blaðið - 10.06.2005, Blaðsíða 1
Veidu ódýrt bensín #
^k+airiilíling/
\
W' \<' %\
Kvittun íýtgir ávinningur!
Suðræn stemmning Er ástin sterkari en
4 *vT
nu
- bls. 18
Jífsviljinn?
bls. 20
Meira fyrir peninginn
Hin fjöihæfa Bancroft - bis. is
Ritstjórnar- og auglýsingasími: 510 3700 • biadid@vbl.is
Hannes býðst til að
gefa gæsalappir
- bls. 2
Ráðherra sendir
Bretum tóninn
- bls. 4
Flugvöll út í Engey!
- bls. 14
Nýtt hótel
verður opnað í dag
- bls. 2
Ástþór leggur Sjóvá
- bls. 4
Ríkisendurskoðun
rannsakar Halldór
Ríkisendurskoðun mun á næstunni
kanna hvort Halldór Ásgrímsson
forsætisráðherra hafi verið vanhæf-
ur til að taka ákvarðanir um sölu
ríkisbankanna. Ástæðan eru eigna-
tengsl, sem og fjölskyldutengsl,
ráðherrans við fyrirtækið Skinney-
Þinganes. Það fyrirtæki átti helm-
ingshlut í fyrirtækinu Hesteyri,
sem aftur átti hlut í Keri. Ker var
síðan aðili að S-hópnum svonefnda,
sem keypti Búnaðarbankann.
Sigurður Þórðarson ríkisendur-
skoðandi staðfesti í samtali við
Blaðið í gær að stofnunin myndi
fara yfir málið.
„Við erum að afla okkur upplýs-
inga um þetta mál og svo skoðum
við það með tilliti til stjómsýslu-
laga.“
Að sögn Sigurðar komu nýjar
upplýsingar fram við yfirferð fjár-
laganefndar um máhð og þær sé
nauðsynlegt að skoða.
„Við lítum á þetta sem framhald
af þeirri vinnu sem við unnum að
beiðni íjárlaganefndar og munum
gefa nefndinni skýrslu um niður-
stöðu okkar þegar hún liggur fyr-
Hlýtur að íhuga afsögn
Einar Már Sigurðarson, fulltrúi
Samfylkingarinnar í fjárlaganefnd,
lítur málið alvarlegum augum.
„Það er fagnaðarefni að Ríkisendur-
skoðun taki málið þessum tökum. Nið-
urstaða hennar getur verið á tvennan
veg. Annars vegar talið aðkomu ráð-
herra að málinu eðlilega eða að hann
hafi verið vanhæfur að fjalla um mál-
ið. Ef það verður niðurstaðan hlýtur
ráðherra að íhuga alvarlega afsögn
Ummælum viðskipta-
ráðherra fálega tekið
Ummæli Valgerðar Sverrisdóttur
viðskiptaráðherra um viðskiptaveldi
Björgólfsfeðga í fjölmiðlum í gær hafa
mælst afar misjafnlega fyrir, en þar
sagði hún þá gína yfir öllu. Fáum kom
á óvart að Björgólfur Guðmundsson
gæfi lítið fyrir ummæli hennar, en
í viðtali við Blaðið tók Einar Sveins-
son, stjómarformaður íslandsbanka
í sama streng: „Atvinnulífið óskar
almennt séð ekki eftir miklum pólit-
ískum inngripum."
„Éghef áhyggjur af fákeppni á ýms-
um mörkuðum, enda fer ég með sam-
keppnismál sem ráðherra og þarna
eru ýmsar vísbendingar um að þama
sé að verða meiri fákeppni á fjármála-
markaði og ég má og á að tjá mig um
það sem stjórnmálamaður," segir
Valgerður Sverrisdóttir. Hún vildi á
hinn bóginn taka skýrt fram að hún
hefði engin afskipti af þeim eftirlits-
stofnunum, sem heyri undir ráðuneyt-
ið í þessu samhengi.
Stjómendur í slandsbanka hafa lagt
áherslu á að þeir séu enn með meiri-
hluta í bankanum og Björgólfur Guð-
mundsson sagði í gær ekki ástæðu til
þess að rengja það. Af þeirri ástæðu
telja sumir að harðorðar yfirlýsingar
Valgerðar hafi verið ótímabærar. „Ég
átta mig alveg á því hvað er að gerast
þarna," segir Valgerður. „Ég hlýt að
hafa áhyggjur af því ef upp em komin
áform um að sameina tvo af þijá við-
skiptabönkum landsins.“
Valgerður sagði fullt tilefni til
athugasemda sinna en taldi að við-
brögð Björgólfs Guðmimdssonar við
þeim hafa getað verið hófstilltari.
„Mér finnst hann fara niður á dálítið
lágt plan þegar hann er að reyna að
líkja Landsbankanum við Framsókn-
arflokkinn," segir Valgerður.
Laun æðstu
embættismanna
hækka
Kjaradómur úrskurðaði í gær að
laun æðstu embættismanna ríkisins
skuli hækka frá 1. júlí næstkomandi.
Laun forseta íslands verða þannig
1.534.040 krónur á mánuði, forsæt-
isráðherra fær rúmar 915 þúsund og
aðrir ráðherrar rúmar 825 þúsund
krónur. Þetta er að meðtöldu þing-
fararkaupi. Laun forseta Hæstarétt-
ar hækka í 626.863, biskup íslands
færa rúmlega 565 þúsund og þingfar-
arkaup hækkar í 459.929 krónur á
mánuði. ■
Bjóðendur fá
ekki að hitta
fjárlaganefnd
Fulltrúar stjómarflokkanna í fjár-
laganefnd felldu í gær tillögu stjórn-
arandstöðunnar um að skoða sölu-
ferli ríkisbankanna frekar. Að sögn
Einars Más Sigurðarsonar, fulltrúa
Samfylkingarinnar í fjárlaganefnd,
fór minnihlutinn meðal annars fram
á að hitta fulltrúa þeirra þriggja að-
ila sem helst komu til greina við
kaup bankanna. Nánar tiltekið vildi
minnihlutinn hitta fulltrúa Samson-
hópsins, sem keypti Landsbankann,
S-hópsins sem keypti Búnaðarbank-
ann, og ennfremur fulltrúa Kald-
baks, en kom næst hinum hópunum
tveimur við kaupin.
Miklar breytingar
á samsetningu S-hópsins
„Það lágu mismunandi ástæður fyrir
því að við vildum hitta þessa hópa,“
sagði Einar. „Hvað Samson varðar
var ein ástæðan sú að hópurinn mót-
mælti sölu VÍS út úr Landsbankan-
um og við vildum fá að heyra athuga-
semdir hópsins. S-hópinn vildum við
hitta meðal annars vegna mikilla
breytinga sem urðu á samsetningu
hans meðan á söluferlinu stóð. Sem
dæmi voru aðeins tveir aðilar sem
fylgdu hópnum frá upphafi til kaupa,
og þeir aðilar keyptu að lokum aðeins
um 15% hlutabréfa í Búnaðarbankan-
um. Hvað Kaldbak varðar vildum við
meðal annars fá viðhorf þeirra gagn-
vart þeirri niðurstöðu Einkavæðing-
arnefndar að þeir væru síðri kostur
en þeir sem að lokum eignuðust bank-
ana,“ sagði Einar.
ókeypis til
0%, A
F I m 8 8 £
m V V
heimiia og fyrirtækja
alla virka daga
Hellu
STEYPUSTÖÐIN S. 540 6800 www.steypustodin.is