blaðið - 30.05.2005, Síða 31
blaðið ! mánudagur, 30. maí 2005
Eva LongorSa
vonlítil um
ást Brads Pitt
Leikkonan vinsæla í framhaldsþátt-
unum Aðþrengdar eiginkonur er
eitthvað farin að efast um möguleika
sína á að krækja í kvennagullið Brad
Pitt. Hún hefur þó ekki látið sitt eft-
ir liggja og gefið sterklega í skyn að
hún hafi áhuga á að kynnast honum
náið. Hún gekk meðal annars um í
bol með áletruninni: „Brad, ég vil
eignast barn með þér“ en allt kom
fyrir ekki. Nú hefur hún gefist upp
og viðurkennir að Angelina Jolie sé
konan í lífi Brads um þessar mund-
ir. „Ég held við verðum bara að við-
urkenna að hann er með Angelinu
Jolie núna,“ segir Eva og bætir við
að það hefði verið gaman að fara út
með Brad en hún muni ekki gráta sig
í svefh út af honum.
Rod Stewart
faðir á ný
Gamla kempan Rod Stewart og kær-
asta hans, Penny Lancaster, eiga
von á barni og þau eru að sögn yfir
sig hrifin og bíða spennt komu nýja
barnsins. Þau hafa ákveðið að gifta
sig á næsta ári eða fljótlega eftir að
skilnaður Rods Stewart við fyrrver-
andi eiginkonu sína, Rachel Hunter,
gengur í gegn. Rod er vanur maður
þegar kemur að barneignum en hann
á þegar sex börn ffá fyrri hjónabönd-
um.
Mannabreyt-
ingar hiá
Froða
Björn Jörundur Friðbjömsson, sem
ritstýrt hefur tímaritinu Bleikt og
blátt, sem Fróði gefur út, mun brátt
láta af störfum samkvæmt heimild-
um Blaðsins. Bleikt og blátt kom
heldur illa út úr síðustu lesendakönn-
un og liggja eigendur Fróða undir
feldi þessa dagana, enda er nauðsyn-
legt að auka vinsældir blaðsins. Ekki
er vitað hver tekur við af Bimi Jör-
undi... ■
Frá DV í
alþjóða-
samfélagið...
Þá mun Kristján Guytíurgess vera
að hætta sem fféttastjóri DV. Krist-
ján Guy hefur notið virðingar í
blaðamannastéttinni þó að skiptar
skoðanir hafi verið um blaðið sem
hann starfar hjá. Ekki hefur fengist
staðfest hvað Kristján ætlar að fara
að gera en heimildir Blaðsins herma
að hann hafi áhuga á alþjóðamálum,
hvort sem er á sviði Sameinuðu þjóð-
anna eða annars staðar...
B
gerir grin
Nýtt lag kappans Eminem hefur vakið umdeilda athygli en
textinn þykir ansi harðorður í garð annarra poppstjarna. Þar
er meðal annars gert grín að Gwen Stefani, Britney Spears
og Elton John. Talsmaður Eminem verst allra mála og seg-
ir sumar poppstjörnur vera eins og leikbrúður sem ekki eigi
heima í veruleikanum eins og við hin, og það sé nauðsynlegt
að gera aðeins grín að þeim og þeirra lífsmáta.
Barbra
Streisand
Dustin
Hoffman
Robert
De Niro
Misetyiovöfanu'y-
ÍÍaucub
Keyptu þær báðar á
Meet the Fockers
Fjölskylduharmleikurinn vofir
yfir karlhjúkkunni Greg Focker
(Stiller) þegar tengdafaðir hans
(De Niro), siðapostuli og fyrrve-
randi CIA-fulltrúi, vill hitta
óvenjulega foreldra hans
(Streisand og Hoffman).
Eins og i fyrri myndinni vaknar
spurningin: Hvers konarfólk
sklrir son sinn Gaylord M.
Focker? Fjölskyldutengslin fara
heldur betur úr böndunum
þessari frábæru gamanmynd.
BT Skeifan • BT Kringlan • BT Smáralind • BT Hafnarfjöröur • BT Spönginni • BT Akureyri • BT Egilsstaðir • BT Selfoss • BT ísafjörður • www.bt.is • Simi 550 4444