blaðið - 24.06.2005, Blaðsíða 9

blaðið - 24.06.2005, Blaðsíða 9
blaðið I föstudagur, 24. júní 2005 80 latnir i Irak a tveimur dögum bjornbragi@vbl.is Hátt í 40 manns létust í röð bíl- sprengja á aðeins hálfum sólarhring í Bagdad, höfuðborg íraks, í gær. Dag- inn áður, á miðvikudag, höfðu 32 lát- ist víða um landið. Mesta mannfallið varð í héruðunum Karrdah og Shula þar sem sjíta-múslímar eru í meiri- hluta. Andspyrnumennirnir, sem stóðu fyrir árásunum, eru súnní-músl- ímar og tilheyra flokki sem stjómaði írak þar til Saddam Hussein var bol- að frá völdum fyrir tveimur ámm. Á meðal þeirra sem létust á miðvikudag var Jassim al-Issawi, fyrrum dómari, sem átti hlut að því að leggja drög að nýrri stjómarskrá íraks. Morðið á honum er að öllum líkindum pólitískt mikilvægasta ofbeldisverk sem fram- ið hefur verið síðan Ibrahim al-Jaa- fari tók við embætti forsætisráðherra íraks fyrir tveimur mánuðum. Al-Issa- wi, sem var lagaprófessor og súnní- múslími, var skotinn til bana ósamt syni sínum, af vopnuðum mönnum. Irakar biðja um Marshall aðstoð Ráðstefnusalurinn í Bmssel hefði ekki getað verið ólíkari blóði drifnum göt- um Bagdad-borg- ar þegar írakskir leiðtogar biðluðu þar til heimsins um aukna aðstoð. „Börn íraks eru alveg eins og börn ykkar. Þau vilja ekki missa feður sína,“ sagði Ibrahim al-Jaafari, forsætisráðherra íraks. Hann talaði um að írakar þyrftu ekki bara peninga heldur einn- ig aðstoð í líkingu við Marshall-að- stoðina sem Bandaríkjamenn veittu stríðshijáðri Evrópu eftir síðari heimsstyijöldina. Al-Jaafari bað þjóð- ir heimsins um loforð fyrir að hjólpa þeim varnarlausu í írak. Beiðni ír- akska forsætisróðherrans hlaut góð- ar viðtökur og Sameinuðu þjóðirnar, Evrópusambandið, Bandaríkin og yf- ir 80 þjóðir, hétu stuðningi sínum en höfðu einnig á orði að írakar þyrftu að gera meira í að hjálpa sér sjálfir. Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, sagði þann mikla stuðning sem aðilar fundarins vildu veita írök- um vera tímamót fyrir íraka. „Samt sem áður er framtíð íraks, að sjólf- sögðu, í þeirra eigin höndum," sagði Annan. Bandaríkjamenn segjast geta stöðvað hryðjuverk Eftir fundinn í Brussel hét Condole- ezza Rice, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, því að andspyrnumenn í írak yrðu sigraðir. „Við getum unnið bug á hryðjuverk- um í írak,“ sagði Rice. „Þegar það hefur tekist, í hjarta Mið- Austurlanda, verð- ur það feigðarboði fyrir hryðjuverka- starfsemi eins og við þekkjum híma.“ Stjómvöld í írak hafa biðlað til uppreisnarmanna að hætta órásum og leggja niður vopn. Þannig Ung íröksk stúlka býður írakska peninga með myndum af Saddam Hussein, til sölu handa ferðamönnum í Amman, höfuðborg Jórdaníu, í gær. Þúsundir íraka hafa flúið stríðshrjáð heimalandið til Jórdaníu í leit að öryggi. geti þeir tekið virkari þátt í stjómmál- um og stuðlað að lýðræði í landinu. Áætlað er að 1.727 bandarískir her- menn hafi týnt lífi síðan stríðið í írak hófst árið 2003. Hins vegar er óætlað að a.m.k. 1.230 írakar hafi látið lífið ó síðustu tveimur mónuðum. Killen hlaut 60 ára dóm Hinn áttræði fyrrum meðlimur Ku Klux Klan, Edgar Ray Killen, hlaut 60 ára fangelsisdóm í gær fyrir morð á þremur mönnum sem framin vom árið 1964. Dómarinn í málinu sagði að líf þeirra James Chaney, Micha- els Schwerner og Andrews Goodman bæri að virða og að Killen hlyti 20 ára fangelsisdóm fyrir hvert morð, Killen mun því eyða, að öllu óbreyttu, því sem hann á eftir ólifað í fangelsi, en hann hyggst áfrýja dómnum. Ákærður fyrir morð í hlut- verkaleik Réttarhöld eru hafin yfir Alexey Zhi- vavev, 31 árs Síberíumanni, sem drap „andstæðing" sinn í hlutverkaleik í bardögum úr ævintýrabókum rithöf- undarins J.R.R. Tolkien, sem skrifaði m.a. Hringadróttinssögu. Slíkir hlut- verkaleikir tíðkast í Rússlandi meðal þeirra fjölmörgu aðdáenda Tolkiens sem þar er að finna. Klæðast menn þá fullum bardagaskrúða og nota plast- eða málmgerð vopn. Zhivavev, sem er forfallinn Tolkien-aðdáandi, lamdi 16 ára pilt í höfuðið með sverði með þeim afleiðingum að pilturinn, sem var hjálmlaus, lést. Hefur hann játað sök og nú þegar greitt skaðabæt- ur vegna málsins. Foreldrar piltsins segjast vissir um að um slys hafi ver- ið að ræða og vonast til að Zhivavev hljóti ekki of þunga refsingu. Friðarviðræður í kyrrstöðu: Heimastjórn Palestínu getur ekki gengiö aö kröfum ísraela bjornbragi@vbl.is Götur Jerúsalems, höfuðborgar ísra- els, voru rýmdar þegar Mahmous Abbas, forseti Palestínu, kom þangað til fundar við Ariel Sharon, forsætis- ráðherra ísraels, á þriðjudag. Örygg- isgæsla á svæðinu var þó með engu móti jafnmikil og væntingarnar til útkomu fundarins. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafði fundað með Sharon tveimur dögum áður og krafðist þess að báðir aðilar ynnu saman að áætlun Israels- manna um að yfirgefa Gaza-svæðið. Vildi hún að þeir kæmust að raun- hæfri lokaniðurstöðu um eftirstand- andi málsatriði. Palestínumenn ósáttir Kröfur Palestínumanna eru á þá leið að þeir fói ferðafrelsi til og fró Gaza-svæðinu og geti komist þangað loft- og sjóleiðis. Þeir vilja einnig að ísraelar afhendi palestínska fanga og að palestínskir bæir verði undir pal- estínskri stjóm. ísraelar segjast fúsir munu ganga að kröfum Palestínu- manna með því skilyrði að öllum árás- um Palestínumanna á ísrael verði hætt. Hængur liggur í orðinu „öllum“ og vilja margir stjórnmálaskýrendur meina að skilyrði ísraela seu óraun- hæf þar sem heimastjóm Palestínu geti t.a.m. með engu móti ráðið því sem gerist á Gaza-svæðinu. Þá vilja Palestínumenn meina að árósimar gegn ísraelsmönnum séu óhjákvæmi- leg afleiðing nær 40 ára langrar land- töku ísraela ó palestínsku landsvæði. Ariel Sharon staðhæfir þó að vanda- málið byrji og endi hjá palestínskum hry ðj uverkamönnum. Eftir fund leiðtoganna var þungt hljóð í Palestínumönnum og Mahmoud Abbas, sem var væntan- legur á blaðamannafund, lét hvergi sjá sig. í stað hans talaði forsætisráð- herra Palestínu, Ahmed Qurai, við fjölmiðla og var örmagna og niðurlút- ur. „Við náðum ekki framför eða end- urbótum í neinum af þeim atriðum Aldraður Palestínumaður gengurfram hjá vígamönnum í mótmælagöngu, á Gaza- svæðinu í gær, þar sem lausnar palestínskra fanga í haldi ísraelsmanna var krafist. sem til umræðu voru. Á heildina litið var það sem okkur var kynnt hvorki sannfærandi né ásættanlegt á nokk- urn hátt,“ sagði Qurai. Hljóðið í ísra- elska forsætisráðherranum var öllu betra. „Við munum samræma aðgerð- ir okkar við brottfórina frá Gaza, það er betra fyrir báða aðila, en við mun- um ekki heimila brottför, sé að okkur ráðist. Við erum ekki að stöðva brott- fórina, við erum að stöðva hryðjuverk- in,“ sagði Sharon. „Frekari friðarvið- ræður verða ekki mögulegar fyrr en altækum endi á hryðjuverkaárásum er náð.“ Kröfur ísraelsmanna óraunhæf- ar Stuðningur ísraela við áætlun Sharons fer minnkandi og þykir staða hans sem pólitískur leiðtogi orðin við- kvæm. Vilja stjórnmálaskýrendur meina að því sé hann farinn að tala það tungumál sem muni vinna hon- um fylgi - að Palestínumenn verði að sjó til þess að árósir á ísraelsmenn hætti, annars muni ísraelar sjá til þess sjálfir. Stöðugt virðist þó ólík- legra að kröfur ísraela nái fram að ganga. Undanfama daga hafa árásir verið gerðar og morð verið framin af báðum málsaðilum. Á mánudag var gyðingur, búsettur á Vesturbakkan- um, skotinn til bana af palestínskum 10 BITAR, STÓR FRANSKAR & 2I PEPSI fcf „ af QQQ Opið alla daga frá J\I • 1*999 kl: 11.00 - 22.00 Phumzile Mlambo-Ngcuka brosir breitt eftir að hún var sett í embætti varafor- seta Suður-Afríku í gær. Tekur hún við af Jacob Zuma, sem var rekinn úr emb- ætti af Thabo Mbeki, forseta landsins, 14. júní síðastliðinn. Zuma mun mæta fyrir rétt á næstu dögum og svara fyrir sakir sínar. Skógareldar í Arizona Miklir skógareldar geisa nú í Ariz- ona-fylki í Bandaríkjunum. Hafa eldarnir valdið miklu öngþveiti og valdið allt að 160 kílómetra löngum umferðarhnútum. Talsmaður al- mannavama í Arizona, Rick Knight, sagðist ekki vita hvað hefði valdið eldinum. „Það hefði getað verið hvað sem er. Logandi sígaretta hefði verið nóg, það er svo þurrt hérna,“ sagði Knight en bætti við að talið væri að eldamir væru af mannavöldum. Mikill þurrkur og vindar hafa gert slökkviliðsmönnum afar erfitt fyrir og hjálpað eldinum að breiðast út yfir stórt svæði. Talið er að nú þegar hafi rúmlega 140.000 hektara svæði orðið eldinum að bráð. Alls hafa 45 hús ver- ið rýmd og er von á því að mun fleiri þurfi að yfirgefa heimili sín. vígamönnum. Stuttu fyrir fundinn á þriðjudag hófu ísraelskir menn skot- hríð ó mannlausa byggingu á norður- hluta Gaza-svæðisins en í henni var talið að íslamskan uppreisnarmann væri að finna. Margir vilja meina að þær skærur sem orðið hafa síðustu daga hafi valdið því að fundurinn milli leiðtoganna hafi farið á þá leið sem hann fór. írú / míUjvnutn bi .v.Yii iJla^A HVER só/ ogbití 365daga á árí framfærsíukostnaður /ógur %■ dýrðlegf'Tándsfag wm i 'iri 1 ' j L áttu okkur aðstoða þig við að fjárfesta i Qgff L/FEYRI sem ski/ar arði TM Fasteignir - Hamraborg 1 200 Kópavogur- Simi 5174600 ^ imh www. tmfasteiqnir. is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.