Bændablaðið - 28.09.2004, Síða 19
Þriðjudagur 28. september 2004 19
Samtök áhugafólks um nautgriparækt á Norðurlöndum (NÖK) hélt fund í þorpinu Loen í Sognsfylki í Vestur-Noregi dagana 25.–28. júlí sl. Aldrei áður í
rúmlega hálfrar aldar sögu þessara áhugamannasamtaka hafa jafn margir þátttakendur sótt fundinn frá Íslandi og í þetta sinn. Á myndinni er stærstur
hluti íslensku þátttakendanna. Talið frá vinstri á myndinni: Stefán Tryggvason og Þórir Stefánsson, Þórisstöðum, Þórunn Magnúsdóttir,
Auðólfsstöðum, Ólafur Kristjánsson Geirakoti, Elvar Eyvindsson, Skíðbakka, Jóhann Bjarnason, Auðólfsstöðum, María Hauksdóttir, Geirakoti, Ásdís B.
Geirdal og Bjarni Guðmundsson, Hvanneyri, Arnaldur Stefánsson (fremst) og Inga Arnardóttir, Þórisstöðum, Jóna Sigþórsdóttir, Skíðbakka, Pétur
Diðriksson og Karítas Hreinsdóttir, Helgavatni, Bylgja Sveinbjarnardóttir og Sigurgeir Hreinsson, Hríshóli, Eiríkur Loftsson, Stefanía Birna Jónsdóttir,
Loftur Páll Eiríksson, Beingarði, Sigríður Magnúsdóttir og Guðmundur Steinar Björgmundsson, Kirkjubóli Önundarfirði, Elín Sigurðardóttir og
Jóhannes Torfason, Torfalæk II, Laufey Skúladóttir og Ásvaldur Þormóðsson, Stóru-Tjörnum, Gíslina Lóa Kristinsdóttir og Gunnar Guðmundsson,
Akranesi. Sitjandi fremst er Kári Eiríksson, Beingarði. Ljósmynd: Elvar Eyvindsson.
Góð
veiðihús
auka
vinsældir
veiðisvæða
Enginn vafi leikur á því að gott
veiðihús er einn þeirra þátta sem
veiðimenn horfa hvað mest til
þegar þeir velja sér veiðisvæði
kemur fram í skýrslu Hag-
fræðistofnunar HÍ um efnahags-
leg áhrif lax- og silungsveiða á
Ísland. Gerð var könnun á veiði-
húsum um allt land sem sýndi að
í mörgum þeirra er boðið upp á
fullkomna gistingu og fæði, auk
ýmiss konar þæginda. Tveggja
manna herbergi með baði, heitir
pottar og jafnvel gufubað þykja
nú orðið nær sjálfsögð þægindi,
auk þess sem góð aðstaða þarf að
vera til að verka aflann og
geyma, og fyrir veiðistangir,
vöðlur og annan búnað.
Í skýrslunni kemur einnig fram
að dæmi séu um ár og vötn sem
aldrei náðu verulegum vinsældum
fyrr en við þau hafði risið veiðihús
og að sama skapi eru margar sögur
til af veiðisvæðum sem án efa væru
mun betur sótt ef veiðihús eða kofi
væri til staðar. Óumdeilt er einnig
að verð á veiðileyfum hefur
tilhneigingu til að hækka á þeim
veiðisvæðum þar sem byggð eru ný
hús eða hin gömlu tekin í gegn.