Bændablaðið - 28.09.2004, Page 7
Þriðjudagur 28. september 2004 7
Margir kannast við vísur séra
Helga Sveinssonar, sem var
prestur í Hveragerði á sinni tíð.
Hann var snilldar hagyrðingur og
mér er sagt að eftirfarandi vísa sé
eftir hann:
Margur er kátur maðurinn
og meyja hneigð fyrir gaman
en svo kemur helvítis heimurinn
og hneykslast á öllu saman.
Gisin kirkja
Þessi vísa mun einnig vera eftir
hann og þarfnast ekki skýringa.
Mig langar stundum ósköp til að
yrkja
um unaðsfagur vor og litrík blóm
en finnst ég eins og gömul gisin
kirkja
sem grætur yfir því að vera tóm.
Fjóshaugurinn
Valdimar Gunnarsson kennari
sendi þessa vísu á Leir og sagði
hana vera frá Húsavík
Þegar hinsta fjöðrin fer
og fjóshaugurinn hrynur
og hvergi er hægt að hreykja sér
þá hugsa ég til þín, vinur
Snilldin tær
Elías Mar rithöfundur orti þessa
slitrubandavísu um kunningja
sinn:
Anta - jafnan etur - bus,
einnig Pega - ríður - sus,
spíri - því ei teygar - tus
Thorla - kappinn frækn - cius.
Getuleysi
Séra Hjálmar Jónsson segir svo
frá: Árni Johnsen getur átt spretti í
ljóðagerð, ekki langa, en samt.
Og hann átti part af hálkuvísunni.
Einu sinni var hann að basla
sama vísu og hún endaði engan
veginn. Þá missti ég saman
þessa:
Árna Johnsen þekkir þjóð
og þolir af honum hrekki.
Gjarnan vill hann gera ljóð
en getur það bara ekki.
Slóttugur nörd
Mikið var ort um Hannes
Gissurarson þegar bókin Halldór
kom út í fyrra. Jón Ingvar Jónsson
orti þessa limru:
Hann Hannes vor hatar að slóra
og hamast víst minnst á við fjóra.
Hann sló inn í vörd,
sá slóttugi nörd,
um sexhundruð síður frá Dóra.
Slæm í fótunum
Stefán Vilhjálmsson sendi þessa
vísu á Leir en sagðist ekki vita
eftir hvern hún væri
Nú er ég með á nótunum,
næ því pilta hylli,
frekar slæm í fótunum
en feikna góð á milli.
Himins vangaskeggið
Þessi vísa var eitt sinn birt á Leir
og spurt um höfund en ég hef
ekkert svar séð.
Blæs í fangið, breytt er átt,
boðar stranga hreggið.
Niður hangir hélugrátt
himins vangaskeggið.
Mælt af
munni fram
"Lánasjóðurinn veitir lán til fjár-
festinga eða framkvæmda og lán
mega nema allt að 65% af kostnaði
eða virði veðandlags. Undanfarin ár
hefur sjóðurinn betur mætt fjárþörf
bænda vegna fjárfestinga og
framkvæmda og möguleikar hans til
skuldbreytinga og
endurfjármögnunar hafa batnað.
Lánsupphæðir til einstakra bænda
hafa hækkað og ekki einsdæmi að
þær nemi milli 50 og 60 millj. kr.
En það eru ekki upphæðirnar sem
skipta megin máli, heldur hver þörf
bændanna er og á hvaða kjörum
fjármagnið býðst. Ég tel að við séum
við með lægstu vextina og bestu
kjörin", segir Guðmundur.
Mun Lánasjóðurinn lækka vexti
líkt og aðrar fjármálastofnanir og
fyrirtæki hafa gert á síðustu
vikum?
"Lánasjóðurinn hefur haft það
að leiðarljósi að bjóða bændum sem
best kjör, enda lögbundin skylda
hans. Við höfum litið svo á að allir
bændur ættu að sitja við sama borð,
þannig að þeir nytu allir
vaxtalækkanna. Þetta hefur orðið til
þess að sjóðurinn hefur hækkað
vexti mun minna en bankarnir
undanfarin ár, en þýðir auðvitað líka
að vexti sjóðsins lækka minna en
ella þegar vextir lækka aftur. Við
höfum rætt hvort stíga eigi sama
skref og Íbúðalánasjóður og
bankarnir og láta nýja lánþega njóta
þeirra kjara sem hægt er að bjóða nú,
ef ekki er lækkað jafnframt á þeim
sem eru með eldri lán. Vaxtalækkun
hafur verið rædd hjá sjóðnum og ég
á frekar von á að vextir lækki 1. okt.
nk."
En hvað er sjóðurinn að lána
einstökum bændum mikið fé?
Guðmundur segir að í raun sé
ekkert hámark á lánveitingum
sjóðsins. Lánveitingar sjóðsins séu
misháar eftir viðfangsefnum, veltu
og veðum. Sem dæmi um lána-
möguleika segir hann að sjóðurinn
geti lánað til framkvæmda og jarða-
kaupa allt að 35 millj. kr. á 3,85%
vöxtum og auk þess 2,3 millj. kr. til
bústofnskaupa á 4,85%.
Meðalvextir af slíkum pakka séu
3,91% en ef tekið er viðbótarlán að
upphæð 10 millj. kr. verða
meðalvextir 4,45% og 4,81%, ef
viðbótarlán nemur 20 millj. kr.
Meðalútlánavextir sjóðsins sl. ár
voru til samanburðar innan við
4,5%.
Það hefur verið nefnt að bankarnir
geti ekki boðið bændum eins góð
kjör og ella vegna þess að
Lánasjóðurinn krefjist ætíð fyrsta
veðréttar. Eru hugsanlegar
breytingar á því fyrirkomulagi?
"Þetta er lögbundið og ekki á
færi sjóðsins að gera þar á breyt-
ingar. Það hefur hins vegar verið
ágætt sátt um að bændurnir nytu
þeirra lána sem þeir hafa fengið hjá
sjóðnum upp að ákveðnu marki. Ég
efast um að það sé í þágu bændanna
að gera þarna breytingar á. Verði
það gert, gætu möguleikar sjóðsins
til lánveitinga til einstakra bænda
skerst, m.a. vegna 65% reglunnar.
Það er þó rétt að benda á að þau kjör
sem bankarnir og aðrir bjóða nú eru
bundin við 1. veðrétt."
Er skylduaðild bænda að
Lánasjóði landbúnaðarins orðin
tímaskekkja? Hvað fer mikið af
búnaðargjaldinu beint til
Lánasjóðsins?
"Það er nú varla um aðild að
sjóðnum að ræða, en greiðslu bún-
aðargjalds fylgir möguleiki á lánum
með betri kjörum. Það eru sjálfsagt
skiptar skoðanir á þessu fyrir-
komulagi, en þetta er leið grein-
arinnar til að auðvelda nýliðun og
uppbyggingu. Að mínu mati hefur
þetta reynst greininni í heild farsælt
og tryggt betur en ella að allir
bændur hefðu aðgang að fjármagni,
óháð búgrein eða búsetu."
Guðmundur segir það er
breytilegt eftir búgreinum hve mikið
þær greiða til sjóðsins. Flestar
búgreinar greiði 0,5%, kúabændur
greiði þó 0,85%, sauðfjárbændur
0,8% og garðyrkjubændur 0,35%.
Að meðaltali sé þetta ekki fjarri því
að vera um 0,7% af veltu þeirra
greina sem greiða búnaðargjald.
En hvað er þá t.d. kúabóndi sem er
með 300 þúsund lítra framleiðslu
að greiða til sjóðsins í formi
búnaðargjalds?
"Miðað við 25 millj. kr. árlega
veltu greiðir hann um 215 þús. kr. til
sjóðsins. Hafi viðkomandi fengið 20
millj. kr. lán hjá sjóðnum á 3,85%
vöxtum fær hann til baka 230 þús.
kr. í formi vaxtasparnaðar m.v. 5%
vexti og 430 þús. kr. ef miðað er við
6% vexti. Sauðfjárbóndi með 600
kindur og jafnmikið greiðslumark
greiðir á sama hátt u.þ.b. 55 þús. kr.
og garðyrkjubóndi með 20 millj. kr.
veltu 70 þús. kr."
Telur þú að nú þegar vextir hafa
lækkað að einhver tilgangur sé
með starfrækslu sjóðs eins og
Lánasjóðsins?
"Ég tel að það hafi reynst
bændum happadrjúgt að þeir héldu
"sínum" sjóði þegar sjóðir annarra
atvinnuvega hurfu inn í
fjármálakerfið. Kjör bænda hjá
sjóðnum hafa bæði hvað varðar
vexti, lánstíma og önnur kjör verið
hagstæðari en þeim hefðu annars
boðist og menn verða að hafa í huga
að hjá sjóðnum eru rúmir þrír
milljarðar króna "í vinnu" fyrir
bændur. Sú vaxtalækkun sem nú er
orðin er ánægjuleg, en við vitum
ekki hve varanleg hún verður. Ég tel
því rétt að menn sjái hvað úr þessu
verður, en ef bændur kæmust að
þeirri niðurstöðu að það sé ekki í
þeirra þágu að starfrækja Lánasjóð
landbúnaðarins, þá væru það skýr
skilaboð."
Eru einhverjar breytingar
framundan hjá sjóðnum?
"Við munum halda áfram að
bæta starfshætti sjóðsins með því að
einfalda lánareglurnar, fækka vaxta-
flokkum, einfalda og auðvelda
umsóknarferlið og fella niður
sérstakar takmarkanir og frávik í
lánveitingum til einstakra verkefna.
Sjóðurinn mun áfram krefjast
tryggra veða en leggja jafnframt
áherslu á rekstrarhæfi og greiðslu-
getu. Við viljum leggja okkur í líma
við að þjónusta bændur að því marki
sem okkur er unnt og gera það á
skjótan, einfaldan og skýran hátt"
sagði Guðmundur að lokum. /TB
Bændum bjóðast nú breytileg kjör á lánamarkaði og hefur umhverfið tekið
nokkrum breytingum síðustu mánuði. Bændablaðið hefur heimildir fyrir því
að bankar hafi boðist til að greiða upp lán frá Lánasjóðnum og boðið
bændum "heildarpakka" hvað fjármögnun áhrærir. Til eru bændur með
fjárþörf á bilinu 40-80 milljónir króna og þeir hafa þurft að leita fjármagns
utan sjóðsins. Bændablaðið óskaði álits Guðmundar Stefánssonar,
framkvæmdastjóra Lánasjóðsins á þessu og ræddi við hann um
lánamarkaðinn.
Líklegt að Lána-
sjóður landbúnaðar-
ins lækki vexti
Á Írlandi eru 69% kúabúa nautakjötsfram-
leiðslubú en greinin hefur mun meira vægi þar í
landi en t.d. á Bretlandi og í Frakklandi. Flest eru
holdanautabúin mjög lítil, um eða innan við 10
kýr, en meðalstærðin er um 15 holdakýr. Margir
nautakjötsframleiðendur kaupa þó kálfa af mjólk-
urframleiðendum og ala þá til slátrunar. Heildar-
fjöldi kúa á Írlandi árið 2001 var 2.358 þús. kýr,
þar af 1.125 þús. holdakýr. Mjólkurkúm hefur þó
fækkað síðustu ár á meðan holdakúm hefur fjölgað
allnokkuð og nálgast nú hlutfallið um 50:50. Al-
gengasta holdakynið er Charolais, um 46%, þá
Limousine 25% og Simmental rúm 9%. Belgian
Blue er notað í um 8% tilvika en er umdeilt þar
sem kálfar af þessu kyni valda oft burðarerfið-
leikum og í hreinrækt eru Belgian Blue kálfar
undantekningarlaust teknir með keisaraskurði. Alls
kyns blendingsræktun er viðhöfð. Algengast er að
blanda saman Holstein/Friesian og Hereford eða
Angus og kvígurnar af því seldar sem holdakýr.
Þessar holdakýr eru gjarnan sæddar með kynjum
með meiri vaxtarhraða, oftast Charolais eða jafnvel
Simmental en kvígurnar frekar með Limousine
sem gefur minni burðarerfiðleika.
Meðalfallþungi af uxum um 330 kg
Burðartími holdakúnna er nokkuð árstíða-
bundinn og þannig eru flestir burðir holdakúa í
apríl til júní eða rétt tæp 50%. Um 37% bera á
tímabilinu janúar til og með mars, 9% í júlí til
september og aðeins 7% í vetrarbyrjun, þ.e.
október til desember. Nautin eru nánast undan-
tekningarlaust gelt eða í 95% tilvika. Meðal-
fallþungi er um 330 kg af uxum en kvígurnar eru
nokkru léttari eða um 280 kg. Flestum gripum er
slátrað við 22-25 mánaða aldur eða þegar seinni
gripagreiðsla frá ESB hefur farið fram. Um 44%
gripa fara í R- kjötflokk skv. EUROP flokkun-
arkerfinu og 37% í O. Þannig er flokkun vart nægi-
lega góð samanborið við önnur Evrópulönd enda
er vaxandi áhugi á hreinræktuðum Friesian kúm
hjá þeim kúabændum sem selja kálfa til lífs þar
sem þær gefa þéttvaxnari holdakýr en Holstein-
blandaðar Friesian-kýr.
Írskir bændur fá 240-250 krónur fyrir kg. af
nautakjöti auk margvíslegra styrkja
Nautakjötsframleiðslan veltir um 1.380
milljónum eða 33% af heildarlandbúnaðarfram-
leiðslu á Írlandi. Mikill meirihluti nautakjötsins er
fluttur út eða 85%. Umtalsverður fjöldi nautgripa
er fluttur út lifandi eða um 10% veltunnar af nauta-
kjötsframleiðslunni. Langstærsti nautakjöts-
markaðurinn er Bretland með um 53% markaðs-
hlutdeild og síðan kemur Rússland með um 15%.
Flestir gripa sem eru fluttir út á fæti fara til Spánar.
Verð til bænda fyrir nautakjöt er um 240-250
ISK/kg eða um 10-15% lægra en hérlendis. Þar
Nautakjötið vegur þungt í írskum landbúnaði
Nautakjötsframleiðsla er
mjög mikilvæg búgrein á
Írlandi, hefur t.d. mun meira
vægi en á Bretlandi og í
Frakklandi.
Framhald á bls. 31
Guðmundur Stefánsson.