Bændablaðið - 28.09.2004, Blaðsíða 9

Bændablaðið - 28.09.2004, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 14. september 2004 9 Kjötmjölsverksmiðjunni í Hraungerðishreppi hefur verið bannað að selja afurðir sínar í heilt ár. Verksmiðjan framleiddi kjötmjöl og fitu úr sláturúrgangi á öllu Suður- og Suðvesturlandi. Við kúariðufaraldur sem kom upp í Evrópu stöðvaðist út- flutningur á kjötmjöli og í fram- haldi af því bannaði landbúnað- arráðherra verskmiðjunni alla sölu á afurðum sínum. Kjötmjöl hafði fram að því verið selt utan og til innlendra loðdýrabænda og einnig sem áburður. Fitan hafði verið notuð bæði til eldis loðdýra og svína. Smitefni riðu hefur aldrei fundist í fitu og talið er að það eyðist í framleiðslu kjötmjöls sé það hitað nógu hátt og lengi, eins og Kjötmjöl gerði. Sölubannið leiddi til þess að fyrirtækið Kjötmjöl varð gjald- þrota og Búnaðarbankinn keypti rekstur þess og stofnaði nýtt fyrir- tæki, Förgun, utan um reksturinn. Núna er allur sláturúrgangur hita- meðhöndlaður í verksmiðju Förgunar og síðan urðaður á aðal sorpurðunarstað Suðurlands í Kirkjuferjuhjáleigu í Ölfusi. Úr hluta úrgangsins er unnin fita sem notuð er til brennslu á kötlum verksmiðjunnar og þá fellur til mjöl sem er líka urðað. Torfi Áskelsson, framleiðslu- stjóri Förgunar, fór nýverið á fund landbúnaðarráðherra og gerði honum grein fyrir því að annað- hvort fengi verksmiðjan leyfi til að selja loðdýrabændum fitu og mjöl og hefja útflutning kjötmjöls aftur eða verksmiðjunni yrði endanlega lokað. "Við erum með kaupanda að kjötmjöli í Asíu," segir Torfi. "Við erum að borga rúma milljón á mánuði í kostnað við urðun sem er að sliga reksturinn. Með afléttingu sölubannsins getum við selt mjöl til Asíu og til loðdýrabænda innanlands og losnað við fituna bæði í loðdýrafóðri og til brennslu í verksmiðjunni. Annars lokar verksmiðjan og þá verða menn að finna aðra leið til að farga sláturúrganginum." /Soffía. Sláturúrgangur er hitameðhöndlaður í kjötmjölsverksmiðju Förgunar og fluttur til urðunar. /Bbl. Soffía. "Við tökum ekki við neinum sýktum afurðum," segir Torfi. "Hér er ekki tekið við afurðum af fé sem skorið er niður vegna riðusmits, ekki af neinum skepnum sem vitað er til að séu sjúkar og ekki við neinu nema frá viðurkenndum sláturleyfishöfum og kjötvinnslum. Ég má fara út í búð og kaupa kjöt í matinn, sem kemur frá sláturhúsum og kjötvinnslum hérna," bendir Torfi á, "en ég má ekki selja hitameðhöndlaðan sláturúrgang frá þessum sömu aðilum, til að bera undir tré eða til að fóðra loðdýr, af því að það felur í sér hættu á riðusmiti. Hver sér glóru í svona ákvörðunum?" Ófremdarástand í málefnum Kjötmjölsverksmiðjunnar í Hraungerðishreppi Ráðherra beðinn um að aflétta sölubanni Guðmundur Tryggvi Ólafsson, um- hverfisfræðingur hjá Sorpstöð Suðurlands, segir algjörlega óvið- unandi að taka aftur upp urðun ómeð- höndlaðs sláturúrgangs. "Þessi úrgangur er fljótandi, sérstaklega í sláturtíð, þá verður urðunarsvæðið að fúamýri og hætta á að úrgangurinn vaðist út. Hann má heldur ekki vera á yfirborði í lok dags. Ómeðhöndlaður sláturúrgangur er það sem meindýr hafa áhuga á, ekki kjötmjölið. Hann getur líka innihaldið sjúkdómsvaldandi örverur eða smitefni sem drepast í vinnsluferli kjötmjöls. Eftir meðhöndlun er efnið aðeins 30% af því sem það væri annars og þurrara og meðfærilegra til urðunar. Annars er urðun kjötmjöls sorgleg meðferð á góðu áburðarefni og engin rök fyrir að farga því. Um allan heim er verið er að þrengja reglur sem heimila urðun á sláturúrgangi og lokun verksmiðjunnar væri mikil afturför," segir Guðmundur.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.