Bændablaðið - 28.09.2004, Síða 10
10 Þriðjudagur 28. september 2004
Um síðustu áramót fundu
margir svínabændur fyrir því að
fóðrið sem þeir keyptu til að gefa
dýrunum var ekki eins og það átti
að sér að vera. Óvenjumikið var
um rusl og mylsnu í korninu og
þess voru jafnvel dæmi að sandur
og grjót gerði vélum sem þeir nota
við fóðrun svínanna erfitt fyrir.
Nokkur fjöldi bænda kvartaði yfir
þessu til Aðfangaeftirlitsins sem
hefur það hlutverk að fylgjast með
gæðum fóðurs, áburðar og sáðvöru
sem notuð er í íslenskum land-
búnaði. Afdrif þeirra kvartana má
fræðast um í rammaklausu sem
birt er hér á síðunni. Sú saga vekur
hins vegar upp forvitni um starf-
semi Aðfangaeftirlitsins og þess
vegna bað Bændablaðið Ólaf
Guðmundsson, forstöðumanns
þess, að segja frá því.
Aðfangaeftirlitið starfar að
mestu leyti í krafti laga og reglu-
gerða sem byggjast á reglum
Evrópusambandsins um heilbrigði
dýra og matvælaöryggi. Þær reglur
tóku miklum breytingum í kjölfar
kúariðunnar og annarra áfalla sem
evrópskur landbúnaður varð fyrir
um aldamótin og tóku þær
breytingar flestar gildi á árunum
2001-2 þótt sumt sé enn að
breytast.
Reglurnar sem Íslendingar
verða að hlíta varðandi gæði og
hreinleika fóðurs og sáðkorns er
að finna í viðaukum við EES-
samninginn. "Þótt við séum
undanþegin reglum um lifandi dýr
og plöntuheilbrigði þá nær undan-
þágan ekki til fóðurs, áburðar og
sáðvöru. Hvað hin sviðin varðar
þá verðum við líka að laga okkar
reglur að regluverki ESB af þeirri
einföldu ástæðu að við þurfum að
eiga viðskipti við ESB-ríkin,"
segir Ólafur.Samkvæmt þessum
reglum ber Aðfangaeftirlitinu að
fylgjast með gæðum og hreinleika
fóðurs, áburðar og sáðvöru sem er
á markaði hér á landi og gildir það
bæði um innflutning, sölu og
dreifingu erlendrar vöru og
framleiðslu og viðskipti með
innlenda vöru.
Eftirlitið eykst
Reglugerðin um fóður sem
Aðfangaeftirlitið starfar eftir var
sett árið 2001 en síðan hefur henni
verið breytt fjórtán sinnum og
segir það sína sögu um þær öru
breytingar sem orðið hafa og eru
að verða á þessu sviði.
"Það sem helst hefur breyst er
að efnum sem notuð eru við fram-
leiðslu fóðurs er sífellt að fjölga,
til dæmis hafa bæst inn í
reglugerðina ýmis ensím eða
efnahvatar. Einnig hefur óleyfi-
legum efnum fjölgað, til að mynda
var bannað að nota kjötmjöl við
framleiðsluna í kjölfar kúafársins,"
segir Ólafur.
Hann bætir því við að enn séu
ekki komin nein ákvæði um erfða-
breytt fóður en að þau séu væntan-
leg á næstunni. "Það hafa verið
settar reglur um erfðabreytt
matvæli og fóður í Evrópusam-
bandinu og reglurnar um fóðrið
taka gildi hjá okkur. Þar er meðal
annars kveðið á um að allt fóður
sem framleitt er með erfðabreytt-
um plöntum skuli sérstaklega
merkt á umbúðum. Einnig þarf að
vera hægt að rekja það til fram-
leiðandans og Aðfangaeftirlitinu
ber að hafa eftirlit með þessu.
Árið 2006 verður einnig sú
breyting að eftirlitið nær til fram-
leiðslu bóndans á fóðri til eigin
nota, en hingað til hefur Aðfanga-
eftirlitið eingöngu fylgst með
framleiðslu fóðurs til dreifingar og
sölu. Þegar sú breyting tekur gildi
þarf að auka eftirlitið heima á
bæjunum. Loks hefur ESB sett á
fót eftirlit sem á að fylgjast með
að eftirlitsstofnanir landanna
standi sig í stykkinu. Hvað okkur
varðar sér eftirlitsstofnun EFTA
um það eftirlit."
Breyttar áherslur
Ólafur segir að þessar
Evrópureglur hafi haft veruleg
áhrif á starfsemi Aðfangaeftir-
litsins. "Þegar ég hóf hér störf árið
1997 var ég eini starfsmaðurinn og
það segir sig sjálft að ég gat ekki
framfylgt öllum þessum reglum.
Við höfðum til dæmis eingöngu
eftirlit með fiskimjöli sem fór á
innanlandsmarkað. Eftirlitsstofnun
EFTA gerði þá athugasemd að þar
sem EES-svæðið er einn markaður
yrðum við að hafa sams konar
eftirlit með öllu fiskimjöli og fóðri
sem framleitt væri í landinu, hvort
sem það væri til útflutnings eða til
nota innanlands. Það höfum við
svo gert að því frátöldu að
Fiskistofa fylgist með hreinlæti í
verksmiðjunum eins og í öðrum
fiskvinnsluhúsum. Þetta jók að
sjálfsögðu verulega verkefni okkar
því hér eru framleidd um 200.000
tonn af fiskimjöli á hverju ári og
mikið af lýsi sem notað er í fóður.
Önnur breyting sem hefur
orðið er að áður var aðalverkefni
Aðfangaeftirlitsins að fylgjast með
gæðum fóðursins, að það stæði
undir þeirri lýsingu sem fram-
leiðandinn setti á umbúðirnar. Nú
beinist eftirlitið fyrst og fremst að
óæskilegum og bönnuðum efnum,
svo sem díoxíni og þungmálmum í
fóðurefnum og að skordýra- og
sveppaeitur sé ekki yfir leyfilegum
mörkum í korni. Þetta hefur
náttúrlega bitnað á eftirliti með
næringarefnum, það segir sig
sjálft. Þetta helst í hendur við
breytingu sem varð hjá ESB þegar
matvælaöryggið varð aðalatriðið
en ekki næringargildið í fóðrinu."
Dýrar rannsóknir
Nú hefur starfsfólki Aðfanga-
eftirlitsins fjölgað í tæplega fjögur
stöðugildi. En hefur atvinnu-
greinin sem því er gert að fylgjast
með ekki breyst?
"Jú, hún tekur stöðugum
breytingum. Nú geta bændur ýmist
blandað fóðrið sjálfir eða keypt
Reglugerðinni breytt fjórtán
sinnum á þremur árum
Það hefur verið sótt að svínabændum úr
ýmsum áttum undanfarin misseri. Verð á
svínakjöti til framleiðenda hefur lækkað
verulega á sama tíma og verð á korni og
öðru fóðri hefur hækkað hressilega. Þegar
við bættist að vélakostur svínabúanna fór
að slitna óeðlilega hratt vegna aðskotahluta
í fóðurkorninu þótti þeim skörin vera að
færast upp í bekkinn. Þeir kvörtuðu til
Aðfangaeftirlitsins og fóru fram á að
stofnunin gerði athugun á því hvers vegna
gæðum kornsins hefði hrakað svo mjög.
Ingvi Stefánsson, formaður svína-
bænda, sagði að bændur hefðu um síðustu
áramót orðið varir við að mylsna og rusl
væri í korninu. Það fór einnig að bera á sliti
í vélbúnaði sem rakið var til þess að í
korninu leyndist bæði sandur og grjót.
Einnig leiddu léleg gæði kornsins til þess
að gefa þurfti svínunum meira og það
munar um það í rekstrinum því fóðrið er
langstærsti útgjaldaliður svínabúanna.
Allt að 20% mylsna og rusl
Aðfangaeftirlitið heimsótti tvö býli,
annað á Norðurlandi sem keypti sitt korn
hjá Bústólpa, hitt á Suðurlandi sem var í
viðskiptum við Mjólkurfélag Reykjavíkur.
Tekin voru sýni úr kornvörunni og reyndust
niðurstöðurnar athyglisverðar. Í hveiti sem
keypt var hjá Bústólpa reyndust 15,5% vera
sandur og mulningur og 8,6% af bygginu
var sama eðlis. Auk þess fannst grjót í
sýnunum. Í maís frá MR voru 19,9%
mylsna og stönglar en þar var enginn
sandur og heldur ekki í bygginu sem
reyndist þó innihalda 14% af hálmi og
mulningi. Á sama tíma tók stofnunin sýni
úr tveimur skipum sem komu með korn til
landsins. Í þeim var talsvert af mulningi en
enginn sandur.
Að sögn Ólafs Guðmundssonar hjá
Aðfangaeftirlitinu var rætt við fóðursalana
sem ekki vildu kannast við að neitt væri í
ólagi hjá þeim. Vildu sumir kenna bændum
sjálfum um og settu fram ýmsar skýringar,
svo sem þá að þeir beittu hringdælingu
þannig að þeir söfnuðu til dæmis ryki og
mulningi sem til félli til að nýta hráefnið
betur og að þetta gæti orsakað uppsöfnun í
tönkunum. Þessu mótmæla svínabændur og
benda á að sýnin hafi verið tekin úr
tönkunum áður en korninu var dælt inn á
fóðurkerfi. Að sögn Ólafs voru
fóðursalarnir beðnir að skoða hlutina hjá
sér og það virðist hafa borið árangur því nú
í sumar var ástandið kannað aftur og hafði
þá batnað til mikilla muna.
Ekki kvaðst Ólafur hafa skýringu á því
hvað þarna hefði gerst. Hugsanlega hefði
verið um að ræða einn eða fleiri farma sem
hefðu verið með óvenjulega miklu ryki og
mulningi en um það væri erfitt að segja.
"Það gerir okkur erfitt fyrir í þessu máli
að reglurnar sem við störfum eftir eru
frekar óljósar hvað gæði snertir. Þar segir
einungis að fóðrið skuli vera heilbrigt og af
háum gæðaflokki, en um þessi hugtök er
hægt að deila. Við eigum líka erfitt um vik
að taka sýni því fóðrinu er yfirleitt dælt í
turna á bæjunum og við komumst einungis
til að taka sýni neðst í þessum turnum. Þar
gæti verið meira af mylsnu og hálmi en
ofar í turnunum, um það vitum við ekki.
Það verður líka að hafa það hugfast að korn
er selt sem hrávara svo það eina sem við
getum gert er að ráðleggja bændum að sigta
kornið áður en það er sett í vélarnar."
Verðhækkanir og fákeppni
Ingvi Stefánsson sagðist ekki hafa neina
einhlíta skýringu á því af hverju gæðum
kornsins hefði hraka svona tímabundið.
Væntanlega hefur korninnflytjandinn keypt
lélegra korn en hann var vanur. Ólafur
kannaðist ekki við þetta og sagði að kornið
væri keypt hjá mörgum fyrirtækjum í
Kanada, Bandaríkjunum og Evrópu. Það
væru engir opinberir alþjóðlegir
gæðastaðlar á fóðurkorni sem næðu yfir
þetta en samkeppnin væri hörð og enginn
vildi láta á sig sannast að hann seldi lélega
vöru.
Það jók svo enn á óánægju svínabænda
að á sama tíma og þeir glímdu við þetta
lélega korn máttu þeir sæta miklum
verðhækkunum á fóðrinu. Verðið hækkaði
um 30% frá áramótum og fram á sumar.
Ingvi sagði að þetta hefði átt sér eðlilegar
orsakir framan af því verð á korni á
alþjóðamörkuðum hækkað talsvert fram
eftir árinu. Þannig hafi verð á sojamjöli til
að mynda verið hærra en nokkru sinni fyrr
á fyrri hluta ársins.
"Hins vegar fór verðið að lækka í vor
en sú lækkun var mjög lengi að skila sér til
okkar, það er raunar ekki fyrr en nú í haust
sem það gerist. Við teljum að fyrir þessu sé
meðal annars sú ástæða að fóðursalar séu
að bæta sér upp tap sem þeir hafa orðið
fyrir að undanförnu vegna gjaldþrota í
svína- og kjúklingarækt. Þeir virðast ætla
að afskrifa þetta tap á kostnað þeirra sem
enn lifa í greininni," sagði Ingvi.
Mylsna og rusl, sandur og grjót
-í allt að fimmtungi sýna, sem tekin voru úr fóðurkorni, sem íslenskir svínabændur keyptu snemma á þessu ári
- Breytingar á starfsemi Aðfangaeftirlitsins hafa verið örar en hún fylgir að mestu
reglum Evrópusambandsins um matvælaöryggi og dýraheilbrigði
Guðmundur Leifsson, verksmiðjustjóri hjá Mjólkurfélagi Reykjavíkur, var í óða önn að skipa upp evrópsku byggi
þegar ljósmyndara bar að garði. Farmurinn í þessu skipi var á bilinu 1.600 – 1.700 tonn. Íslenskir bændur
framleiða um 8.000 tonn af byggi árlega svo það fer nærri að áætla að skipsfarmurinn sé ígildi fimmtungs
ársframleiðslu íslenskra kornbænda. Samskipti Aðfangaeftirlitsins við fóðurinnflytjendur felast m.a. í því að skrá
vörurnar, gefa upplýsingar til tollayfirvalda og taka eftirlitssýni. Til að fyrirbyggja að flutt sé til landsins vara sem
ekki hefur verið skráð hjá Aðfangaeftirlitinu eru skjöl skoðuð við innflutning og gengið úr skugga um að varan
falli að þeim reglum sem í gildi eru, m.a. að því er varðar hollustu, heilbrigði og umhverfisvernd.