Bændablaðið - 28.09.2004, Side 32
Bændasamtök Íslands, í samstarfi
við búnaðarsamböndin og
Upplýsingatækni í dreifbýli, bjóða
notendum dkBúbótar upp á tveggja
daga námskeið í bókhaldi og notkun
dkBúbótar, auk lykilþátta rafrænna
samskipta og upplýsingaöflunar.
Á námskeiðinu munu þátttakendur
vinna á eigin tölvur og að mestu
leyti við sitt eigið bókhald og er
námskeiðinu jafnt ætlað að koma til
móts við þarfir byrjenda sem lengra
kominna notenda dkBúbótar.
Markmið námskeiðsins eru að
þátttakendur öðlist að lágmarki
færni í eftirtöldum þáttum:
að meðhöndla fylgiskjöl
bókhaldsins á fullnægjandi hátt.
að skrá, villuleita og uppfæra dag-
bókarfærslur.
að skrá kaup og sölu á fasta-
fjármunum á fullnægjandi hátt í
bókhaldinu.
að gera virðisaukaskattsuppgjör.
að stemma af bókhaldsreikninga
og finna og leiðrétta villur í bók-
haldinu.
að taka afrit af bókhaldinu.
að færa stöður á efnahagslyklum
milli bókhaldsára.
að prenta út helstu skýrslur, s.s.
hreyfingalista, rekstarreikning og
fleira.
að senda upplýsingar úr bókhaldi
til Hagþjónustu landbúnaðarins.
að senda tölvupóst og hengja við
hann skrár eða skjöl.
að nálgast aðstoð og leiðbein-
ingar á netinu.
að uppfæra vírusvarnir tölvu-
búnaðar.
Auk þess verður uppsetning bókhalds
þátttakenda skoðuð og gengið úr
skugga um að stofnupplýsingar séu
réttar og að upphafsstöður
bókhaldsársins séu í samræmi við
síðasta skattframtal.
Samhliða vinnu við eigið bókhald
verður einnig farið yfir uppsetningu
hverrar vélar fyrir sig, vírusvarnir,
prentarastillingar, uppsetningu forrita
BÍ og póstforrita.
Skráning á námskeiðin
fer fram hjá búnaðarsamböndunum.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður
Eiríksson, ráðunautur BÍ, í síma 563-
0300 eða tölvupóstfangi sei@bondi.is
Fyrirhuguð námskeið eru
eftirfarandi:
11. - 12. október
Bs. Vesturlands - Dalirnir
13. - 14. október
Bs. Vesturlands -
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
18. - 19. október
BSSL -
Félagsh. Heimaland V-Eyjafjöllum
20. - 21. október
BSSL - Búnaðarmiðstöð Suðurlands
1. - 2. nóvember
Bs.A - Syðri-vík, Vopnafirði
3. - 4. nóvember
Bs.A - Fellabær
8. - 9. nóvember
Bs. Vesturlands - Hvanneyri
10. - 11. nóvember
Búgarður - Norð-Austurland
15. - 16. nóvember
Búgarður - Norð-Austurland
17. - 18. nóvember
Bs. Austur-Skaftafellssýslu
19. - 20. nóvember
Bs.K - Mosfellsbær
23. - 24. nóvember
Leiðbeiningamiðstöðin -
Sauðárkróki
25. - 26. nóvember
BSSL - Hótel Kirkjubæjarklaustur
RAFRÆNT
BÓKHALD
RAFRÆN
SAMSKIPTI
Upplýsingatækni í dreifbýli þakkar eftirtöldum aðilum stuðning við verkefnið:
KB banki, RARIK, ESSO, KS, Framleiðnisjóður landbúnaðarins, Síminn,
Verkefnið um upplýsingasamfélagið , Bændasamtök Íslands.