blaðið - 30.05.2005, Blaðsíða 14

blaðið - 30.05.2005, Blaðsíða 14
mánudagur, 30. maí 2005 I blaðið blaðiðs Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Kari Garðarsson. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn og auglýsingar: Bæjariind 14-16,201 Kópavogur. Aðalsími: 510-3700. Slmbréf á fréttadeild: 510- 3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510-3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, augiysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur. Stelpur standa sig vel Við útskrift úr Verzlunarskóla íslands vakti athygli að af ellefu hæstu nemendunum á stúdentsprófi þetta vorið voru tíu stúlk- ur. Skólastjórinn, Þorvarður Elíasson, sem nú var að ljúka 26 ára glæstum skólastjóraferli við skólann, spurði eftir að hafa afhent þessum fríða hópi verðlaun sín: „Hvar eru strákarnir?" Skólastjórinn fékk að einhverju leyti svar við spurningu sinni síðar á skólaslitahátíðinni þegar í ljós kom að fjórir strákar, en engin stúlka, hlutu viðurkenningu fyrir forystu og forsvar í félagsmálum Verzlunarskóla íslands. Á því virtist einnig vera að verða breyting því forseti nemendafélags Verzlunarskóla ís- lands er stúlka. Væntanlega er Verzlunarskóli íslands engin imtantekning þegar kemur að glæsilegum árangri stúlkna í námi. Á æ fleiri sviðum náms og starfa eru stúlkur og ungar konur að taka forystuna. Þessari forystu hafa þær náð án þess að þeim hafi verið skapað eitthvert sérstakt forskot, með tímabundnu mis- rétti kynjanna eða kynjakvótum, eins og gamlar konur í stjóm- málum og atvinnulífi vilja beita til að fjölga jafnöldrum sínum á Alþingi, í stjórnum, ráðum og nefndum einkaaðila og hins opinbera. Þetta er auðvitað algjörlega úrelt hugmyndafræði, sem ekki hefur skilað neinu og mun ekki skila neinu fyrir jafn- rétti kynjanna. Vonandi mun aukin menntun kvenna, og þar af leiðandi for- ysta þeirra í stjómmálum og atvinnulífi, leiða til þess að kon- ur fái sömu laun fyrir sömu störf og karlar en á því virðist enn vera misbrestur ef marka má viðtal við Runólf Ágústs- son, rektor Háskólans á Bifröst, síðastliðinn laugardag. Sam- kvæmt könnun, sem skólinn hefur gert um launakjör fyrrum nemenda sinna virðast konur, sem þaðan útskrifast, enn bera skarðan hlut frá borði þegar að launum kemur fyrir sambæri- leg störf og karlar gegna, sem er óviðunandi sé hæfni þeirra hin sama og karlanna. Ir) Leyndarmál lífsins! eftir Þorgrím Þráinsson Ýmislegt hefur verið rætt og ritað um upphaf veraldar en Fom-Grikk- ir höfðu ákveðna sögu að segja. Þeg- ar guðirnir höfðu skapað jörðina og manninn, dýrin, lífverur hafsins, plöntur og allt annað sem lífsand- ann dregur, áttu þeir aðeins eitt eftir ógert. Að fela leyndarmál lífsins þar sem það fyndist ekki fyrr en maður- inn hefði þroskast og þróað vitund sína nægilega til að geta skilið leynd- armálið. Guðirnir rökræddu fram og til baka um það hvar væri best að fela leyndarmálið. Einn sagði: „Við skul- um fela það uppi á hæsta fjallinu. Þar finnur maðurinn það aldrei." Annar sagði: „Við höfum skapað manninn með óseðjandi forvitni og metnað. Hann klífur að lokum hæsta fjallið." Þriðji guðinn stakk þá upp á því að fela leyndarmál lífsins á botni dýpsta hafsins. Annar svaraði þá að bragði: „Við höfum skapað mann- inn með ótæmandi ímyndunarafl og brennandi þrá til að rannsaka veröld sína. Fyrr eða síðar kemst maðurinn niður í hyldýpi hafsins." Að lokum fann guð nokkur bestu lausnina: „Við skulum fela leyndar- mál lífsins þar sem maðurinn mun síst leita, á stað sem hann finnur ekki fyrr en hann hefur gefist upp á öllum öðrum möguleikum og er loksins tilbú- inn fyrir leyndarmálið." „Hvar er það nú?“ spurðu hinir guð- imir hissa. „Það er í hjarta mannsins. Við skul- um fela leyndarmálið þar.“ Og þeir gerðu það. í hjartanu er lykillinn sem opnar dymar að ótakmörkuðum fjársjóði - hæfileika sem allir búa yfir, og dyrnar opnast ekki út á við heldur inn. Mörg okkar eyða ævinni í stöðugri leit að einhverju sem við getum ekki endilega skilgreint en tengist hamingju, ríkidæmi, við- urkenningu, huggun, fyr- irgefningu, frama og svo mætti lengi telja. Þegar líður að ævilokum gera flestir sér grein fyrir því að leitin var tímasó- un. ÞAÐ VAR EKKERT TÝNT. Það sem við leit- uðum að var innra með okkur en hraði nútímans, kröfumar, lífsgæðakapphlaupið, samkeppnin og metingurinn villti okkur sýn. Til allr- ar hamingju átta margir sig á því í tíma að lykillinn að hinum ótakmark- aða fjársjóði er innra með okkur. Til að festa hönd á honum þarf einungis að staldra sig við, gefa sér tíma í ein- rúmi til að hugleiða, draga djúpt and- ann og einbeita sé inn á við. Vitrir menn hafa sagt að við þrosk- umst mest í þögninni. Það vita þeir sem til þekkja að kyrrð er undir- staða sköpunar. í hinni aldagömlu kínversku Qi-gong „lífsorkuíþrótt" er sú æfing mest krefjandi að standa í fullkominni kyrrð og draga djúpt and- ann. Með þeim hætti aflar maður sér mestrar lífsorku og innan skamms opnast dyrnar inn á við. Öndunin hleður okkur orku en djúpur, meðvit- aður andardráttur veitir okkur sýn inn í nýja og eftirsóknarverða veröld. Þegar sú sýn blasir við fómm við að treysta innsæinu, sjá veröldina í nýju ljósi og lifa því lífi sem okkur langar virkilega að lifa. í amstri dagsins getur verið erfið- leikum bundið að eiga kyrrðarstund, hugleiða eða hreinlega gefa sér tíma fyrir sjálfan sig en ef við helgum ákveðnum tíma dags sjálfum okkur og virðum friðhelgi hans, höfum við tek- ið ákveðið skref í þroska og þeirri leit sem skiptir okkur máli. Sumir vinna við þær að- stæður að geta slökkt á símanum tímabundið og skellt blaði á hurðina með áletrunni: „Ónáðið ekki“, til að fá firið fyrir sjálfan sig. Flest eigum við lögbundinn kaffi- og matartíma en hvemig veijum við honum? Þá er hægt að vakna hálf- tíma fyrr á morgnanna og gefa sjónvarpinu frí á kvöldin til að draga djúpt andann, hugleiða, nálg- ast leyndamál lífsins. Ef viljinn er fyrir hendi er hægt að finna hugleiðsluhópa, sameinast í kyrrðarstund með öðmm, og nokkrar kirkjur em opnar jdir daginn. í þeim er kyrrð og friður. Minn eftirlætisstað- ur er Landakotskirkja. Hún er opin al- menningi nánast allan sólarhringinn. Þar er guðdómlegt að sitja í kyrrð og draga djúpt andann, hugleiða og fær- ast nær fjársjóðnum. Það að ganga inn í Landakotskirkju er eins og að ganga inn í aðra veröld. Ef við gefum okkur tíma fyrir sjálf okkr, fórum í könnunarleiðangur, þá skomm við veikleika okkar á hólm, tökumst á við hégómann, neitum að sætta okkur við að láta leiða okkur í blindni í gegnum lífið. Það er engin tilviljun að margir fá sínar bestu hug- myndir í þann mund sem þeir em að festa blund. Þá erhugurinn ekki leng- ur eins og ólgusjór heldur spegilslétt- ur. Hugmyndimar spretta þá upp, hver annarri betri. Við uppljómumst og öðlumst innblástur. Þá er um að gera að nýta tækifærið, skrifa hjá sér, nýta meðbyrinn. Andann. En... svo hefst nýr dagur á þeim ógnarhraða sem einkennir líf flestra og við sjáum ekki handaskil fyrir verkefnum sem sum hver skipta engu máli. Með því að láta Póstinn sjá unrfy allan pakkann sparar þú rekstfi kostnað. Pósturinn kemurá Jfí fyrirfram ákveðnum tíma. teáur allar sendingar og skilar þejng fljótt og örugglega til viðtakferyda Hafðu samband við sölufuprúa í síma 580-1090 eða í nejfangið sala@postur.is og fáði/nánari upplýsingar. / jpf? www.postur.is PÓSTURINN

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.