Bændablaðið - 28.09.2004, Side 21

Bændablaðið - 28.09.2004, Side 21
Þriðjudagur 28. september 2004 21 Sá hlær best... Bbl/Jón Eiríksson. Þróunarverkefni og jarðabætur Umsóknar- fresti seinkað Á undanförnum árum hafa bændur séð hér í Bændablaðinu um þetta leyti árs umsóknareyðu- blað fyrir framlög til þróunarverk- efna og jarðabóta. Umsóknum hefur átt að skila fyrir 15. nóvember. Í ár og framvegis mun slíkt blað væntanlega ekki birtast fyrr en í byrjun þess árs, sem ætlunin er að vinna verkefnin sem verið er að sækja um framlag til. Verið er að endurskoða kaflann um framlög til þróunarverkefna og jarðabóta í Búnaðarlagasamningi en þeirri endurskoðun er ekki lokið. Það hefur þó verið ákveðið að skilafrestur umsókna verði framvegis 1. mars en ekki 15. nóvember eins og verið hefur. Eins þarf ekki að sækja um fram- lag til kornræktar fyrirfram, heldur verða menn að láta vita um korn- ræktina (og í raun að sækja um framlag), eftir að þeir hafa sáð korninu. Aðrar breytingar, ef ein- hverjar verða, verða kynntar þegar endurskoðun er lokið. Úttektir fyrir 15. nóvember Úttektum á þeim jarðabótum sem loforð um framlag fæst til skal hins vegar lokið fyrir 15. nóvember eins og verið hefur. Ef verkefnum er ekki lokið, þegar út- tektarmaður kemur eða hefur samband til að kanna hvort eitt- hvað hafi verið gert, er mikilvægt að jarðabótamaður hafi samband við ráðunaut eða skrifstofu hans strax og verkinu er lokið, takist að ljúka verkinu í tæka tíð. Það er óráðlegt að bíða með að tilkynna að verkinu sé lokið fram að 15.nóvember í þeirri von að ráðu- nauturinn muni koma eða hafa samband fyrir þann tíma. Starfs- væðið er stórt og hann getur ekki verið alls staðar sama daginn. Ó.G. Starfshópur fjallar um akstur utan vega Umhverfisráðuneytið hefur, í samráði við samgönguráðu- neytið, skipað starfshóp sem á að gera tillögur um hvaða vegir og slóðar í óbyggðum skuli teljast til vega með hliðsjón af afdráttarlausu ákvæði um bann við akstri utan vega í náttúru- verndarlögum. Þetta er liður í viðleitni ráðuneytisins til að stemma stigu við akstri utan vega, sem er viðvarandi vanda- mál þrátt fyrir aukna fræðslu og eftirlit á undanförnum árum segir í fréttatilkynningu frá um- hverfisráðuneytinu.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.