Bændablaðið - 28.09.2004, Page 12

Bændablaðið - 28.09.2004, Page 12
12 Þriðjudagur 28. september 2004 Verkið hefur gengið vel og var vefurinn formlega opnaður á Landsmóti hestamanna á Hellu sl. sumar af Jóni Alberti Sigurbjörns- syni, formanni LH, og Magnúsi Guðmundssyni, forstjóra LMÍ. Mikill fjöldi leiða er þegar kominn inn í grunninn og geta hestamenn skoðað vefinn á slóðinni http://atlas.lmi.is/reidleidir. Með því að smella á spurningamerkið neðst á skjánum fást upplýsingar um grunninn og hvernig á að nota hann. Um kynningarútgáfu er að ræða og eru hestamenn hvattir til að kynna sér hana vel og gera athugasemdir um endurbætur og leiðréttingar. Landssamband hestamannafé- laga keypti nokkur GPS tæki sl. sumar og dreifði til ferðafólks sem tók að sér að leggja verkefninu lið með því að safna punktum á ferðum sínum svo hnita megi leiðirnar inn í grunninn. Meðal annars safnaði ferðahópur sem fór frá Fonti á Langanesi alla leið á Reykjanestá punktum af þeirri leið og eiga þær upplýsingar eftir að nýtast vel í framtíðinni, en þetta mun vera í fyrsta skipti sem þessi langa leið er farin á hestum. Verkefnið er á undan áætlun og er það vel, en haldið verður áfram að vinna úr þeim gögnum er hafa borist í haust og vetur og svo mun söfnun punkta halda áfram enda verkefnið stórt í sniðum og verður ekki lokið á stuttum tíma. Hestamenn sjá um að safna gögnunum saman, Landmælingar skrá þau inn í grunninn og svo er það verkefni Vegagerðarinnar að flokka reiðleiðirnar og númera. Hestamenn sem eiga GPS punkta af ferðum sínum eru hvattir til að leggja verkefninu lið og afhenda gögn til LH, auk þess sem þeir sem hafa áhuga á málinu geta haft samband við skrifstofu LH vilji þeir taka að sér að skrá leiðir sem þeir þekkja. Allar upplýsingar um ástand og staðhætti leiða sem komnar eru í grunninn eru einnig vel þegnar. Það er von þeirra sem að verkefninu standa að það muni gagnast hestamönnum og öðrum ferðamönnum í framtíðinni og að hestamenn og heimamenn á hverjum stað taki því vel og að- stoði við upplýsingaöflunina. Að- standendur verkefnisins vilja jafn- framt koma á framfæri þökkum til þess fólks sem þegar hefur afhent gögn eða tók að sér að hnita punkta á ferðum sínum sl. sumar. /HG Reiðleiðir á vefnum Hestamenn safna hnit- settum upplýsingum Síðastliðið vor skrifuðu Landssamband hestamannafélaga, Land- mælingar Íslands og Vegagerðin undir samkomulag um skráningu hnitsettra upplýsinga um reiðleiðir í gagnagrunn á Netinu. Allstór hópur fólks fór á dögunum í Leppistungur, nokkru sunnan Kerlingafjalla, en þar er ágætur fjallaskáli fyrir leitarmenn og aðra vegfarendur. Tilgangurinn var að gera upp kofa, sem löngu er aflagður og engin veit hve gamall er, og bjarga þar með sögulegum verðmætum. Í vetur sem leið var stofnað félag í Hrunamannahreppi sem heitir: Áhugamannafélag um verndun sæluhúsa á afrétti Hrunamanna , skamm- stafað ÁSÆL. Félagsmenn eru nú tæplega 60. Sveitarfélagið og Bykó hafa styrkt verkið. Viðurkenndur hleðslumaður, Hallgrímur Helgason, fyrrum bóndi á Þorbrandsstöðum í Vopnafirði, var fenginn til að stjórna verkinu. Hann hefur meðal annars annast uppbyggingu og viðhaldi á Bustarfellsbænum í Vopnafirði, kom að því verki fyrst 17 ára gamall. Félagskapurinn ÁSÆL ætlar sér í framtíðinni að stuðla að bætri um- gengni á afréttinum, meðal annars að merkja gönguleiðir en æ fleiri gera sér grein fyrir því hve óendanlega mikil verðmæti við Íslendingar eigum í okkar víðáttumikla hálendi og ósnortnu náttúru. /Sig.Sig. Sögulegum verðmætum bjargað Brynjólfur Ottesen og Kristín Helga Ármannsdóttur eru bændur á Ytra Hólmi í Innri Akraneshreppi. Þau eru með 550 ær á fóðrum og Brynjólfur sæðir sjálfur yfir fengitímann um 150- 180 ær. Hann telur kosti sæðinganna ótvíræða, ræktunin sé markvissari og einstaklingarnir sterkari. Bændablaðið sló á þráðinn og ræddi við Brynjólf bónda um búskapinn. "Ég fór á námskeið á sínum tíma í sauðfjársæðingum sem haldið var á vegum Búnaðarsamtaka Vesturlands og hef stundað sæðingarnar síðastliðin fjögur ár. Eftir námskeiðið hætti ég alfarið að nota samstillingar og sæði blæsmur jafnóðum. Áður hafði ég notað svampa en reynsla mín af þeim var upp og ofan. Ég næ í sæðið daglega og get valið úr þegar kindurnar eru blæsma. Í einstaka tilfellum hef ég geymt sæðið yfir nótt og sætt daginn eftir. Þá var mér ráðlagt að setja ísmola ofan í brúsann og kæla niður undir núll gráður. Það er mun meiri áhætta við að geyma sæðið en það er þó hægt." Brynjólfur telur árangur af sæðingum góðan. "Með því að sæða ósamstillt er ekki óalgengt að ná svona 65- 70% árangri í sæðingunni. Mín reynsla af samstillingu með svamptöppum er um 50% árangur sem er öllu slakari haldprósenta". Sæðislömbin eru sterkari einstaklingar Sæðingarnar skipta miklu máli þegar ræktunarstarfið er annars vegar að mati Brynjólfs. "Maður nær miklu fyrr árangri til hins betra. Það er alveg greinilegt þegar farið er að stiga lömbin til lífs á haustin að sæðislömbin eru mun sterkari einstaklingar. Helstu eiginleikar sem ég leitast eftir í ræktuninni eru einfaldlega sem mest vöðvabygging og minnst fita. Um leið vill maður reyna að halda frjósemi uppi. Þeir hrútar sem ég á sjálfur eru nánast allir komnir til af sæðingum, sennilega um 80%." Metur hrútavalið út frá mörgum forsendum En hvað er það sem ræður hrútavalinu? "Það eru góðar upplýsingar sem liggja fyrir um hrútana en það þarf að taka tillit til fleiri þátta. Það getur t.d. verið mjög misjafnt hvernig hrútar reynast á hverjum stað - það getur skipt máli á hvernig landi ærnar ganga á með lömbin. Sumir hrútar henta t.d. ekki þar sem fé gengur á landi þar sem lömbin ná ekki mjög miklum þroska. Aðrir hrútar geta gengið betur upp við slíkar aðstæður. Í raun er þarna um samspil að ræða, milli hrúta, ærinnar og þeirra landgæða sem ærin gengur á. Það er mikilvægt að bændur meti m.a. hrútavalið út frá þessu að mínu mati." Fósturtalningin breytir miklu um vinnuhagræðingu Brynjólfur tók þátt í fósturtalningu í vetur og er ekki í vafa um ágæti hennar. "Mælingin var 98-99% örugg og það hefur mikið að segja með allt vinnulag. Vinnu- hagræðingin er hvað mest á sauðburði þegar vitað er hvaða kindur eru með eitt, tvö eða þrjú lömb. Sérstaklega er það þægilegt vegna einlembanna. Þegar þær eru með lambsóttina eru þær oft gráðugar í að stela lömbum frá öðrum kindum og þá er gott að venja undir þær. Það er nær algjörlega fyrirhafnarlaust að færa lömb á milli með þessum hætti þegar maður veit að hverju maður gengur. Einnig getur maður hagað fóðruninni eftir fósturtalningunni. Ég fóðra tví- og þrílembur með byggi síðla vetrar og einlemburnar fá góð hey. Gemlingar hafa fengið fiskimjöl." Ræktunarstarfið getur skapað sauðfjárbændum forskot Brynjólfur er ákveðinn í því að halda áfram að sæða á haustin og rækta sitt fé. "Ég er þeirrar skoðunar að um leið og sauðfjárbændur slaka á í ræktunarstarfi að þá fyrst tapist orrustan í samkeppninni við aðrar kjöttegundir. Meðan við reynum að halda áfram ræktunarstarfinu og bæta okkar kjötgæði og vænleika þá eigum við betri von" sagði Brynjólfur að lokum. Markvissari ræktun með sæðingum Sviðamessa í sjöunda sinn á Vatnsnesi Félagsskapurinn "Húsfreyjurnar" hefur veg og vanda af samkomu nokkurri er nefnist Sviðamessa og haldin verður í Hamarsbúð á Vatnsnesi laugardaginn 16. október nk. Þetta er mikil matarhátíð sem dregur nafn sitt af gamalli hefð þar sem eingöngu svið og meðlæti eru á borð borin. En svið eru ekki bara ný svið því þarna bjóðast þau einnig reykt og söltuð að ógleymdum sviðalöppum og reyktum kviðsviðum. Eins og á öðrum góðum mannamótum er veislustjóri á staðnum sem fer með grín og gamanmál og gestir taka vel undir í fjöldasöng við undirleik á harmoníku. 12 . október Útgáfudagur næsta Bændablaðs.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.