Bændablaðið - 28.09.2004, Side 4

Bændablaðið - 28.09.2004, Side 4
4 Þriðjudagur 28. september 2004 Skv. hollustuháttalögum nr. 7/1998 er eftirliti með mengandi starfsemi skipt á milli heilbrigðisnefnda sem starfa á vegum sveitarfélaganna annars vegar og Um- hverfisstofnunar, áður Hollustuverndar ríkisins, hins vegar. Í lögunum er tekið fram að heimilt sé að fela heilbrigðis- nefndum eftirlit með starfsemi sem Um- hverfisstofnun vinnur starfsleyfi fyrir. Samkvæmt ákvæðum laganna eru þvingunarúrræði samt áfram í höndum Umhverfisstofnunar. Í nýjum lögum um meðhöndlun úrgangs er þó kveðið á um að framselja megi ekki bara eftirlitið heldur einnig þvingunarúrræði sem unnt er að beita til að ná fram úrbótum ef starfsemi er ekki í samræmi við ákvæði starfsleyfis. Heilbrigðiseftirlit Austurlands, HAUST, hefur um árabil haft með höndum eftirlit með fiskmjölsverksmiðjunum á Austurlandi sem og allri sorpförgun á svæðinu skv. samningi þar um. Ástæðan fyrir því að HAUST tók yfir þetta eftirlit var sú að þáverandi Hollustuvernd gat ekki vegna fjarlægðar brugðið nógu fljótt við ef mengunarslys átti sér stað og heil- brigðisfulltrúar voru oft kvaddir til án þess að endurgjald kæmi fyrir þeirra vinnu. Heilbrigðiseftirlit Austurlands hefur nú ítrekað óskað eftir viðræðum við Umhverfis- stofnun vegna framsals eftirlits með annarri starfsemi sem Umhverfisstofnun veitir starfsleyfi og/eða hefur eftirlit með á Austurlandi. Þar má nefna stóru fiskeldisfyrir- tækin, olíubirgðastöðvar og væntanlegt álver. Nokkur önnur heilbrigðiseftirlitssvæði hafa svipaða samninga um ákveðna þætti eftirlits f.h. Umhverfisstofnunar, en sækjast eftir að fá einnig þvingunarúrræðin. Þetta á t.d. við um Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur. Vesturlandssvæði sækist eftir að fá slíka samninga á meðan sum svæðanna telja ekki eftirsóknarvert að yfirtaka eftirlit með þessum hætti. Helga Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri HAUST, segir að það virðist vera þungt fyrir fæti hjá Umhverfisstofnun í þessu máli. Þann 7. september var haldinn fundur um málið og kom Umhverfisstofnun þar með samningsdrög sem HAUST þykir ekki aðgengileg. ,,Nú er mikið um að vera hér á Austur- landi. Fiskeldi komið af stað í stórum stíl, framkvæmdirnar við Kárahnjúka og á næsta leiti bygging álverksmiðju á Reyðarfirði, svo eitthvað sé upptalið. Við teljum að við getum veitt góða þjónustu og betra eftirlit til dæmis hvað varðar olíumálin vegna nándar og tíðra ferða upp á Kárahnjúkasvæðið. Forsvarsmenn hjá Umhverfisstofnun svara málaleitan á þann veg að eðlilegt sé að eftirlitið sé sem næst fyrirtækjunum en þeir telja sig missa yfirsýn og þekkingu á þessum stóru fyrirtækjum ef þeir framselja okkur eftirlitið," segir Helga. Ákveðið hefur verið að setja á annan fund til að ræða um framsal eftirlitsins enda þótt heilbrigðisnefndum þyki þunglega horfa um samkomulag. Umhverfisstofnun vill ekki afsala sér völdum til Austfirðinga "Það eru þrjú ár síðan Osta- dagar voru síðasta haldnir í Perlunni," segir Ólafur E. Ólafsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála hjá Osta- og smjörsölunni. "Margt hefur gerst í ostaiðnaðinum á þremur árum og nú verðum við með miklu stærra pláss, stærri borð undir ostana, fleira fólk við þjónustu og ráðgjöf og meira úrval." Ostadagarnir hefjast á föstudag með formlegri opnun fyrir boðsgesti, þar sem kynntir verða ostadómar. Um 90 ostar verða teknir til dóma frá öllum ostafram- leiðendum á landinu og veitt verða gull, silfur og brons í föstum ostum, desertostum og flokknum aðrir ostar. Í lokin stendur einn ostaframleiðandi uppi sem Ís- landsmeistari og einn ostur sá besti á landinu. Allir ostarnir sem teknir eru til dóma verða sýndir á sérstöku borði. Opið verður fyrir almenning kl. 11:00 til 18:00 á laugardag og frá 13:00 til 18:00 á sunnudag. Spennandi Ólympíuborð "Sýningin er fjölbreyttari nú en áður og inn koma ýmsir samstarfs- aðilar sem bæta kryddi í Osta- dagana", segir Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir markaðsfulltrúi. "Ég er viss um að mörgum mun þykja varið í að sjá Ólympíuborð kokkalandsliðsins. Skreytingin á það verður sett upp fyrir opnuna á föstudag, en síðan mun kokka- landsliðið vinna alla aðfararnótt laugardags við matreiðslu og árangurinn fáum við að sjá fyrri Ostadaginn í Smáralind, þeas á laugardag. Síðan verður öllu pakkað niður og kokkalandsliðið heldur á Ólympíuleika í Aþenu." Veislueldhús Osta og smjör- sölunnar verður með starfsemi í Vetrargarðinum og á miklu borði verða sýnishorn af öllum vörumerkjum innan Osta og smjörsölunnar. "Ég er viss um að mörgum mun koma það á óvart hve mikil breidd er í framleiðslu- vörum okkar, enda verða þarna bæði vörur til stórnotenda niður í smæstu pakkningar til eintak- linga", segir Guðbjörg. "Margt annað verður þarna á ferðinni eins og vínráðgjöf á vegum Vínþjóna- samtaka Íslands og happ- drættispottur fyrir þá sem skila inn boðsmiðum, sem verða bornir út til heimila í vikunni. Í vinning er flugmiði fyrir tvo með Iceland Express." Margar vörunýjungar Ekki má gleyma vöru- nýjungum á Ostadögum sem jafnan kitla bragðlauka og vekja eftirtekt. "Við vitum ekki alveg endanlega hve margar nýjungar verða kynntar en á meðal þeirra er nýr mygluostur, nýir fetaostar, ný ostakaka, bragðbættur mysuostur og smyrjanlegur gráðostur. Við vonumst til þess að það verði mikið spjallað og smakkað á Osta- dögunum og fólk hafi bæði gagn og mikið gaman af því að heimsækja okkur í Vetrargarðinn", segir Ólafur E. Ólafsson að lokum. Engin sala fer fram í Vetrar- garðinum á Ostadögum en öllum sem koma er boðið að smakka á góðgætinu. Aðildarfélög Osta- og smjör- sölunnar eru eftirtaldir ostafram- leiðendur: Mjólkurbú Flóamanna, Norðurmjólk, Mjólkurstöðin á Egilsstöðum Mjólkursamlagið í Búðardal, Mjólkursamlag Vopn- firðinga og Mjólkursamlag Kaup- félags Skagfirðinga. Einnig verða Ostabúðin á Skólavörðustíg og Ostahúsið Hafnarfirði, þátttakendur á Osta- dögum. Ostadagar í Vetrargarðinum í Smáralind 1.- 3. október Hægt að smakka á rösklega 90 ostategundum Osta- og smjörsalan gengst fyrir Ostadögum í Vetrargarðinum í Smáralind dagana 1.- 3. október. Þar verður mikið um að vera enda búist við tugþúsundum gesta. Meðal þess sem væntanlega mun draga að verður Ólympíuborð kokkalandsliðsins, Íslandsmeistarakeppni ostameistara, vínráðgjöf vínþjónasamtaka Íslands og frumsýningar á nýjum ostategundum. Einnig verður Beinvernd á staðnum og býður upp á beinþéttnimælingar. Alls verður almenningi boðið að smakka yfir 90 ostategundir á Ostadögunum. Íslandsmeistarakeppni í ostagerð, ólympíuborð kokkalandsliðsins og frumsýning á nýjum ostum Ólafur E. Ólafsson í Smáralind en þar verða Ostadagarnir eftir örfáa daga. Smáralind verður æ vinsælli staður fyrir sýningar enda er húsnæðiið rúmgott og auðvelt að finna bílastæði. Tekjur af netaveiði óverulegar miðað við tekjur af stangaveiði Tekjur af netaveiði eru vafalítið óverulegar miðað við tekjur af stangaveiði, segir í skýrslu Hagfræðistofnunar um efnahagsleg áhrif lax- og silungsveiða. Árið 2003 voru netaveiddir um 7.500 laxar eða um 22% af stangaveiddum löxum það árið. Eldri úttektir hafa gefið til kynna að virði netaveidds lax fyrir veiðifélög sé aðeins um 7% af virði stangaveidds lax og því má álykta að efnahagslegt virði netaveiddra laxa sé lítið í samhengi við virði stangaveiddra laxa. Árið 2003 voru netaveiddir um 60.000 silungar en algengt er að veiðiréttarhafarnir veiði sjálfir silung í net segir í skýrslunni. Norðurlandsskógar Mikill vöxtur þrátt fyrir þurrt sumar Skógarbændur á Norðurlandi eru nú í þann mund að ljúka haustgróðursetningu. Í vor gróðursettu bændur um 800.000 plöntur og í haust verða gróðursettar um 400.000 plöntur. Eins og alþjóð veit hefur sumarið verið einstaklega hlýtt en um leið hefur verið afar þurrt á mest öllu starfssvæði Norður- landsskóga. Þurrkurinn kom nokkuð illa niður á smáplöntum sem gróðursettar voru í vor en vöxtur hefur verið óvenju mikill hjá stálpaðri trjám. Dæmi eru um eins metra ársvöxt á greni og furan hefur víða vaxið 60-70 cm. Gríðarlegur vöxtur er einnig í ösp og mörgum víðitegundum. Lerkið virðist hins vegar ekki vera alveg búið að ná sér eftir hremmingarnar í kjölfar hretsins í fyrravor og hefur vöxtur í þeirri tegund ekki verið eins mikill og búast hefði mátt við. Reynsla undanfarinna ára sýnir að á snjó- léttum þurrum svæðum kemur haustgróðursetning oft betur út heldur en gróðursetning að vori. Hins vegar er ekki heppilegt að bera áburð á samfara gróðursetn- ingu að haustinu og þarf því að fara aftur yfir svæðin að vori og bera á þær plöntur sem gróður- settar voru haustið áður. Enn- fremur er ekki heppilegt að gróðursetja að hausti í landgerðir þar sem hætta er á frostlyftingu. Þar sem rakinn er nægur kemur hins vegar vor- og jafnvel sumar- gróðursetning yfirleitt best út. Áhuginn fyrir Norðurlands- skógaverkefninu hefur aukist samfara því að nú eru fyrstu gróð- ursetningarnar að verða sýnilegar. Umsóknir inn í verkefnið berast jafnt og þétt en því miður er ennþá biðlisti þar sem fjármagn hefur ekki verið nægilegt til að allir kæmust að. Verði fjármagn til verkefnisins samkvæmt þeirri þingsályktunartillögu sem sam- þykkt var á síðasta ári ætti þó að verða hægt að útrýma biðlistanum inn í verkefnið á næstu tveimur árum. /VJ. Fjörutíu pöntuðu sér fánastangir Búnaðarsamband Suðurlands safnaði saman pöntunum á fánastöngum og ljósastaurum og leitaði síðan eftir verðtilboðum. Alls bárust pantanir á 40 fánastöngum og 25 ljósastaurum. Valdimar Bjarnason hjá BSS annaðist þetta mál og sagði hann að samið hafi verið við Bros- auglýsingavörur í Reykjavík um fánastangirnar. Síðan þurfa þeir sem pöntuðu að sækja sína stöng, hver fyrir sig, enda voru pantanirnar allt frá Stykkishólmi austur í Skaftafellssýslu. Ljósastaurarnir koma frá fyrirtækinu Sandblástur og málmhúðun á Akureyri en lamparnir frá Jóhanni Rönning. Valdimar sagði að um mjög hagstætt verð hafi verið að ræða.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.