blaðið - 30.05.2005, Síða 10
mánudagur, 30. maí 2005 I blaðið
10 e
Tímasprengja
í Uzbekistan
magnus@vbl.is
Craig Murray, fyrrverandi sendi-
herra Breta í Uzbekistan, segir að
Bandaríkjamenn skapi aðstæður í
landinu sem ýti undir hrinu hryðju-
verka gegn Vesturlöndum.
Morð stjórnarhers Uzbekistans á
hundruðum þegna sinna hefur beint
kastljósi fjölmiðla að mannréttinda-
ástandi landsins. Föstudaginn 13.
maí fór bylgja ofbeldis og átaka um
ríkið í kjölfar þess að mótmælendur
brutust inn í fangelsi og frelsuðu
þar menn sem sakaðir voru af ríkis-
stjórninni um að tilheyra „múslímsk-
um öfgasamtökum". Sannleikurinn
er hins vegar sá að sakborningarnir
voru baráttumenn fyrir velferð þjóð-
ar sinnar sem sveltur heilu hungri
vegna gjörspilltrar stefnu stjórnar
sinnar. Síðan þá hefur forseti lands-
ins, Islam Karimov, verið harðlega
gagnrýndur af fræðimönnum og
stjórnmálaskýrendum og orðaður við
að vera næsti einræðisherra Miðaust-
urlanda á aftökulista bandamanna.
Bandaríkjamenn, sem halda úti
herstöð í landinu ásamt Rússum,
segja Karimov hins vegar ekki vera
í ónáð þeirra og að þeir viðurkenni
aðferðafræði hans í baráttunni við
„hryðjuverk". Þeir segja hann vera
mikilvægan samstarfsaðila í yfir-
standandi stríði sínu.
Craig Murrey var rekinn úr sendi-
herraembættinu árið 2004, eftir
að hann hóf að gagnrýna harðlega
ástandið í Uzbekistan.
í viðtali við A1 jazeera
fréttastofuna gagnrýnir
hann stefnu Karimovs og
Bandaríkjamanna harð-
lega. „Þetta er viðbjóðsleg
og hræðileg ríkisstjórn og
sú staðreynd að landinu
hefur verið lokað fyrir
fjölmiðlum segir allt sem
segja þarf,“ segir Murray.
Islam Karimov lýsti því
yfir fyrir skemmstu að
enginn forseti í heimin-
um myndi líða að fólk
brytist inn í fangelsi og
frelsaði þaðan menn sem
biðu dómsúrskurðar. „Þið
verðið að muna að helsta
ástæða skæranna í Uz-
bekistan er óánægja al-
mennings með dómskerfið," útskýrir
Murray. „Réttarhöldin eru oft og tíð-
um skrípaleikur og sú staðreynd að
99% þeirra enda með sakfellingu seg-
ir allt sem segja þarf. Fólk er fangels-
að fyrir skoðanir sínar svo það er ekki
óeðlilegt að mikillar vansældar gæti í
landinu og að fólk hafi litið á fangana
sem bræður sína fremur en andstæð-
inga. Tilraunir ríkisstj órnar U zbekist-
ans og Hvíta hússins til að úthrópa
sakborningana og andspyrnuhreyf-
ingarnar sem múslímsk öfgasamtök
eru óafsakanlegar. Égvart.d. í Andej-
an fyrir um það bil ári og ræddi þá við
leiðtoga Hizp ut Tahrin samtakanna,
sem er andspyrnuhreyfing sem hefur
verið stimpluð sem öfgasamtök ofsa-
trúarmanna. Það eina sem ég komst
að var að þeir börðust
fyrir hollustu þjóðar sinn-
ar. 99% af þjóðinni hafa
ekkert með samtökin að
gera, sem er hvort eð er
að öllu leyti friðsæl og
ofbeldislaus hreyfing. Ka-
rimov er miskunnarlaus
harðstjóri sem Banda-
ríkin styðja. George
Bush ber beina ábyrgð á
dauða þeirra 500 Uzbe-
kista sem nýverið voru
skotnir niður. Háttsettir
embættismenn Banda-
ríkjastjórnar, á borð við
Condoleezzu Rice, Don-
ald Rumsfeld og Colin Po-
well, hafa allir heimsótt
landið og ausið Karimov
hrósi.“
Nýverið fagnaði ríkisstjórn Banda-
ríkjanna opnun fyrsta hluta nýrrar
olíuleiðslu sem flytur olíu frá Kaspía-
hafinu til Vesturlanda. Landið er því
mikilvægt í efnahagslegum og hern-
aðarlegum skilningi, sem skýrir skil-
yrðislausan stuðning Bandaríkjanna
við Karimov. Murrey segir að vegna
þessa muni andspyrnuhreyfingar efl-
ast og dafna - Bandaríkjamenn séu
sjálfir að skapa ástand sem þeir segj-
ast beijast við.
Þið verðið
að muna
að helsta
■
ástæða
skæranna í
Uzbekistan
er óánægja
almennings
með dóms-
kerfið,
Sameinast Evrópa?
Chifac, rrakWíindafyraaii, ú kjðRjiað í gesr
Frakkar greiddu
í gær atkvæði
um nýja stjórn-
arskrá Evrópu-
sambandsins
Niðurstaða
var enn ekki ljós
þegar Blaðið fór
í prentun.
Skoðanakann-
anir hafa sýnt
að líklegt sé að
Frakkar hafni
stjórnarskránni.
Síðasta könnun
benti til að henni
yrði hafnað með 56% meirihluta.
Nýja stjórnarskráin er til þess
gerð að efla miðstýringu og ákvarð-
anatöku innan Evrópusambandsins
(ESB) eftir stækkun þess úr 15 í 25
ríki. Heit umræða hefur skapast í
Frakklandi en margir telja að stjórn-
arskráin leiði til þess að Frakkland
verði fyrir óbætanlegum efhahags-
legum skaða vegna nýríkjanna, sem
mörg hver stríða við mikla fátækt
og spillingu - vandi þeirra verði því
vandi Frakka.
Þegar kjörstaðir opnuðu á meg-
inlandi Frakklands í gærmorgun
sýndu kannanir að fimmtungur
þjóðarinnar var enn ekki búinn að
gera upp hug sinn.
Útkoma atkvæðagreiðslunnar
skiptir einnig Frakklandsforseta,
Jacques Chirac, miklu máli. Verði
stjórnarskráin felld mun hann
verða fyrir miklum álitshnekki en
hann hefur þó opinberlega lýst því
yfir að hann muni ekki segja af sér,
sama hver útkoman verður. Tvö ár
eru til kosninga og því gefst Chirac
svigrúm til að bæta stöðu sína, endi
atkvæðagreiðslan með höfhun, en
höfnun er beint merki um andstöðu
þjóðarinnar við pólitíska stefnu
hans. Chirac hefur opinberlega sagt
að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar
muni ekki hafa bein áhrif á stöðu
hans en að líkleg viðbrögð hans
muni felast í brottvikningu forsætis-
ráðherrans, Jean-Pierres Raffarin.
í Frakklandi eru 42 milljónir
skráðra kjósenda en kjörstöðum var
lokað kl. 10 í gærkveldi.
Nauðsjmlegt skilyrði þess að
stjórnarskráin taki gildi er sam-
þykki allra aðildarríkja Evrópu-
sambandins. Sé henni hafnað mun
sambandið starfa áfram undir eldri
sáttmálum, sem voru ekki hannaðir
til að stýra sambandi af núverandi
stærðargráðu. Því skiptir atkvæða-
greiðslan ekki einungis miklu máli
fyrir Frakkland heldur alla Evrópu.
Sé stjórnarskránni hafnað getur
það leitt til aukinna deilna milli að-
ildarríkja ESB. Fræðimenn telja að
höfmm stjórnarskrárinnar geti leitt
til stöðnunar og stefnuleysis innan
ESB en markmið þess er sameinuð
og efnahagslega sterk Evrópa - á
næstu dögum mun koma í ljós hvort
sú hugsjón verði að veruleika.
ALLT
Klaus raösófi meö kubbi í leðri á sértilboði
frá 229.000 kr. 20% sparnaður
SEM ÞARF TILAÐ
SKAPA HEILDARMYND A STOFÍ
KLAUS RAÐSÓFI Á SÉRTILBOÐI
Toppurinn í fjölhæfni, þægindum og hönnun i einum sófa. Með einstökum fjölbreytileika i einingum
gerir Klaussófinn (302sm x 139sm á mynd) þér kleift að móta stofuna þína að þínum óskum, sama
hvernig rýmið er. Djúp seta og þægilegur bakstuðningur veitir þér ítrustu þægindi og sófagrindin er
með 10 ára ábyrgð. Ennfremur færðu hentuga og aðlaðandi útfærslu með fagurlega hannaðri
bogaeiningu. Klaus, eins og hann er sýndur á myndinni með dreamfibre áklæði, getur orðið þinn með
20% afslætti og hraðri afgreiðslu, núna frá 149.000 kr. ítölsk hönnun, gæði og handbragð eru tryggð
af Natuzzi, heimsins fremsta framleiðanda í leðurhúsgögnum og leðursófum.
Tilboðið gildir ckki meö öörum tilboðum. Heimscnding er innifalin I verði á höfuöborgarsvaeðinu. Skjót afgreiðsla meðan birgðir endast. Fáöu frekari
upplýsingar eða ókeypis eintak af Natuzzi bæklingnum. Hringdu gjaldfrjálst i síma 800 4477 eöa smelltu á www.natuzzi.com
GÆÐAFRAMLEIÐSLA FRÁ ÍTALÍU - Vottað iso 9001-14001
NflTUZZI
It's how you live
Natuzzi verslunin: SMÁRAUND 201 Kópavogur - Sími 564 4477
Verslunin einnig opin á sunnudögum frá kl. 13-18