Bændablaðið - 28.09.2004, Qupperneq 23

Bændablaðið - 28.09.2004, Qupperneq 23
Þriðjudagur 28. september 2004 23 Nemendur Garðyrkjuskólans í fræðsluferð á Norðurlandi Dagana 8. - 10. september fóru nemendur á starfsmenntabrautum Garðyrkjuskólans ásamt fimm kennurum skólans í fræðsluferð norður í land. Fyrsta daginn var Geysissvæðis og Haukadalsskógur skoðaður en síðan var brunað yfir Kjöl og komið að Hólum í Hjaltadal. Þar fékk hópurinn góðar móttökur og leiðsögn um skólann. Gist var á Hofsósi. Annan daginn var haldið til Akureyrar þar sem Framkvæmdamiðstöð bæjarsins var heimsótt, Lystigarðurinn og Kjarnaskógur. Borðað var saman á Greifanum og gist hjá ferðaþjónustubændum í Eyjafirðinum. Síðasta daginn voru Norðurlandsskógar heimsóttir, skrúðgarðyrkjumeistarar og blómabúðir. Ferðin heppnaðist í alla staði vel, hópurinn var frábær og á greinilega skemmtilega tíma framundan í skólanum næstu tvö árin. Hópurinn stoppaði á Bláfellshálsi á Kjalvegi á leiðinni norður og stillti sér upp í þessa myndatöku. FJARNÁMSKEIÐ Í LJÓSMYNDUN FYRIR STAFRÆNAR MYNDAVÉLAR Hér er á ferðinni skemmtileg nýjung í námskeiðahaldi á Ís- landi þar sem almenningur getur tekið þátt í ljósmynda- námskeiði, hvar sem fólk er búsett á landinu, allt í gegnum tölvu og Netið. Nemendinn er í tengslum við leiðbeinenda sinn með tölvupósti. Leiðbeinandi er Pálmi Guðmundsson, sem jafn- framt er höfundur námskeiðs- ins. Hver nemandi fær sína eigin síðu sem verður sett upp fyrir hann og hann vinnur einn með og getur skoðað ítarlegt námsefni og fróðleik á íslensku í ró og næði í alls 90 daga, en hægt er að fram- lengja námskeiðið án auka- kostnaðar. Ekkert er þörf á neinni sérþekkingu á netinu til að taka þátt í þessu fjarnámskeiði. Staf- ræna ljósmyndatæknin er útskýrð nákvæmlega og hugtök eins og pixlar, JPG, TIFF, RAW, mega- bæt eru útskýrð. Farið er inn á tæknilega hlið myndavélarinnar og á allar helstu stillingar á vélinni: ljósop, hraði, dýptar- skerpa, ISO, White balance ofl. Farið er inn á undirstöðuatriði að góðri ljósmyndatækni. Ýmiss konar myndataka er útskýrð bæði í máli og myndum. Auk textans eru um 100 skýringaljósmyndir. Fjallað er um myndbyggingu, nokkrar reglur útskýrðar og einnig hvað ber að varast o.fl. Einnig er farið inn á tölvumálin, varðandi skipuleg á myndasafni og fleira. Nemendinn fær send ljós- myndaverkefni og krossapróf í tölvupósti fyrsta og fimmtánda dags hvers mánaðar. Myndir sem nemandinn tekur og sendir inn eru gagnrýndar á jákvæðan og uppbyggilegan hátt og þessar myndir ásamt gagnrýninni eru settar inn á síðu viðkomandi nemanda. Hann einn hefur aðgang að sinni síðu. Hægt er að skrá sig hvenær sem er því fjarnámskeiðið er í gangi allt árið. Námskeiðsgjaldið er aðeins 11.500.Skráning og allar nánari upplýsingar er að finna á vef- síðunni www.ljosmyndari.is. /Fréttatilkynning.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.