blaðið - 10.06.2005, Blaðsíða 8

blaðið - 10.06.2005, Blaðsíða 8
föstudagur, 10. júní 2005 I blaðið 8 erlent Sendinefnd frá ESB í sögulegri íraksheimsókn ESB hefur sent sterka sendinefnd til Bagdad. Vonir eru bundnar við sam- starf ESB og íraks, þar sem nokkuð er umliðið frá því Íraksstríðið setti blett á samskipti á milli þeirra. „Stríðið sundraði okkur í Evrópu en nú erum við sameinuð um að styðja írak,“ sagði Jean Asselborn, utanrík- isráðherra Lúxemborgar, eftir fundi með Jalal Talabani, forseta íraks, í gœr. „Við höfum sagt skilið við fortíð- ina til þess að vinna saman að fram- tíð íraks,“ sagði Jack Straw, utanrík- isráðherra Breta, en Bretar taka við stjórn Evrópusambandsins í júlí. Sögulegur fundur Javier Solana, framkvæmdastjóri ESB, og Benita Ferrero-Waídner, ut- anríkisstjóri ESB, voru viðstödd fund sem lýst var sem „sögulegum" fyrir alþjóðaráðstefnu um uppbyggingu ír- aks seinna í mánuðinum. Hún mun fara fram í Brussel, með þátttöku 85 þjóða og 40 manna sendinefndar frá Irak. „Eg tel þetta mjög mikilvægan atburð því þetta gæti verið upphafið að nýjum stjórnmálatengslum sem gæti orðið að gefandi samstarfi,“ sagði Benita Ferrero-Waldner fyrir fund sendinefndarinnar með Ibra- him Jaafari, forsætisráðherra íraks. Asselborn tók sérstaklega fram að ráðstefnan í Brussel myndi ekki vera „til að tala um írak - við munum tala við írak.“ augnablikinu limhmm Barnaskóli rýmdur í Kolding 440 manns forðað Barnaskóli var rýmdur í Kolding í Danmörku effcir sprengjuhótun sem barst kl. 8.20 í gær. Þá hringdi karlmaður inn til neyðarlínu og tilkynnti að sprengja myndi springa í skólanum kl. 9.15. Hann lauk samtalinu með því að segja á dönsku: „AUuh er mikill," en tsdið er að hann sé Dani sem hafi reynt að hljóma eins og útlendingur. Leitað var í skólahúsinu eftir rým- ingu en engar sprengjur fundust. vinkœlar Verð 25.000 kr. ís-húsið 566 Smíða enn fleiri kjarnavopn Kim Gye Gwan, aðstoðarutanríkis- ráðherra Norður-Kóreu, sagði í við- tali við bandaríska sjónvarpsstöð að Norður-Kórea ætti töluvert af kjamorkusprengjum og verið væri að smíða fleiri. Aðspurður um fjölda sagði hann. „Ég myndi segja að við hefðum nóg af kjarnorkusprengjum til þess að veijast árás frá Bandaríkj- unum.“ Einnig svaraði hann játandi spumingu um hvort ráðamenn í Py- ongyang stæðu að frekari smíðum á kj arnorkusprengjum. Setur viðræður í uppnám Þessi lýsing á kjarnorkuuppbygg- ingu Norður-Kóreubúa gerir fram- tíð viðræðna um að ná friðsamlegri lausn á kjarnorkuafvopnun Kóreu- skagans mjög óljósa. Ráðamenn í Washington telja að Norður-Kórea búi yfir einni eða tveimur sprengjum og kannski endurunnu plútóníumi fyrir 6-7 sprengjur í viðbót. Neitar að staðfesta Kim, sem er samningamaður Norður-Kóreu í sex ríkja-hópnum sem stefnir að afvopnun á Kóreu- skaganum, vildi hvorki staðfesta né mótmæla því að Norður-Kórea ætti langdrægar flaugar sem gætu hæft skotmörk í Bandaríkjunum, og kom ekki með afgerandi svar við spurn- ingunni um hvort Norður-Kórea gæti sett kjamaodda á langdrægu flaug- arnar. „Ég get sagt ykkur að vísinda- menn okkar hafa sömu þekkingu og vísindamenn annars staðar í heimin- um,“ sagði hann og bætti við: „Lesið úr því það sem þið viljið.“ Hann tók þó fram að Norður-Kórea hefði „ekki í hyggju að ráðast á Bandaríkin.“ Bush segir viðskiptabann möguleika í viðtali við Fox-sjónvarpsstöð- ina sagði George W. Bush að við- skiptabann gegn Norður-Kóreu væri möguleiki. „Norður-Kórea verður að skilja... að Bandaríkin eru mjög ákveðin í þvf að vinna með fjórum öðrum ríkjum til þess að sannfæra þá um að losa sig við vopnabúnað sinn.“ Norður-Kórea hyggst snið- ganga viðræður Kínveijar, sem eru nánir bandamenn Norður-Kóreu, sögðust ekkert vita um nein kjarnavopn, en Japanar lýstu nágrönnum sínum sem „ógn við heimsfrið“ og ítrekuðu að nauðsynlegt væri að N.-Kórea sneri aftur að samningaborðinu. Norður- Kóreumenn hafa þó sagst ætla að halda áfram að sniðganga frekari afvopnunarumræður en Bandaríkja- menn viðhalda stefnu, sem Norður- Kóreumenn kalla „óvinveitta“, þar til Bandaríkjamenn fallast á kröfur þeirra. Enn er ekki búið að staðfesta tímasetningu fyrir næstu umferð af samningaviðræðum þjóðanna sex. ■ HÓTÉL BOKC KyNNIK: Kaffihlaðborð alla sunnudaga kl. Í4.00 -17.00 Ví7rð Í.250 kr. á roann V^rið v^lkomin Öryggissveitir halda stjórnarandstöðu í stofufangelsi Eþíópískar öryggissveitir settu nokkra af leiðtogum stjórnar- andstöðunnar í stofufangelsi á fimmtudaginn, degi eftir að lög- regla og hermenn skutu á hópa og drápu að minnsta kosti 26 manns í verstu átökum í Addis Ababa í fjögur ár. Áhyggjur af að sagan endurtaki sig Eldri íbúar Addis Ababa hafa áhyggjur af afturhvaríi til ein- ræðis. Þeir segja að aðgerðirnar minni á valdaránið sem setti Ha- ile Selassie af og kom marxíska einræðisherranum Mengistu Haile Mariam til valda 1974. EPRDF-flokkurinn hefur verið við völd síðan skæruliðaher for- sætisráðherrans Meles Zenawi steypti Mengistu af stóli. Banda- ríkjamenn, sem líta á Eþíópíu- búa sem lykilbandamenn í stríð- inu gegn hryðjuverkum, hafa beðið báða aðila um að setjast að samningaborðinu og víkja frá ofbeldi. Sendiráðum lokað í Ástralíu Fimm sendiráðum var snarlega lokað í Canberra í gær eftir að þeim bárust pakkar með tor- kennilegu hvítu dufti. Öll sendi- ráðin sem sent var á tengjast íraksstríðinu, t.d. með þátttöku herliðs. Sendiráð Bandaríkj- anna, Bretlands og Japans voru meðal þeirra sem fengu send- ingu, en einnig var sent á skrif- stofu forsætisráðherra Ástralíu og ástralska þingið. Pakkar í rannsókn „Allir pakkamir sjö hafa verið sendir í rannsókn, en það er búið að staðfesta að pakkarnir, sem fóru til breska og ítalska sendiráðsins, eru meinlausir," segir talsmaður lögreglu. „Það er of snemmt að draga ályktan- ir um ásetning eða hvort þessi atvik tengist." Fundað um framhald Bólívíska þingið fundaði í gær til að taka ákvörðun um afsögn Carlosar Mesa, fyrrverandi Ból- ívíu-forseta. Talið er líklegt að þingið muni samþykkja afsögn Mesa. Stjórnarskráin segir að þingforsetinn Hormando Vaca Diez eigi að taka við, en stjórnar- andstaðan lítur á Vaca Diez sem ótækan frambjóðanda og heimt- ar kosningar. Leiðtogar and- spyrnuhópa hvetja borgara til uppþots ef fulltrúi „stjórnarmafi- unnar“ sest í forsetastólinn.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.