Bændablaðið - 28.09.2004, Page 27
Þriðjudagur 28. september 2004 27
Á heimasíðu Öxarfjarðarhrepps
er greint frá því að
Meindýravarnir Íslands hafi
gert tilboð í refa- og minka-
veiðar í Öxarfirði. Verðið í til-
boðinu er 12.500 kr. fyrir ref og
7.200 kr. fyrir minka. Árni Logi
Sigurbjörnsson á og rekur
Meindýravarnir Íslands og hef-
ur honum verið gert gagntilboð
upp á 6.500 kr. fyrir mink en
10.500 kr. fyrir ref. Árni Logi
hefur verið með þessar veiðar
fyrir Öxarfjarðarhrepp í nokk-
ur ár en samningurinn var út-
runninn og þess vegna gerði
hann þetta tilboð. Fyrir utan að
veiða refi og minka fyrir þá sem
þess óska stundar Árni líka
venjulegar meindýraveiðar.
Hann hefur veitt ref og mink í
Þingeyjarsýslum í mörg ár og hann
stundar ekki aðra vinnu en veiðar.
Hann veiðir ekki bara á vorin held-
ur er hann að allt árið um kring.
Hann segir mikið um að hann sé
fenginn til að eyða mink við
laxveiðiárnar á vorin og sumrin.
Sömuleiðis að hreinsa varplöndin
áður en æðarfuglinn sest upp á
vorin. Hann segist hafa náð mikl-
um árangri með gildruveiðar og
vera með 200 til 300 gildrur úti allt
árið. Eiríkur Þorsteinsson á Blika-
lóni veiðir mikið með Árna Loga
og saman eru þeir með á fimmta
hundrað gildrur þegar mest er.
,,Það er enginn vandi að út-
rýma mink bara ef það er gert
skipulega en það er ekki hægt með
þeirri veiðistjórnun sem nú er. Ég
get nefnt sem dæmi að fyrsta
leitarvorið mitt í Öxarfjarðar-
hreppi veiddum við rúmlega 300
minka á 5-6 dögum. Í vor er leið
veiddust 32 minkar á mun stærra
svæði en fyrsta leitarvorið á 11
dögum," sagði Árni Logi.
Hann segist hafa veitt á svæð-
inu frá Jökulsá á Fjöllum að Rauf-
arhöfn í ár og þá hafi hann ein-
göngu veitt mink. Hann sagðist
hafa leitað við Hafralónsá í Þistil-
firði í vor áður en laxveiðarnar
hófust. Leitarsvæðið var 17 km og
veiddust 49 minkar. Þeir voru þrír
saman við þetta og eru það gjarnan
á vorin þegar verið er að hreinsa
mink úr varplöndum og hjá
laxveiðiánum. Hann segir nú svo
komið að bændur í Öxarfirði geti
gengið að hreinu varpi á vorin.
Árni Logi segir að þegar heið-
arvötnin leggur á haustin og mó-
fuglinn fer leiti minkurinn niður í
fjörur eftir æti. Þá sé auðvelt að
veiða hann. Vetrarveiðar séu því
mjög árangursríkar.
Árni Logi er sem fyrr segir
meindýraeyðir og fer hvert á land
sem er sé þess óskað auk þess sem
hann annast meindýravarnir hjá
fiskvinnslufyrirtækjum víða um
land. Þar er um að ræða rottur og
skordýr og eru þessar varnir á
vegum sveitarfélanna.
Meindýravarnir Íslands
Hægt að útrýma
minknum ef rétt
er að staðið
Ryðfríir að utan og innan
Sérúttak í þvottavél
Hámarkshiti 95°C
Áreiðanlegir, öruggir og
endingargóðir
Sérhannaðir fyrir
mjólkurframleiðendur
HITAVATNSKÚTAR
Innra byrði úr ryðfríu stáli
„Polyurethane” einangrun
án umhverfiseyðandi efna
Sér heitavatnsúttak í
þvottavél „95°C”
Stillanlegur
blöndunarventill
Umskiptanleg
tæringarvörn
Ytra byrði úr
ryðfríu stáli
Hitaelement
Öryggisventill
Lágmúli 7
108 Reykjavík
sími 588 2600,
fax 588 2601
Ákall til hestamanna
Riðuveiki er smitsjúkdómur, sem ekki sýkir hross en getur borist
með óhreinindum, sem stundum loða við hross, utan á þeim og
undir hófum, við hlífðarföt hestamanna og ekki síst skófatnað.
Áður var leyft að selja hestamönnum hey frá riðubæjum. Nú er
alveg tekið fyrir það. Á riðusvæðum getur smitað hey leynst víðar
en á riðubæjunum sjálfum vegna þess hver riðan er lengi að koma
fram.
Riðuveiki er alvarlegur sjúkdómur í sauðfé sem verið er að reyna
að útrýma úr landinu. Hestamenn geta hjálpað til við þessa baráttu
með aðgát og með því að kynna sér málið.
Hafið aldrei hesta í fjárhúsum á riðusvæðum, hreinsið undan
hófum og þvoið óhreinindi frá sauðfé af hestum áður en þeir eru teknir
til flutnings. Fræðist um það hvar smithætta er, hugið að varnarlínum
og lokið hliðum á þeim. Flytjið ekki með ykkur hey, kaupið það heldur
á viðkomandi varnarsvæði og fáið hey til vetrarfóðurs af ósýktum
(friðuðum) svæðum. Vegna hættu á dreifingu smits um landið og
vandasamrar sótthreinsunar ættu hestamenn alls ekki að flytja sauðfé í
hestakerrum. Óæskilegt er að hafa sauðfé í hesthúsum og ætti hvergi
að vera nema rækilega aðskilið.
Sigurður Sigurðarson dýralæknir