Vér mótmælum allir

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Vér mótmælum allir - 01.05.1946, Qupperneq 2

Vér mótmælum allir - 01.05.1946, Qupperneq 2
TÓMAS GUÐMUNDSSON, skdld: Þjóð vor á land sitt ein Kaflar úr útvarpsrœðu fyrsta sumardag Í9k6. Góðir hlustendur! Ég er hingað kominn þeirra erinda, sem is- lendingum í þúsund ár hefur verið ljúfast að gegna. Ég er kominn til þess að iiytja yður boð- skap hins unga vors, til að bera yður öllum ósk vor allra um gleðilegt sumar! Svo einföld og lát- Íaus eru kveðjuorð þessa dags, en svo máttug í sínum einfaldleik, að meðan sú hætta vofir yfir flestum öðrum orðum tungunnar að slitna og giata hugsun sinni og merkingu, þá korna þau enn til okkar þennan fyrsta vordag með allan fögnuð og töfra bernskunnar, málfar ljóðs- ins, hina gullnu rödd lieiðríkjunnar, dularfull- an grun, sem er uppistaðan í hinum eilífa og undariega skáldskap lífsins. Og svo sannarlega hefur vorið komið til þessa iands, svo sannarlega höfum vér í dag ástæðu til að l'agna sumrinu. Enginn, sem óhöldnum augum iitast um í jrjóðfélagi okkar í dag, getuv komizt hjá því að verða snortinn af þeirn lífs- mætti, áræði og stórhug, sem lýsir sér hvarvetna. ísland hefur aldrei verið elskað jafn heitt eins og í dag, engin kynslóð þjóðar vorrar hefur ver- ið fallegri og bjartsýnni né átt sér meiri mann- dóm en sú æska, sem nú er að vaxa upp. Aldrei hefur viljinn til þess að láta gott af sér leiða verið almennari, aldrei hefur jafn mikill hluti þjóðarinnar tekið höndum saman um stærri og glæsilegri viðfangsefni en einmitt nú. Ég el- ast um, að saga vor eigi sér nokkuð hugðnæmara en hina almennu, einlægu og uppgerðarlausu löngun allra góðra íslendinga til þess að sjá frelsi og heiðri þjóðar sinnar borgið. Slík er hamingja okkar í dag, og einmitt fyrir þessar sakir er það ánægjulegra hlutskipti en nokkru sinni fyrr að vera íslendingur og um leið virðulegra og vandasamara. Enginn mim dylja sig þess, að margar torfærur eru enn eftir á leiðinni til fyrirheitna landsins, og sérstaklega mun mörgum finnast ískyggilegt í dag, hversu hin raunverulega, og daglega lífsbarátta fyrir uppeldi þjóðarinnar og menningarlíli hvílir á tiltölulega fárra herðum. Þess vegna verður stundum vart þreytumerkja, sem eru í hrópandi mótsögn við það gróðurmagn og sólskinshug, sem annars er fegurst einkenni bezta og stærsta hlutans af íslenzkri æsku. í hverri einustu sveit á landinu hefur einhverjum þreyttum augum verið horft í dag yfir fagra og snauða átthaga, og úr Jjessum vonsviknu augum hefur mátt lesa gamla og nýja spurningu: Verður þessari baráttu haldið áfram? - og á mörgum smáum íleytum allt í kringum landið hefur sams konar spurningum skotið upp: Er allt þetta leggjandi í sölurnár? Það er eigi aðeins skylda, heldur lífs- spursmál lyrir þjóðfélagið, að Jiessum byrðum terði jalnað, en Jregar þær hafa verið teknar á fleiri herðar mun Jiað sýna sig, að í raun og veru liefur ávallt allt verið leggjandi í sölurnar. Sá einn, sem fórnar lífi sínu, má vera sér [æss viss að hafa ekki glatað því, og Jijóð, sem ann því landi, sem hún á ein, veit með vissu, að Jxað er allt til vinnandi nema Jiað eitt, að glata rétti sínum til Jress. Því vissulega á þjóð vor land sitt ein, — að guðs og manna lögum á hún Jrað ein, en sé nokkur sá íslendingur til, sem efast um rétt vorn og skyldu til að eiga það ein, þá á tunga vor að vísu orð yfir slíka menn, en saga landsins mun hlífast við að nefna nöfn þeirra. Hvert undanbragð, sem miðar til annarlegra afskipta af landi voru, tungu og menningu, er svik við Jrær þrjátíu kynslóðir, sem hér hafa þjáðst og barizt ti! Jtess að helga okkur þann rétt, sem hver siðmenntuð Jtjóð metur dýrstan, hvert af- ;sal slíks réttar er með sama hætti óbætanleg og háskasamleg svik við allar Jrær kynslóðir, sent vér vonum, að eigi eftir að elska og byggja þessa fögru og undarlegu ættjörð. En uiri Jretta er í rauninni þarflaust að ræða. Hamingja íslands hefur kannske ekki. alltaf 2 VÉR MÓTMÆLUM ALLIR!

x

Vér mótmælum allir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vér mótmælum allir
https://timarit.is/publication/937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.