
C: Í þriðja lagi vantar betri greiningu á því
hvernig og hvenær dauða kálfanna ber að. Til
að afla slíkra upplýsinga hefur verið útbúið sér-
stakt eyðublað þar sem mögulegt er að skrá
nánari upplýsingar um burðarferilinn hjá kúm.
Þeir sem hafa fengið þessi blöð send eru beðnir
að útfylla þessi eyðublöð fyrir burð á öllum
fyrsta kálfs kvígum og helst öllum kúm sem
bera á búinu frá því eyðublaðið berst til við-
komandi bónda, þar til mjólkurskýrslu verður
skilað í janúar.
.,Það er afar mikilvægt að þessir kúabændur
leggi lið og veiti umbeðnar upplýsingar'' sagði
Þórólfur. ,,Þannig verður vonandi hægt að afla
upplýsinga sem færa okkur nær því að greina
orsakir vandans og þar með að leggja grunn að
bættri stöðu þessara mála''.
Rannsóknir á orsökum kálfadauða
Kindakjöt
selst vel
Ekkert lát er á góðri sölu
kindakjöts en aukning var í
júlímánuði um rúm 65%
miðað við sama tímabil árið á
undan. Í ágúst var
söluaukningin rúm 30%,
sala síðasta ársfjórðung fór
upp um tæp 39% miðað við
sama tímabil árið 2003.
Mikið verðstríð ríkti á
kjötmarkaði á síðustu 2 árum
og varð óæskileg
birgðaaukning á kindakjöti á
því tímabili. En þar sem salan
hefur farið langt fram úr
björtustu vonum eru birgðir
kjöts frá fyrra ári langtum
minni en menn gerðu ráð fyrir
og birgðastaða í lok ágúst orðin
ásættanleg. Þessi góða sala ber
þess vitni að bændur eru að
framleiða úrvalsvöru sem
sannast best á sérstaklega góðri
umfjöllun og viðtökum á
erlendum mörkuðum en
útflutningur á dilkakjöti inn á
dýra markaði erlendis hefur
gengið mun betur en áætlað
var.
Nóg af hrati hjá Agli!
Bændablaðið sagði á
dögunum frá ofurkúnni
Þyrnirós frá Ytri-Tjörnum í
Eyjafirði sem m.a. er alin á
bygghrati frá bruggverksmiðju
Vífilfells á Akureyri.
Guðmundur Mar Magnússon,
bruggmeistari hjá Agli
Skallagrímssyni, hafði samband
við blaðið og sagði að þeir
væru í vandræðum við að losna
við sitt hrat. Þeir bjóða nú þegar
einum svínabónda upp á
heimsendingu og óska eftir að
komast í samband við fleiri
bændur í nágrenni Reykjavíkur.
Um er að ræða 8-10 tonn á viku
og ekki úr vegi að nokkrir
bændur taki sig saman sagði
bruggmeistarinn. Þeir sem hafa
áhuga er bent á að hafa
samband við Guðmund í síma
580-9049.
Bændablaðsmynd/Jón Eiríksson.