Bændablaðið - 28.09.2004, Qupperneq 20

Bændablaðið - 28.09.2004, Qupperneq 20
20 Þriðjudagur 28. september 2004 Réttað var í Þverárrétt á dögunum og var það var mál manna að dilkar væru í meðallagi vænir í ár. Áætlaður fjárfjöldi var rétt innan við 20 þúsund en Þverárrétt er ein sú fjárflesta á landinu. Í upprekstrarfélagi Þverárréttar er stærsta sauðfjárbú landsins, Höfði í Þverárhlíð en þar býr ásamt fleirum markakóngurinn Sigurður Bergþórsson sem er skráður fyrir 21 marki í nýútkominni markaskrá Mýrasýslu 2004. Þverárrétt í Þverárhlíð er mikið mannvirki en réttin hefur nýlega verið endurbætt og máluð. Hún er ein stærsta steinsteypta rétt landsins en fyrrum voru þar haldnar hrossaréttir og því eru réttarveggirnir svo háir. "Það eru forréttindi að geta ferðast svona um landið og ræða við ferðaþjónustubændur um starfsemina, hrósa því sem vel er gert og koma með ábendingar um það sem betur má fara. Það er al- mennt góð samstaða hjá ferða- þjónustubændum sem er mikil- væg, sérstaklega fyrir áfram- haldandi samstarf í tengslum við vöruþróun og markaðs- og kynningarmál," segir Berglind og leggur áherslu á mikilvægi þess að heimsækja félagsmenn reglulega. Það skipti máli að vita hvernig aðstaðan er á hverjum stað og halda uppi ákveðnu gæðaeftirliti og síðast en ekki síst eru persónu- leg tengsl ómetanlegur þáttur. Á næstu árum er þó ólíklegt að allir bæir verði heimsóttir á einu og sama árinu en í framtíðinni er litið til þess að bæir verði teknir út á 2ja-3ja ári fresti. Flokkun gististaða og herbergja Breytingar í kynningarbæk- lingi Ferðaþjónustu bænda verða að veruleika næsta sumar. Í fram- setningu í bæklingi verður gerður greinarmunur á heimagistingu, gistihúsum bænda, sveitahótelum og sumarhúsum auk þess sem IV. flokkur herbergja verður til. Nú eru flokkarnir þrír: I. fl. (einföld herbergi), II. fl. (herbergi með handvaski) og III. fl. (herbergi með baði), en með tilkomu IV. flokks er um að ræða herbergi með baði þar sem þjónusta og aðbúnaður er meiri en í III. fl. Þá stendur einnig til að koma upp gæðakerfi, nánar tiltekið stjörnu- eða blómakerfi, og verður unnið að því í vetur en ekki er ljóst hvort að það verði tekið í notkun á næsta ári. Uppskeruhátíðin Uppskeruhátíð Ferðaþjónustu bænda verður haldin 20. nóvember. Daginn áður, þ.e. föstudaginn 19. nóvember, verður haldið námskeið á vegum Hóla- skóla og þar mun viðfangsefnið beinast að mat og menningu. Upp- skeruhátíðin sjálf verður laugardaginn 20. nóvember en henni mun síðan ljúka með jólahlaðborði þar sem félagsmenn Ferðaþjónustu bænda og gestir Bændaferða munu gera sér glaðan dag saman. 130 bæir innan Ferðaþjónustu bænda heimsóttir á árinu! Í sumar hefur Berglind Viktorsdóttir, gæðastjóri Ferðaþjónustu bænda, verið á ferð og flugi um landið og heimsótt félagsmenn. Markmiðið í ár var að heimsækja alla ferðaþjónustubændur á árinu sem bjóða upp á gistingu vegna breytinga á flokkun gistingar og hefur þessu markmiði nú verið náð. Þá var einnig farið á staði sem eru í umsóknarferlinu en í sumar hafa yfir 10 aðilar sótt um inngöngu í Ferðaþjónustu bænda. Mannaskipti á vegum Leonardó Evrópuáætlunarinnar Þann 13. september lögðu fyrstu tveir félagarnir í Ferðaþjónustu bænda til meginlands Evrópu á vegum Leonardó mannaskiptaverk- efnisins og Félags ferða- þjónustubænda. Þau sem riðu á vaðið fóru til Eistlands, en það eru Guðrún Bergmann á Brekkubæ og Ari Baldursson í Árgerði. Á ferð sinni hafa þau skrifað dagbók á heimasíðunni www.argerdi.com/eistland og þar er að finna áhugaverðar upplýsingar um Eistland auk ferðalýsinga þeirra úr ferðinni. Þann 28. september halda Eyja Þóra Einarsdóttir á Moldnúpi og Andrea Laible á Neðra Vatnshorni til Skot- lands. Síðust fara Unnsteinn Ingason á Narfastöðum og Ólöf Þ. Halldórsdóttir frá Vogafjósi til Noregs. Hver ferð stendur yfir í 2 vikur. Ferðalangarnir munu gera grein fyrir ferðum sínum á uppskeruhátíð Ferðaþjónustu bænda í nóvember, auk þess sem fyrirhugað er að skrifa ferðapistla í Bændablaðið. Ásmundur Eysteinsson (t.v.) fyrrum bóndi á Högnastöðum í Þverárhlíð og réttarstjórinn Davíð Aðalsteinsson á Arnbjargarlæk. Sá fyrrnefndi þykir afar fjárglöggur en það er haft fyrir satt að Ásmundur þurfi aldrei að hafa fyrir því að opna markaskrána - hann kunni allt utan að! Jón Bjarnason gefur Jóhannesi M. Þórðarsyni hinn pólitíska tón. Efri: Heimir Klemensson og Bjarki Þ. Gunnarsson. Neðri: Jóhannes Sigurðsson og Angela Líf Jóhannesdóttir. Vélfang með heimasíðu Vélfang ehf. hefur nú opnað heimasíðu á slóðinni www.velfang.is, fyrirtækið Vél- fang ehf. tók til starfa sl. vor og hefur m.a. umboð fyrir CLAAS, Fendt, Kuhn, Kverneland, Accord, Taarup og Fiona. Á heimasíðunni má finna upplýsingar um hina ýmsu erlendu framleiðendur sem fyrirtækið hefur umboð fyrir, hægt er að sækja bæklinga beint á netinu, finna varahlutalista og mikið úrval notaðra véla. Fram undan er hringferð um landið með vélar og tæki til sýnis og prófunar en dagskráin verður kynnt nánar á heimasíðu Vélfangs ehf. og í Bændablaðinu. Þorgrímur Gestsson, rit- höfundur og fyrrum frétta- maður RÚV. Breytingar á yfirlitsskýrslu í nautgriparækt Á þriggja mánaða fresti er skrifuð yfirlitsskýrsla fyrir öll bú í skýrsluhaldi nautgripa- ræktarinnar. Þar koma fram upplýsingar um allar kýr sem verið hafa á skýrslu á búinu síðustu 12 mánuði, auk þess sem einnig birtist yfirlit um afurðir hverrar fyrir sig síðustu 12 mánuði auk margra fleiri upplýsinga. Einnig koma fram á þessu skýrsluformi ýmsar helstu fjölda- og meðaltalstölur bús- ins miðað við síðasta 12 mánaða tímabil. Þetta skýrsluform hefur tekið mjög litlum breytingum frá því að farið var að vinna skýrslur nautgriparæktarinnar í skýrsluvélum fyrir þremum ára- tugum. Þetta skýrsluform er einnig mjög líkt og þeir sem til þekkja hafa séð í mörgum ná- lægum löndum. Þetta er mjög eðlilegt vegna þess að skýrslu- hald í nautgriparækt hefur sama tilgang um allan heim. Því er ætlað að geyma grunnupp- lýsingar um uppruna og ættir gripanna auk þess að afla upp- lýsinga um mjólkurframleiðslu og frjósemi einstakra kúa. Núna þegar bændur fá yfir- lit skýrsluhaldsins miðað við lok september sjá þeir að ákveðnar breytingar hafa verið gerðar á því. Felldar hafa verið niður vissar upplýsingar, sumar þeirra sem hafa verið færðar yfir á mjólkurskýrslu og berast því mánaðarlega. Þau atriði sem þarna eru ný eru hins vegar að birt er fyrir einstakar kýr magn verðefna en það er samanlagt magn mjólkurfitu og mjólkur- próteins hjá hverri kú. Þá er kynbótamat kúnna birt á yfirlitinu. Þess vegna mun verða fellt niður að senda út árlegt yfirlit um kynbótamat kúnna vegna þess að það mun einnig í framtíðinni verða að- gengilegt hverjum og einum skýrsluhaldar fyrir sínar kýr beint á Netinu. Eftir að tekin var upp reglubundin skoðun á fyrsta kálfs kvígum á hverju ári hefur það leitt til að nær allar kýr hafa orðið útlitsmat og er heildareinkunn þeirra úr skoðuninni birt á yfirlits- skýrslunni. Í meðaltalstölum fyrir búið hefur verið bætt við meðal- talstölum um magn verðefna hjá kúnum á búinu. /JVJ

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.