Bændablaðið - 28.09.2004, Síða 29

Bændablaðið - 28.09.2004, Síða 29
Þriðjudagur 28. september 2004 29 Nemendur Garðyrkjuskólans á Reykjum hafa kosið fulltrúa sína í nemendaráð og nefndir fyrir veturinn. Niðurstaðan varð þessi: Nemendaráð: Íris Hödd Pétursdóttir,blómaskreytingabraut, Kristín Dögg Jónsdóttir, garðplöntubraut og Njáll Ómar Pálsson, skrúðgarðyrkjubraut. Skólaráð: Arndís Þórðardóttir, blómaskreytingabraut, Guðbjörg María Sigmundsdóttir, ylræktarbraut og Siggeir Ingólfsson, skrúðgarðyrkjubraut. Fulltrúi í skólanefnd: Guðrún Sigríður Vilhjálmsdóttir, skrúðgarðyrkjubraut og Kolbrún Karlsdóttir, blómaskreytingabraut, varamaður. Skemmtinefnd: Kolbrún Karlsdóttir, blómaskreytingabraut, Helgi Þór Gestsson, garðplöntubraut og Viðar Jakob Gunnarsson, skrúðgarðyrkjubraut. Sumardagurinn fyrsti: Hákon Ásgeirsson, blómaskreytingabraut, Ingibjörg Leifsdóttir, garðplöntubraut og Sigurður Kristjánsson, skrúðgarðyrkjubraut. Nemendur munu síðan sjálfir sjá um að skipa í aðrar nefndir ef ástæða þykir til, eins og t.d. í árshátíðarnefnd, fjáröflundarnefnd og fleira. KOSIÐ Í NEMENDARÁÐ OG NEFNDIR GARÐYRKJUSKÓLANS Á REYKJUM Aðeins 65 heimili í landinu sem tengd eru grunnneti Símans eiga ekki möguleika á ISDN tengingu þegar sumarframkvæmdum hjá Símanum lýkur. Þetta þýðir að um 99,96% heimila á landinu eiga þá möguleika á ISDN. Síminn fullyrðir að þessi þétta útbreiðsla ISDN sé einsdæmi í Evrópu. Frá árinu 2000 hafa 80 nýjar símstöðvar verið settar upp í tengslum við ISDN væðingu landsins en Síminn og Bænda- samtökin hafa átt árangursríkt samstarf frá þeim tíma um þessi mál. Þetta kom fram hjá Gunnari Magnússyni, vörustjóra sölu- og vörustjórnunar talsímasviðs Símans, á fundi tölvudeildar Bændasamtaka Íslands með Símanum í byrjun september. Fundinn sátu Einar Reynis, Gunnar Magnússon hjá Símanum og frá tölvudeild Bændasam- takanna Baldur Óli Sigurðsson, Hjálmar Ólafsson og Jón Baldur Lorange. Tilgangur fundarins var að fara yfir stöðu á ISDN væðingunni og að kynna nýjustu ISDN tækni sem Síminn er með í boði fyrir bændur. Þá kom fram að Síminn vinnur í að svara öllum ISDN umsóknum eins fljótt og auðið er en Bændasamtökin hafa lagt á það áherslu. Í framhaldinu sé þá hægt að meta kostnað við að koma á viðundandi netsambandi fyrir þau heimili sem standa eftir en Síminn áætlar að kostnaður við að slíkt sé um 1-2 milljónir á heimili. Flest þessara heimila eru á Vestfjörðum. Aðeins um fjórðungur af skráðum símum í dreifbýli sem hafa kost á ISDN eru ISDN tengdir og mætti þeir vera fleiri að mati Símamanna. Bentu fulltrúar Bændasamtakanna á að ekki væri nóg gert af því að kynna kosti við ISDN+ tengingu fyrir bændur sem væru ótvíræðir í stað upphringisa- mbandsins gamla. Með ISDN+ fáist meira öryggi, meiri hraði og lækkun símareiknings ef um einhverja netnotkun er að ræða. Þá mætti búast við aukinni útbreiðslu og netnotkun bænda með nýjum tölvukerfum Bændasamtakanna á netinu, þ.e. Huppa.is fyrir kúabændur og Fjárbókin fyrir sauðfjárbændur, en nú standa bændum til boða tölvukerfin WorldFengur og MARK á netinu. Síminn lýsti yfir áhuga á að fara aðra fundarherferð um landið til að kynna ISDN og hitta bændur með svipuðum hætti og gert var með velheppnaðri fundarherferð á síðasta ári í samvinnu við Bændasamtökin, Upplýsingatækni í dreifbýli og búnaðarsamböndin. Fullyrt að útbreiðsla ISDN á Íslandi sé einsdæmi í Evrópu Á undanförnum árum hefur Síminn varið hundruðum milljóna í að efla ljósleiðara- og örbylgjukerfi sitt sem í daglegu tali er kallað grunnkerfi Símans. Grunnkerfi Símans er ljósleiðarakerfið, fjarskiptaþjóðvegur sem rúmar talsíma, GSM, gagnaflutninga, sjónvarp og útvarp. Uppbygging núverandi grunnkerfis hófst með lagningu ljósleiðaranets frá Reykjavík til Selfoss árið 1986 og hringnum var lokað árið 1993. Flestir staðir á landinu hafa nú tvær aðskildar leiðir og skiptir kerfið sjálfkrafa yfir á norðurleið rofni ljósleiðari á suðurleið. Til viðbótar ljósleiðarakerfinu hefur Síminn byggt upp öflugt örbylgjukerfi sem meðal annars er notað sem varaleið fyrir ljósleiðarakerfið. Að undanförnu hefur verið mikil umræða um Símann í fjölmiðlum, sérstaklega um dreifikerfi Símans og þær skyldur sem á fyrirtækinu hvíla vegna þess. Í umræðunni hefur meðal annars verið farið fram á að Símanum verði gert að koma upp ADSL þjónustu um allt land, áður en fyrirtækið verður selt. Í núgildandi fjarskiptalögum er kveðið á um að Síminn eigi að sjá til þess að á hverju heimili á Íslandi sé talsími og gagnaflutningsþjónusta með 128 Kb/s flutningsgetu. Þetta hefur Síminn uppfyllt með ISDN tengingu um allt land. Vegna hennar hefur Síminn varið miklum fjármunum í uppbyggingu á símakerfinu. Frá árinu 2000 hafa 80 nýjar símstöðvar verið settar upp í tengslum við ISDN væðingu landsins en Síminn og Bændasamtökin hafa átt árangursríkt samstarf frá þeim tíma um þessi mál. Nú er svo komið að um 99,96% þjóðarinnar hefur aðgang að ISDN þjónustunni. Aftur á móti hefur eftirspurnin ekki verið í samræmi við væntingar og nýtingin mun lakari en vonast var til. Aðeins um fjórðungur af skráðum símum í dreifbýli sem hafa kost á ISDN eru ISDN tengdir. Töluverður tæknilegur munur er á ISDN og ADSL. ADSL þjónustan er sniðin fyrir þéttbýli. Það helgast m.a. af því að hús sem tengist ADSL þjónustunni verður að vera í innan við 3-5 km fjarlægð frá símstöð til þess að línan beri gagnaflutninginn. Það takmarkar því möguleika á uppbyggingu ADSL í dreifðari byggðum og bent hefur verið á að nánast þyrfti að leggja símstöð á hvern bæ sé búseta mjög dreifð. Ekkert símafyrirtæki í heiminum sem vitað er um gengur jafn langt og Síminn í því að veita íbúum í dreifbýli ADSL tengingar. Í Bretlandi, Noregi og Svíþjóð nær ADSL þjónustan til um 80% landsmanna miðað við 92% hjá Símanum. Stefnt er að því að Síminn hefji dreifingu á sjónvarpsefni gegnum ADSL kerfið í lok þessa árs. Með dreifingu stafræns sjónvarpsefnis í gegnum ADSL kerfið er Síminn að nýta þá miklu fjárfestingu sem liggur í fjarskiptakerfunum. Arðurinn sem þar skapast flýtir fyrir almennri uppbyggu dreifikerfisins. Auknir tekjumöguleikar stuðla að því að hægt verði að leggja ADSL í minni bæjarfélög. Næsta skref í uppbyggingu á ADSL er að veita þessa þjónustu á fámennari stöðum með íbúum undir 500 og er þegar farið að vinna við uppsetningu ADSL á Flateyri, Búðardal, Flúðum og Djúpavogi. Síminn er einnig að prófa þráðlausar tæknilausnir sem munu hugsanlega nýtast í dreifðum byggðum. Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans Síminn prófar þráðlausar lausnir í dreifbýli Kawasaki KVF er mjög gott í erfiðum þröngum aðstæðum, létt að stjórna hjólinu og það er mikill vinnujálkur! Eitt mest selda fjórhjól í heiminum í dag! Skiptingin gerir hjólið einstakt í akstri - "Automatic Power-Drive System (KAPS)" sem þýðir í raun “sjálfskipt, orkumikið gírskiptikerfi”! Einnig er hjólið með stórt og gott geymslupláss bæði að framan og aftan, stór og góð fótstig og hægt að skipta úr 4X2 í 4X4 með einum takka á stýrinu. Tvöfaldar diskabremsur að framan og olíubaðað fjöldiskabremsukerfi að aftan sem er í raun einstakt og án efa eitt besta bremsukerfi á markaðnum. Hægt er að splitta hjólið að framan með einu handtaki. Vertu í sambandi við okkur hjá Nítró og við gerum allt sem við getum til að aðstoða þig og þína. Umboðsaðili fyrir Kawasaki. Erum að fá beltabúnað undir flestar gerðir fjórhjóla. Erum einnig með skó, vettlinga og annan hlífðarbúnað. Sérpöntum nánast allt frá USA fyrir fjórhjólamanninn, t.d. töskur, spil, kerrur, byssufestingar, dekk og fl. Pöntunartími ca. 7-15 dagar. Tilboð: Kawasaki KVF 4X4 360cc 2004 715.000 kr. án vsk. - 890.000 kr. með vsk.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.