Bændablaðið - 28.09.2004, Síða 14
14 Þriðjudagur 28. september 2004
Um miðjan ágústmánuð sl. gerði
stjórn Framleiðnisjóðs land-
búnaðarins sér ferð um Vestfirði
og vitjaði viðfangsefna sem
leitað hefur verið stuðnings
sjóðsins við. Með í för var fram-
kvæmdastjóri sjóðsins og Sig-
urður Jarlsson héraðsráðu-
nautur Vestfirðinga til margra
ára. Slíkar ferðir eru árlegur
liður í starfi stjórnarmanna; að
kynna sér með þeim hætti
framgang nýsköpunarverkefna
sem FL hefur veitt brautargengi
með fjárframlagi. Yfirleitt eru
þetta tveggja daga ferðalög og
var svo að þessu sinni. Nátt-
staður og aðstaða til stjórn-
arfundar var fólki búin á
bernskuheimili formanns að
Kirkjubóli í Dýrafirði þar sem
systkini hans búa ásamt móður-
bróður sínum.
Alls var komið við á 15
stöðum í ferðinni en bæjarleiðir
mislangar. Á flestum staðanna var
verið að sinna ferðaþjónustu með
ýmsum hætti og greinilegt að með
batnandi vegum á Vestfjörðum
eygja menn aukna möguleika á því
sviði enda margt áhugavert að sjá
og skoða og við að vera. Það
virðist einkenna ferðaþjónustu
bænda á Vestfjörðum að hún er í
flestum tilvikum rekin samhliða
hefðbundum búskap og mátti
raunar heyra það viðhorf að
tryggara væri með heilsársbúsetu
ef saman færi. En bændur á Vest-
fjörðum fást við sitthvað fleira í
viðleitni til þess að styrkja afkomu
sína og búsetuskilyrði. Má þar
nefna raforkuframleiðslu, harð-
fiskverkun, þorskhausaþurrkun og
trjáplöntuframleiðslu sem dæmi.
Á meðfylgjandi mynd má sjá
Guðjón í Hænuvík, ferðaþjónustu-
bónda með meiru, lesa stjórn FL
pistilinn en eins og undir öðrum
fyrirlestrum reynist eitt og annað
verða til þess að dreifa athygli
áheyrenda, a.m.k. sumra.
Í Hænuvík er stunduð ferða-
þjónusta í tveimur húsum; annars
vegar í gamla bænum og svo í húsi
því sem er í bakgrunni mynd-
arinnar.
Um 1930 stofnuðu bændur í
Rauðasandshreppi til félagskapar
um slátrun og sölu búfjár og til
innkaupa á nauðsynjum. Félagið,
sem nefndist Sláturfélagið Ör-
lygur, reisti þetta hús á sjávar-
bakkanum í Hænuvík til móttöku
og geymslu á vörum félagsmanna.
Starfsemi félagsins fluttist síðar
inn að Gjögrum en vörugeymslu-
húsið stendur enn og þjónar þörf-
um ferðamanna eftir gagngerar
endurbætur.
Á myndinni eru, auk Guðjóns bónda Bjarnasonar, Ari Teitsson, Kjartan
Ólafsson, Þórhalla Snæþórsdóttir, Bjarni Guðmundsson, Jón G. Guð-
björnsson og Benjamín Baldursson. Myndina tók Sigurður Jarlsson.
Stjórn Framleiðnisjóðs fór um Vestfirði
Samningur hefur verið gerður á
milli ráðgjafarfyrirtækisins Alta
og Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri um beina aðkomu
nemenda skólans að ýmsum
verkefnum Alta er varða
byggðaskipulag.
Ráðgjafarfyrirtækið Alta ehf.
og Landbúnaðarháskólinn á
Hvanneyri hafa gert með sér
samning þar sem kveðið er á um
þátttöku nemenda á umhverfis-
braut t.d. í undirbúningi og fram-
kvæmd íbúaþinga. Markmiðið
með þessu samstarfi er að kynna
nemendum skólans samráðsferli,
einkum í tengslum við byggða-
skipulag. Nemendur verða þannig
virkir þátttakendur í skipulags-
tengdum verkefnum á vegum
Alta ehf. Jafnframt felur
samningurinn í sér samkomulag
um gestafyrirlesara frá Alta við
LBH.
Vonast er til að samningur
þessi verði til frekara samstarfs á
sviði ráðgjafar, rannsókna, nem-
endaverkefna og þess háttar við-
fangsefna. Sérstakir tengiliðir
verða tilnefndir innan Alta og
Landbúnaðarháskólans til að
fylgja samningnum eftir. Í tengsl-
um við undirskriftina færir Alta
skólanum bækur um samráðsferli
og samráðsaðferðir að gjöf.
Ráðgjafarfyrirtækið Alta hefur
verið leiðandi í samráðsverk-
efnum af ýmsu tagi, þ.á.m. á sviði
skipulagsmála. Þá má geta þess
að Alta opnaði fyrr á árinu útibú á
Vesturlandi, sem staðsett er í
Grundarfirði. Alta fagnar sam-
starfinu og telur að það geti skilað
báðum aðilum margvíslegum
árangri.
Samninginn undirrituðu
Magnús B. Jónsson, rektor Land-
búnaðarháskólans, og Halldóra
Hreggviðsdóttir, framkvæmda-
stjóri Alta ehf., að viðstöddum
Auði Sveinsdóttur og Kristínu
Þorleifsdóttur, kennurum við
skólann.
Nemendur
koma að
framkvæmd
íbúaþinga
Fjörutíu
pöntuðu
fánastangir
Búnaðarsamband Suðurlands
safnaði saman pöntunum á
fánastöngum og ljósastaurum og
leitaði síðan eftir verðtilboðum.
Alls bárust pantanir á 40
fánastöngum og 25
ljósastaurum. Valdimar
Bjarnason hjá BSS annaðist
þetta mál og sagði hann að
samið hafi verið við Bros-
auglýsingavörur í Reykjavík um
fánastangirnar. Síðan þurfa þeir
sem pöntuðu að sækja sína
stöng, hver fyrir sig, enda voru
pantanirnar allt frá Stykkishólmi
austur í Skaftafellssýslu.
Ljósastaurarnir koma frá
fyrirtækinu Sandblástur og
málmhúðun á Akureyri en
lamparnir frá Jóhanni Rönning.
Valdimar sagði að um mjög
hagstætt verð hafi verið að ræða.