blaðið - 10.05.2005, Síða 23
þriðjudagur, 10. maí 2005 l blaðið
& 23
Keflavík að fá
leikmann
Eins og kom fram í Blaðinu á föstudag
var Guðjón Þórðarson í Englandi í
síðustu viku í leit að leikmanni eða leik-
mönnum. Guðjón er kominn til landsins
og í dag kemur Bretinn Brian O'Callag-
han til liðs við Keflavík. Hann kemur frá
utandeildarliðinu Workshop Town en var
áður á mála hjá Barnsley, meðal annars
þegar Guðjón var þar við stjórn. O'Cal-
laghan þessi er 23 ára og leikur yfirleitt
á miðjunni en er einnig vel liðtækur sem
varnarmaður. Brian O'Callaghan skrifar
undir samning við Kefiavík í dag og
verður hann út keppnistímabilið sem
hefst í næstu viku.
Man. Utd. á
eftir Cudicini
Breska blaðið The People greinir frá því
að sir Alex Ferguson, framkvæmdastjóri
Manchester United, ætli á allra næstu
dögum að gera tilboð í Carlo Cudicini,
markvörð Chelsea. Cudicini, sem er 31
árs, hefur verið varamarkvörður Chelsea
eftir að Petr Chech kom til félagsins.
Samkvæmt heimildum The People
verður tilboð United um fimm milljónir
sterlingspunda, sem er jafnvirði um 612
milljóna íslenskra króna.
_______________________m
Crespo sættir sig
ekki við launalækkun
Argentíski landsliðsmaðurinn Hernan
Crespo, sem leikur með AC Milan
á Ítalíu, segist ekki ætla taka á sig
launalækkun ef hann snúi til baka til
Chelsea. Crespo, sem er í láni hjá Milan
frá Chelsea, hefur látið hafa eftir sér
að hann vilji helst af öllu vera áfram hjá
Milan en Jose Mourinho, framkvæmda-
stjóri Chelsea, vill aftur á móti fá Crespo
á ný til Lundúna. Ef Crespo snýr aftur til
Chelsea er talið líklegt að hann verði að
taka á sig launalækkun sem gæti numið
allt að 50%. Það er nokkuð sem leik-
maðurinn sættir sig ekki við og segist
ekki skilja þetta þar sem Chelsea sé nú
ekki það félag sem skorti fjármagn.
1. deildin
í Englandi
Síðasta umferðin í ensku 1. deildinni fór
fram í gær. Sunderland varð deildar-
meistari með 94 stig en Sunderland
vann Stoke 1-0. Wigan tryggði sér
einnig réttinn til að ieika í úrvalsdeild-
inni á næstu leiktíð en Wigan vann
ívar Ingimarsson og félaga 3-1. Wigan
var í harðri baráttu við Ipswich um að
komast beint upp. Wigan hafði þó betur
og hlaut 87 stig en Ipswich 85. Tap
Reading gerði það að verkum að Read-
ing kemst ekki í umspilið en þar leikur
Ipswich við West Ham sem varð í sjötta
sæti eftir 1-2 sigur á Watford. Heiðar
Helguson skoraði mark Watford en
Anton Ferdinand og Marlon Harewood
skoruðu fyrir The Hammers. f hinni
viðureigninni í umspilinu mætast Derby
County og Preston.
ókeypis tii
heimila og fyrirtækja
alla virka daga
FRJÁLST
ísland með tvð silfur
Liðin fjögur frá íslandi sem tóku flátt í Norðurlandamótinu
í körfuknattleik um helgina.
og eitt brons
vbv@vbl.is
íslensku ungmennalandsliðin í körfu-
knattleik gerðu góða hluti um helgina
á Norðurlandamóti unglingalands-
liða sem fór fram í Svíþjóð. ísland lék
til úrslita í tveimur flokkum og því
miður töpuðust báðir leikimir. U-16
drengir töpuðu fyrir Svíum með 60
stigum gegn 64. Hjörtur Hrafn Einars-
son skoraði 24 stig og tók 10 fráköst
fyrir ísland og Þröstur Jóhannsson
skoraði 18 stig.
Stórleikur Helenu nægði ekki
U-18 ára lið íslands í kvennaflokki
steinlá fyrir Svíum með 22 stiga mun.
Helena Sverrisdóttir skoraði 20 stig,
tók 10 fráköst og átti níu stoðsend-
ingar fyrir ísland. Ingibjörg Elva Vil-
bergsdóttir skoraði 16 stig, þar af fjór-
ar þriggja stiga körfur. U-16 kvenna
var einnig tekið í karphúsið og það af
Finnum í 20 stiga tapleik um þriðja
sæti. U-18 ára landslið íslands í karla-
flokki vann Noreg í leik um þriðja sæti
með fimm stiga mun, 86-81. Biynjar
Þór Bjömsson var með 26 stig og Sig-
urður Gunnar Þorsteinsson 17.
Helgi Sigurðsson á leiðinni
heim um næstu áramót?
vbv@vbl.is
Samkvæmt heimildum Blaðsins em
þó nokkrar líkur á að Helgi Sigurðs-
son, leikmaður með AGF í Danmörku,
flytji heim til fslands þegar samningi
hans lýkur sumarið 2006. Helgi hefur
verið einn marksæknasti leikmaður
okkar íslendinga um árabil og nú er
kappinn orðinn þrítugur. Það er ljóst
að ef Helgi ákveður að koma heim á
næsta ári koma mörg lið til með að
setja sig í samband við hann í von um
liðsstyrk hans.
Sjö leikmenn
AGF í agabann
vbv@vbl.is
Þeir hefðu betur sleppt því að
skemmta sér, leikmenn AGF um helg-
ina eftir leik AGF gegn Alaborg, sem
AGF tapaði 1-3. Það hefur gengið illa
hjá AGF að undanfómu og stjóm fé-
lagsins ákvað að grípa til harðra að-
gerða gegn leikmönnum liðsins eftir
þetta uppátæki leikmannanna sjö um
helgina. Með liði AGF leikur Helgi
Sigurðsson, sem hefur verið meiddur
að undanfómu.
Óvíst með Henry
og Ljungberg
Arsene Wenger, framkvæmdastjóri
Arsenal, hefur látið hafa eftir sér að
hann ætli að gefa Thierry Henry og
Freddie Ljungberg viku til að jafna sig af
meiðslum sem hrjá þá. Það er því alveg
óvíst með þá félaga í bikarúrslitaleiknum
á milli Arsenal og Manchester United
sem fer fram á Þúsaldarvellinum í
Cardiff 21. maí. Henry hefur verið meidd-
ur síðan í leiknum gegn Middlesbrough
9. apríl og því er leikform hans ekki eins
og best verður á kosið.
_
Kluivert á
förum til Spánar
Hollendingurinn Patrick Kluivert sem
leikið hefur með enska úrvalsdeildarlið-
inu Newcastle United, er væntanlega á
förum frá félaginu í sumar. Kluivert, sem
var keyptur til Newcastle í tíð sir
Bobbys Robson, hefur ekki náð að
sanna hæfileika sína í enska boltanum.
Hann hefur leikið 24 leiki, þar af 14
sinnum í byrjunarliði, og skorað sex
mörk í þessum leikjum. Tyrkneska liðið
Fenerbache hefur borið víurnar í Kluivert
en í samtali við News Of The World seg-
ir Kluivert að hann sé á förum til Spánar
í sumar. „Ég fer til Spánar en ekki til
Tyrklands,“ segir Kluivert.
Skíðaþing 2005
Skíðasamband (slands hélt sitt árlega
Skíðaþing um helgina. Þingið var haldið
í skíðaskála Breiðabliks í Bláfjöllum og
þar var mikil og hörð umræða um skíða-
íþróttina hér á landi og línur voru lagðar
fyrir næsta starfsár. Stærsta verkefni
næsta árs er eðlilega vetrarólympíuleik-
arnir í Tórínó á Ítalíu. Rekstur síðasta
starfsárs skilaði 2,6 milljónum í rekstr-
arafgang, sem verður að teljast mjög
gott. Þetta þýðir að SKÍ áætlar að vera
skuldlaust samþand fyrir árið 2007. Frið-
rik Einarsson var endurkjörinn formaður
sambandsins.
Friðrik Einarsson var endurkjörinn
formaður. Ein breyting var gerð á stjórn
sambandsins. Þröstur Már Sigurðsson
lét af störfum og var Árni Sæmundsson
kosinn nýr inn í stjórn.
Valencia og Inter í
leikmannaskiptum?
Forráðamenn spænska liðsins Valencia
og ítalska liðsins Inter eru að sögn
ítalskra og spænskra fjölmiðla í við-
ræðum út af risasamningi sem varðar
leikmannaskipti. Samkvæmt fréttum
fær Inter Stefano Fiore og Bernardo
Corradi til Ítalíu en í staðinn fær Valencia
Kily Gonzalez, Andy van der Meyde og
Edgar Davids. Þá hefur Grikkinn Georgis
Karagounis einnig verið nefndur sem
hluti af þessum samningi félaganna
ef Bernardo Corradi fer til Charlton á
Englandi en það gæti allt eins gerst.
Charlton hefur látið það spyrjast að þeir
séu tilbúnir til að greiða um sex milljónir
sterlingspunda fyrir Corradi en það er
jafnvirði um 734 milljóna íslenskra króna.
________________________■
Stefán tryggði
Lyn sigur
Stefán Gíslason, sem leikur með norska
liðinu Lyn, tryggði liði sínu sigur á meist-
urum Rosenborg í norsku úrvalsdeildinni
þegar Stefán skoraði sigurmarkið á
síðustu mínútu leiksins í 3-2 sigri Lyn.
Stefán skoraði markið með skalla og þar
með komst Lyn í fjórða sæti deildarinnar
en Rosenborg er í 6. sæti með átta stig.
Válerenga, sem Árni Gautur Arason
leikur með, er í efsta sæti eftir sex
umferðir með 15 stig. Válerenga vann
Bodö/Glimt á útivelli 0-1 og Árni Gautur
var að vanda í marki Válerenga. Start er
óvænt í öðru sæti með 13 stig en með
því liði leikur Jóhannes Harðarson. Start
vann Odd Grenland 4-0.
blaðið^
Morten Rasmussen fer í leikbann fyrir fyllerí