blaðið - 30.05.2005, Page 22
'mmmr
j
mánudagur, 30. maí 2005 I biaðið
iVllLD SE\;|
Spánveijinn ungi, Femando Alonso,
sigraði í gær í Evrópukappakstrinum
á Nurburgring-brautinni í
sigur Spánveijans í Formúlu 1
kappakstrinum á keppnistímabilinu.
Finnski ökuþórinn Kimi Ráikkonen
Þýskalandi. Þetta var flórði var í forystu allt frá fyrstu beygju
Staðan í keppni ökumanna þegar 12 keppnir eru eftir:
1 Fernando Alonso spænskur Renault 59
2 Kimi Ráikkönen finnskur McLaren-Mercedes 27
2= Jarno Trulli ítalskur Toyota 27
4 Nick Heidfeld þýskur Williams-BMW 25
5 Mark Webber ástralskur Williams-BMW 18
6 Giancarlo Fisichella ítalskur Renault 17
6= Ralf Schumacher þýskur Toyota 17
8 Michael Schumacher þýskur Ferrari 16
8= Juan Pablo Montoya kólumbískur McLaren-Mercedes 16
10 Rubens Barrichello brasilískur Ferrari 15
10= David Coulthard breskur Red Bull Raclng 15
12 Alexander Wurz austurrískur McLaren-Mercedes 6
13 Jacques Villeneuve bandarískur Sauber-Petronas 5
14 Pedro de la Rosa spænskur McLaren-Mercedes 4
15 Christian Klien austurrískur Red Bull Racing 3
16 Felipe Massa brasilískur Sauber-Petronas 2
17 Vitantonio Liuzzi ítalskur Red Bull Racing 1
í gær en á lokahringnum brotnaði
framhjól á bíl hans og Alonso nýtti
sér það til fullnustu, brunaði fram
úr og sigraði. Heimsmeistarinn,
Michael Schumacher, varð í 5. sæti en
meistaranum hefur gengið afleitlega
það sem af er.
Röð efstu manna í
Nurburgring varð eftirfarandi:
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
Fernando Alonso.
Nick Heidfeld.
Rubens Barrichello.
David Coulthard.
Michael Schumacher.
Giancarlo Fisichella.
Juan Pablo Montoya.
Jarno Trulli.
Vitantonio Liuzzi.
Jenson Button.
Fær Liverpool að vera með?
Lennart Johansson, forseti Knattspymusambands Evrópu, sagði í
samtali við breska blaðið The Sunday Times að sambandið yrði að flýta
sér að taka ákvörðun um hvort Liverpool verði gefið sæti í Meistara-
deildinni á næstu leiktíð. Samkvæmt reglum UEFA fær sigurvegari í
Meistaradeildinni ekki sjálfkrafa sæti í keppninni eins og tíðkaðist fyrir
nokkmm ámm heldur verður lið að vinna sér þátttökurétt í landskeppni
viðkomandi lands. Chelsea, Arsenal, Manchester United og Everton
urðu í fjórum efstu sætum ensku úrvalsdeildarinnar og unnu sér þar
með þátttökurétt í keppninni. Lennart Johansson segir í samtalinu að
sigurvegari Meistaradeildarinnar eigi að fá tækifæri til að veija titilinn
á næstu leiktíð, óháð frammistöðu í heimalandinu. „Við verðum að setj-
ast niður og sjá hvort það er ekki möguleiki á að Liverpool geti varið
titilinn, og ef það er einhver regla sem getur skaðað keppnina þá verðum
við einfaldlega að breyta þeirri reglu,“ sagði Lennart Johansson, forseti
UEFA.
Þessi tíðindi verða að teljast mjög svo jákvæð fyrir Liverpool og að-
dáendur liðsins geta haldið áfram að brosa því þessi orð forseta UEFA
era til marks um að knattspyrnusamband Evrópu sé að leita leiða til að
Evrópumeistaramir geti varið titilinn á næstu leiktíð.
Spurs að klára Suns
San Antonio Spurs er á góðri leið
með að sópa Phoenix Suns út úr úr-
slitakeppni NBA-körfuboltans í ár.
Liðin mættust þriðja sinni um helg-
ina í úrslitum Vesturdeildar og var
leikið. í San Antonio. Staðan í hálf-
leik var 56-39 fyrir Spurs en í öðmm
leikhluta skoraði Phoenix aðeins 10
stig. Seinni hálfleikur var nokkuð
jafn og tíu stiga sigur Spurs-manna,
102-92, var mjög sannfærandi. Tim
Duncan átti stórleik, skoraði 33 stig
og tók 15 fráköst. Manú Ginobili
skoraði 18 stig og hirti m'u fráköst
og Tony Parker var einnig með 18
stig og átti sjö stoðsendingar. í liði
Phoenix var Amare Stoudemire eini
maðurinn sem eitthvað kvað að en
hann skoraði 34 stig og tók 11 frá-
köst. Steve Nash skoraði 20 stig en
þessi mikli stoðsendingaleikmaður
átti aðeins þijár stoðsendingar í
leiknum á þeim 40 mínútum sem
hann spilaði. San Antonio leiðir
því 3-0 í einvígi liðanna og þarf því
aðeins einn sigur til viðbótar til að
komast í úrslit um NBA-meistara-
titihnn og mætir þar annaðhvort Mi-
ami Heat eða Detroit Pistons. ■
Bætti Islandsmetið
í spjótkasti
Ásdís Hjálmsdóttir bætti á laug-
ardagsmorgun íslandsmetið í
Kikasti, Ásdís, sem keppir fyrir
ann, setti metið á Vormóti Fijáls-
íþróttaráðs Reykjavíkur. Nýja metið
er 57,10 metrar og bætti hún gamla
metið, sem Vígdís Guðjónsdóttir átti,
um rúmlega einn og hálfan metra en
það var 55,54 metrar. Það met setti
Vigdís í Idaho í Bandaríkjunum fyr-
ir sex ámm. Þetta er fyrsta keppni
Ásdísar í spjótkasti á þessu ári en
lengst kastaði hún á síðasta ári 55,51
metra. Ásdís átti mjög góða kastser-
íu á laugardag. Næstlengsta kast
hennar mældist 56,59 metrar, þriðja
lengsta kastið var 54,05 metrar og
fjórða lengsta kastið 53,39 metrar. Ás-
dís, sem verður tvítug í haust, útskrif-
aðist sem stúdent frá Menntaskólan-
um við Hamrahlíð á laugardag. 1 gær
hélt hún utan til Andorra á Smáþjóða-
leikana, ásamt fiölmörgum öðrum ís-
lenskum keppendum.
Kassaklifur - GP5 ratleikir - Bátasiglingar - Vatnaleikir - Frumbyggjastönf -
w
ÉJMAftBÖÐIRNAR
ÚLFLJÓTSVATNI
7-8
» ára
Einstök krakkanámskeið
9-12
ára
Almenn námskeið
Utilíf og œvintýri! Vinir, fjör og hópefli!
INNRITUN ER HAFIN - Opið virka daga kl. 10-16 - sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljotsvatn.is.
Upplýsingar og skráning á netinu:
www.ulfljotsvatn.is