blaðið - 24.06.2005, Blaðsíða 30

blaðið - 24.06.2005, Blaðsíða 30
30 hver & föstudagur, 24. júní 2005 I blaðið won/... Börn eru nauðsynleg Hagfræðingur nokkur hefur, með tölurýni og flóknum samkeyrsl- um, komist að þeirri niðurstöðu að böm séu nauðsynleg. Það er auðvit- að ókaflega gott að sprenglærðir menn geti með flóknum formúlum og reiknikúnstum komist að slík- um niðurstöðum og haft eitthvað til að dunda sér við á daginn. Hag- fræðingurinn hefur dundað sér við þessa vangaveltu í tilefhi af slæmu ástandi í Afríkuríkjunum en þar er meðalbarneignafjöldi allnokkru hærri en hér hjá okkur sem búum við betra efnahagsástand. Niður- staða hans er sú í hnotskum að þjóð, sem tekst að draga úr fólks- fjölda um tvö prósent á ári, takist á sama tíma að auka hagvöx á mann um eitt prósent. Hinn gullni meðalvegur Fyrir okkur hin sem ekki eydd- um háskólaárum í hagfræði virð- ist fræðingurinn vera að segja að eftir því sem færri em um hituna, því meiru sé til að dreifa á hvem og einn. Hver og einn fær stærri bita af kökunni. Hagfræðingurinn varar þó við því að dregið sé um of úr fólksfjölgun því það gæti leitt til ójafnrar aldursdreifingar í sam- félögum sem aftur gæti valdið því að þeir sem teknir em að reskjast geti ekki vænst því að hinir ungu muni dreifa með þeim ábyrgðinni af framfærslu samfélagsins. Jafn- vægi og hófsemd er mikilvæg - seg- ir hagfræðingurinn. Raunveruleg verðmæti Auðvitað er maðurinn ekki að hugsa um nein sérstök böm þegar hann veltir þessum málum fyrir sér. Hann er, eins og hagfræóing- ar, já, og margir aðrir fræðingar af ýmsum toga, einungis að velta fyrir sér einingum og heildum og hagkvæmum niðurstöðum, það em jú hans sérfræði. Það vantar þó kannski örlítið upp á þessa grein- ingu, eins og svo oft vill brenna við þegar hagfræðin er annars vegar. Enda er það einna helsti annmarki hagfræðinnar að eiga í erfiðleikum með að mæla og reikna hin raun- vemlegu verðmæti lífsins. Afstætt verðmætamat Hvemig á til að mynda að verð- leggja fyrsta brosið? Fyrstu orðin? Fyrstu skrefin? Hvemig á að verð- leggja litla hönd sem strýkur um vangann eða torkennilegan Óla prik á blaði? Hvemig á að verð- leggja samvistir með afkvæmum sínum og mikilvægi góðra tengsla milli foreldra og bama? Arfinn sem tekur mörg ár að yfirfæra frá einni kynslóð til annarrar svo vel megi vera? Böm í formúlum Þetta hefur hagfræðingum illa tekist að setja í formúlur og líkön, enda er niðurstaðan hjá þeim þjóðum, sem dregið hafa úr bameignum sínum og aukið hag- vöxt, sérlega sorgleg. Að minnsta kosti héma hjá okkur á íslandinu góða. Þar er bömum komið fyrir á stofhunum sem sjá um uppeldi eftir sprenglærðri forskrift svo for- eldramir geti hamast við að auka hagvöxtinn. Vissulega emm við laus við barnaþrælkun, styrjaldir og hungursneyð og búum þess í stað við tölvutækni, DVD-græjur á hveiju heimili og a.m.k tvær bifreiðir á heimili, en höfum við í reynd aukið hin raunvemlegu verð- mæti? Auðvitað em börn nauðsynleg viðgangi hvers samfélags, það þarf ekki hagfræðing til að reikna það út en kannski við fengjum meira út úr hagfræðingunum okkar ef þeir tækju nokkra kúrsa í uppeld- isfræði eða bara verknám á leik- skóla. Simpson-systur á stóra skjánum Gwyneth Paltrow langar að vera með í Live8 Leikkonan Gwyneth Paltrow er búin að óska eftir því að taka þátt í Live 8 tónleikunum með því að búa til te fyr- ir gesti og gangandi. Gwyneth, sem er gift Coldplay-söngvaranum Chris Martin, hefur óskað eftir þessu við Bob Geldof, stjómanda hátíðarinn- ar, og er haft eftir Gwyneth að hún sé meira en til í að vera baksviðs og bjóða fólki upp á te. „Gwyneth sagði Bob að hana langaði mjög mikið til að gera hvað sem er til að hjálpa vegna þess að henni finnst hugmynd- in að tónleikunum vera svo frábær. Hún var hins vegar taugaóstyrk að tala við hann vegna þess að Bob er ein af hetjum hennar. Hún vildi ekki að hann héldi að hún væri að krefjast einhvers mikils svo hún bauðst til að sjá um teið,“ segir heimildarmaður. Þess má til gamans geta að Gorillaz- söngvarinn Damon Albam sá um te- ið á upptökum á myndbandinu við Do They Know It's Christmas í fyrra, sem var upphaflega frá Band-Aid. Jennifer Aniston hefur verið á hóteli í Chicago undir nafninu Mrs. Smith, ep fyrrverandi maður hennar, Brad Pitt, leikur með Angelinu Jolie í myndinni Mr. and Mrs. Smith. Jenni- fer, sem er í borginni til að taka upp nýjustu myndina sem hún leikur í, The Break Up With Vince Vaughn, skráði sig inn á hótelið með þessu furðulega nafni og hefur gaman af að láta hótelstarfsfólkið kalla sig Mrs. Smith, en það eru reglur þar um að starfsfólkið kalli gestina nafn- inu sem þeir skrá sig með. Aniston og Pitt hættu saman í mars, og hefur Aniston ekki tjáð sig opinberlega um skilnaðinn. Orðrómur er þó uppi um að viðtal við hana muni birtast í Van- ity Fair á næstunni. Jennifer á hóteli sem Mrs. Smith Hvað segja stjömurnar? Jessica og Ashlee Simpson verða báðar í aðalhlutverkum í kvikmynd- um sem frumsýndar verða í sumar. Jessica leikur Daisy Duke í myndinni Dukes of Hazzard sem frumsýnd verð- ur 5. ágúst, en Ashlee verður í Un- discovered sem sýnd verður 26. ág- úst. „Þetta er mjög gaman vegna þess að við Jessica erum í okkar fyrstu stóru hlutverkum á sama tíma,“ segir Ashlee. „Við hringjum hvor í aðra og spyrjum hvemig gangi í kvikmynda- verinu.“ Einnig segir Ashlee að hún væri örugglega ekki góð sem Daisy Duke og Jessica væri örugglega betri í því hlutverki. Myndin Undiscovered gerist í Los Angeles og §allar um þá sem eru að reyna að ná frægð og frama. Ashlee Simpson leikur leikkonu sem freistar þess að byija söngferil. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem As- hlee hefur leikið, en hún lék í vinsælu þáttunum 7th Heaven og kvikmynd- inni Hot Chick, þar sem hún lék lít- ið hlutverk. Þá hefur hún verið með sinn eigin veruleikaþátt, The Ashlee Simpson Show, á MTV. „Það er ekki mikil rómantík í þessari nýju mynd. Ekki mikil rómantík í lífi mínu held- ur,“ segir hún. ágll. Vatnsberi ''v.. W (20. janúar-18. febrúar) Tvíburar (21. maí-21. júnQ Öv°9 (23. september-23. október) S Dagurinn byrjar með hvelli þar sem þú færð fréttir af spennandi verkefni. Metnaðargirn- in fer upp úr öllu valdi oa nú er um að gera að taka þátt. Deildu með öðrum hugmyndum þín- um og gerðu þig nauðsynlegan V Það er einfalt, dagurinn í dag verður frá- bær. Ef þú vilt rómantík og gleði þá er það auð- fengið. Hringdu I ástvin og skelltu þér út. S Víðsýni þín gæti verið vandamál ( dag. Ekki taka tillit til ailra skoðana sem þú heyrir, það gæti leitt þig i ranga átt og þú þar með sóað heilmiklum tíma. V Það er ekkert að því að skipta um skoðun. Það er í raun einn mesti kosturinn við samband að ástvinurinn hafi hæfni til að aðstoða þig við að sjá nýja hlið á málefnum. S Það er kominn tími til að kynnast vinnufé- laga sem þér finnst þú eiga enga samleið með. Spyrðu spurninga, grafðu dýpra til að skilja hvers konar persóna hann er. Hann mun meta áhuga þinn og sambandíð batnar. V Það virðist sem þú hafir óeðlilega hæfni til að skilja annað fólk i dag. Það er ekki beint hugs- analestur heldur hefurðu svona gott innsæi. A Fiskar (19. febrúar-20. mars) A Krabbi V*F (22. júnf-22. júlQ Sporðdreki (24. október-21. nóvember) $ Góðsemi þín fær að skína í dag þegar þú færð tækifæri til að hjálpa vinnufélögunum. Hjálpaðu öðrum að vinna sina vinnu og ekki fá samviskubit þótt þú eyðir í það miklum tíma. V Þú átt nokkra drauma sem þú hefur ekki enn deilt með þínum nánustu. Láttu þá vaða og hver veit nema þið verðið enn nánari fyrir vikið. S Haltu ákveðinni fjarlægð þegar þú kynnir hugmyndir þínar fyrir vinnufélögunum. Þú ert opnari gagnvart ferskum hugrnyndum ef þú fjar- lægir öll tilfinningatengsl á milli þin og verkefnis- ins. V Ef þú átt í vandræðum með samskipti við þína nánustu þá skaltu endurskoða aðferoir þínar. Þú tekur á hlutunum á flókinn og tilfinn- mgaþrunginn hátt. Reyndu að tjá þig á rókréttari hátt. S Vandamál heima fyrir gætu truflað þig í dag. Hringdu nokkur símtöl til að róa þig. Náou svo einbeitninni á ný og njóttu þess að þurfa að hugsa um aðra hluti. V Sambandi innan fjölskyldunnar er að Ijúka. Vertu viðbúinn því að það muni bitna á þér að hluta til. Haltu ró þinni. Q Hrútur VBF (21. mars-19. april) iaiLi6n (23. júlf- 22. ágúst) Bogmaður XtJ (22. nóvember-21. desember) $ Loksins er allt orðið eins og það á að vera og framleiðnin er góð. Núna er rétti tíminn fyrir framtíðarplön. Harau alla vinnufélagana með i ráðum. Betur sjá augu en auga. V Þú kemst ekkert nær ástinni með því að skipuleggja félagslífið marga mánuði fram í tím- ann. Buou til tækifæri í dag í stað þess að lifa fyrir framtíðina. örlítil hvatvísi I dag getur verið stórt skref. $ Það er kominn tími til að sleppa takinu á einhverju ákveðnu verkefni. Með því að leyfa öðrum að taka stjórnina ertu að sýna gott for- dæmi. Vertu stoltur af því að sýna þann styrk sem þarfnast til að deila ábyrgð. V Það mun einhver reyna að særa þig I dag en stolt þitt verndar þig. Aðilinn er að reyna að pirra þig en þú komst ýfir þetta atvik fyrir nokkr- um árum. Þetta snýst því við í höndum þeirra. $ Þetta er góður dagur til að mynda ný við- skiptasambönd og bæta gömul. Nýttu simann vel og sannfæringarhæfileika þína. Allt sem þú segir mun vera sannfærandi og þokkafullt. V Þrátt fyrir að fjárhagurinn sé ekki upp á sitt besta skaltu ekki hafa áhyggjur. Öll mal leysast um síðir og þú munt sja að afturriald í fjármálum hafi reynst þér vel. Naut Vr (20. april-20. maí) MeWa Vr (23. ágúst-22. september) áhk Steingeit Vr (22. desember-19. janúar) $ Þú vilt vera öruggur en allir eru að þrýsta á þig að taka meiri áhættu. Valdabarátta er ekki rétta svarið. Finndu leið til að vinna saman og þú gætir jafnvel þurft að fórna nokkrum hug- myndum. V Stundum er hægt að vera of mikið með einhverjum. Það er einmitt það sem er að gerast hjá þér og ákveðnum vini. Ekki láta hann koma upp á milíi þín og sameiginlegs vinar. S Nýtt flokkunarkerfi mun sýna þér fram á óreiðuna á borðinu þinu. Finndu nýja leið til að skipuleggja vinnuaðstöðu þína. Gerðu hana fal- lega og litríka. V Einn helsti kostur þinn er gagnrýnin, það er þegar þú notar hana í góðum tilgangi. Gagn- rýni þín er æskileg en hugsaðu um hvernig þú setur hana fram. Ekki gleyma að vera uppbyggj- andi og góður. S Vinna þln hefur breyst vegna áfalla, vertu viðbúinn því. Vertu fljótur að komast inn í nýju aðferðina og þú munt uppgötva að hún reynist betur. V Hristu upp í hlutunum í dag. Breyttu hefð- unum. Gerðu allt það sem einhver annar er van- ur að gera.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.