Vér mótmælum allir

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Vér mótmælum allir - 01.05.1946, Qupperneq 5

Vér mótmælum allir - 01.05.1946, Qupperneq 5
STEFÁN ÖGMUNDSSON, varajorseti Alþýðusambands íslands: Venim á verði tslendingar! Nýr þáttur er hafinn í baráttu þjóðar vorrar gegn aísali íslenzkra landréttinda. Þær yfirlýsingar, sem fram komu í útvarpsum- ræðurn frá Alþingi s. 1. föstudag gefa gleggst til kynna, hver þörf hefur verið þeirra umræðna, sem fram ltafa farið unt þetta mál, hver nauð- syn hefur verið þess vökula auga alþýðu og menntamanna, sem hvílt hefur á hinum leyndu hræringum, er miðað hafa til þess að fá valda- menn þjóðarinnar til samninga um skerðingu á landi og frelsi íslendinga. Hinar opinberu yfirlýsingar stjórna íslands og Bandaríkjanna í herstoðvamálinu staðfesta í öll- um atriðum þær upplýsingar, sem fram hafa komið í umræðum undanfarinna rnánaða um þetta mál og réttlæta ekki aðeins þann ótta, sem gripið hefur um sig vegna þeirra sömu fregna, sem almenningi bárust til eyrna, heldur staðfesta yfirlýsingar ríkisstjórnanna það, að liann hefur ekki verið meiri en efni stóðu til. Eins og sakir standa er ekki unnt að leggja dóm á mikilvægi þeirrar afdráttarlausu afstöðu, sem yerkalýðshreyfingin og menntamenn tóku til sjálfstæðismálsins, jregar í öndverðu, slíkt mun auðveldara að meta síðar, þegar öll gögn liggja. fyrir. Þess er þó rétt að geta, að áður en nokkurt svar barst við hinni frómu ósk verndara vorra um afsal íslenzkra landsréttinda þeim til handa. höfðu samtök alþýðunnar þegar tekið sína af- istöðu til málsins. Þann 2. nóv. s. 1. samþykkti fundur fullskipaðrar sambandsstjórnar Alþvðu- sambands íslands ályktun þess efnis, að hún liti á „hvers konar tilburði erlendra ríkja og inn- lendra erindreka þeirra til íhlutunar, áhrifa eða sérstöðu hér á landi . . . livaðan, sem hún kann að korna og í hvaða mynd sem hún birtist, sem ógnun við sjálfstæði vort og tröðkun á yfirlýst- um vilja hinna Sameinuðu þjóða um að virða sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétt smáríkjanna og telja það ótvíræða skyldu valdhafa landsins þings og stjórnar að svara hverri slíkri móðgandi áleitni með liiklausri neitun“. Síðan þessi ályktun var gerð, hefur ekki linnt mótmælum alþýðu og menntamanna, sem geng ið hafa mjög í eina og sömu átt, og loks haf i knúð fram þær yfirlýsingar opinberra aðila, sem nú liggja fyrir. Eftir að ríkisstjórn íslands hafnaði kröfu Bandaríkjanna um miðjan október s. I. féllst stjórn þeirra á, að málið yrði stöðvað ,,að minnsta kosti í bili“, og er það sigur, sem allir þjóðhollir íslendingar hljóta að telja mikils virði. Þetta er þó aðeins áfangi af langri leið, þar sem svar Bandaríkjastjórnar getur naumast skilizt á ann- an veg en þann, að hún hyggist að reifa málið með öðrum hætti, næst þegar hún ber að dyrum íslendinga. Því má heldur ekki gleyma, að svo tvíræð var og er afstaða margra þingmanna, svo treg og loðin eru svör þeirra, að ekki mun af veita, að þeir verði studdir þaðan, sem þeir nú eru staddir, jalnvel þótt óttinn við dónt almennings hafi borið þá áleiðis til rétts vegar fram að þessu. Öruggast er þó að eiga það ekki á hættu að fela slíkum mönnum varðveizlu á fjöreggi þjóðar- innar, sem luin Jrarf að vaka yfir hverja stund, svo að Jieir selji ekki af hendi frelsi liennar um ár og ókomna tíma. Þótt sigur hafi unnizt í fyrsta áfanga barátt- unnar gegn hinni nýju ásælni, sem fram kemur við oss á þann hátt, sem flestar Jrjóðir munu fordæma, Jrar sem landið er hersetið af þeim, er sérréttindanna óska, benda öll leiðarmerki til þess, að Jreir, sem gleggst skilja, hver alvara er á ferðum, samtök aljrýðu og menntamanna, þurfi að Jrjappa enn betur bökum saman og vera viðbúin hverju, sem að höndum kann að bera. Krafa íslendinga er í dag: Brottför Bandaríkahers af íslandi! Engar herstöðvar á Islandi handa nokkrum erlendum her! VÉR MÓTMÆLUM ALLIR! 5

x

Vér mótmælum allir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vér mótmælum allir
https://timarit.is/publication/937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.