blaðið - 10.06.2005, Blaðsíða 20

blaðið - 10.06.2005, Blaðsíða 20
föstudagur, 10. júní 2005 I blaðið af sýningunni CIRCUS. Hönnun frá Bergen, sem mun standa yfir í Hönnunarsafni íslands í sumar. býður Epal þér í samvinnu við Norska sendiráðið og Hönnunarsafnið að koma í Skeifuna 6. föstudaginn 10. júní milli klukkan 17 og 19. Þar gefst færi á að hitta norsku hönnuðina Steinar Hindenes og Dave Vikören. en verk þeirra verða sýnd í Hönnunarsafninu. Einnig verða staddir í Epal fulltrúar frá Fora Form f Noregi og Hansen & Sorensen í Danmörku, sem framleiða Circus-húsgögn. í Epal verður á sama tíma frumsýndur stóll frá Stokke í Noregi hannaður af japanska arkitektinum Toshiyuki Kita og verða fulltrúar Stokke viðstaddir frumsýninguna. NORGES AMBASSADE Er ástin sterkari en Ástfangid fólk getur einfaldlega misst völdin Vísindamenn í Bandaríkjunum fóru nýverið af stað með rannsókn sem miðar að því að skoða áhrif ástarinnar á líkams- starfsemi í heild sinni. Rannsóknin er gerð í kjölfar margra tilgátna um að fólk, sem nýlega hefur orð- ið ástfangið, beri þess vott að eiga í miklum vandræðum með tilvist sína. Þetta á auðvitað ekki við um alla þó svo að marg- ir þekki eflaust þá tilfinningu að vera „ástfanginn upp fyrir haus“. Hér er þó átt við nýtilkomna ást sem gerir það að verk- um að viðkomandi á í veruleikakreppu og fær ekki rönd við reist. Dr. Luce Brown og dr. Helen Fisher hafa báðar kynnt sér breytingar á heila- starfsemi fólks í þessum sporum og hafa nú leitt líkum að því að sú til- finning, sem fólk upplifir þegar það er ástfangið, geti mögulega verið sterkari en viljinn til lífs. Þrotlausar símhringingar í hinn heittelskaða og öskur af hús- þökum Það hefur sýnt sig að ástfangið fólk getur þjáðst af því sem heyrir almennt til geðraskana. Oft er um maníska hegðun að ræða, andlega vanlíðan, persónuleikaraskanir og þráhyggju, auk þess sem fólk á það til að fjarlægjast ættingja og vini. „Þrot- lausar símhringingar í hinn heittelsk- aða, óeðlilegar tilraunir til að heilla manneskjuna og öskur af húsþökum, eru dæmi um hegðun sem fólk sýnir við þessar aðstæður," segir dr. Helen Fisher, en hún ásamt stöliu sinni vill meina að ákveðinn partur heilans Á1fablóm Á1fheimum geti framkallað óbilandi ástríðuhvat- ir. „Þegar þú ert í þessu ástandi getur það riðið þér að fullu, þú getur misst stjórn á hlutunum, þú ert pirraður og þú ferð í ræktina kl. 6 á morgnana alla daga til þess að fá útrás fyrir innri togstreitu. Svo missa sumir al- gerlega vitið þegar þeim er hafnað; þeir geta verið líklegir til manndráps eða sjálfsmorðs." Með tíð og tíma batnar ástandið Samkvæmt rannsóknum á starf- semi heilans þegar fólk er ástfangið hafa verið settar fram tilgátur um að tilfinningin geti líkst grunnhvöt- um, eins og t.d. þeim að borða og drekka. Fólki finnur hjá sér þörf fyr- ir einhverja uppfyllingu án þess að vita í raun hver hún er og óreglulegt lífemi gerir vart við sig, að flestum ómeðvituðum. Hins vegar jafnar fólk sig á þessari upplifun ef til sam- bands kemur og heilinn slakar á þess- um efnaskiptum sem ráða sjúklegu ástandinu. Með tíð og tíma verður við- komandi í stakk búinn til að takast á við sambandið og verður eðlilegur áný. Af gefnu tilefni er þess getið að ástand sem þetta brýst ekki út hjá meirihluta fólks - sjúkleg hegðun og vanlíðan verður eingöngu hjá ókveðn- um hluta og oft háð aðstæðum, æsku eða öðru sem haft getur áhrif á mann- eskjuna. Fákafeni 9 // 108 Reykjavík // Sími 588 6555 Góð ráö fyrir vel heppnað stefnumót • Gerið varaáætlun. Veður getur breyst snögglega, veitingastaðir geta verið lokaðir vegna breytinga eða miðinn get- ur verið hreinlega ónothæfur. Gott er að hafa aðra áætlun til taks ef örlagaglettur hversdags- ins setja strik í reikninginn. • Áætlið stuttan tíma í stefnumótið. Það er enginn að gera ráð fyrir því að þið þurfið að kortleggja framtíð ykkar saman við fyrstu kynni. Hafið því stefnumótið stutt, jafnvel ekki meira en 1- 2 klukkustundir. Alltaf má svo endurtaka leikinn. • Vertu stundvís. Það er ekkert verra en óstund- vísi þegar kemur að stefnumóti við annan einstakling. Vertu viss um hvar á að hitta viðkom- andi og mættu frekar fimm mín- útum of snemma. • Verið búin að ræða hvers kyns stefnumótið er. Þegar kemur að klæðaburði getur verið gott að vita hvort haldið verði á McDonald's eða Grillið - klæðaburðurinn er vafalaust breytilegur eftir því. Þá er mjög leiðinlegt ef annað mætir í gallabuxum og bol og hinn í dragtinni. • Hrósaðu án þess þó að fara yfir strikið. Að fá hrós lætur öllum líða sér- stökum. Hrósið t.d. lítillega drif- krafti hvort annars í vinnu eða áhugamálum, en sleppið öllum athugasemdum um útlit og per- sónuleika. Það verður leiðinlegt til lengdar og á helst eingöngu rétt á sér ef til áframhaldandi samskipta kemur. • Drekkið hóflega. Það eru flestir sammála um að fáeinir drykkir geta róað taug- amar og gert aðstæður óþving- aðri. Hafa skal þó í huga að ekkert er verra en að sitja til borðs með drukkinni manneskju - það ber vott um öryggisleysi og minnimáttarkennd. • Hafið samræmi milli tals og hlustunar. Það er mikið atriði að annar að- ilinn tali ekki hinn hreinlega í kaf. Reynið að gefa hinum orðið og ekki sýna of mikla málgleði. J afnvægi þarf að vera á milli ykk- ar beggja en það er mjög slæmt ef annað samkjaftar ekki allan tímann. Að vera góður hlustandi getur oft leitt til góðs... ókeypis til heimila og fyrirtækja alla virka daga

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.