blaðið - 10.08.2005, Síða 4

blaðið - 10.08.2005, Síða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2005 blaöiö Framkvœmdastjóri Samskipa um kaup á ísstöðinni „Stöndum sterkari eftir en áður" Samskip tilkynntu í gær að fyrirtæk- ið hefði keypt Isstöðina hf. á Dalvík af Óskari Oskarssyni, ásamt 1.000 tonna frystigeymslu á staðnum. ís- stöðin er þjónustufyrirtæki fyrir sjávarútveginn en það framleiðir og selur ís, leigir út geymslupláss í frystigeymslu á Dalvík og annast löndunarþjónustu fyrir skip og báta í Dalvíkurhöfn. Fyrirtækið annast ennfremur rekstur ferjunnar Sæ- fara. Að sögn Ásbjörns Gíslasonar, for- stjóra Samskipa, á með kaupunum að efla starfsemina enn frekar á Dal- vík, en mikið samstarf hefur verið milli fyrirtækjanna tveggja. „Við erum að færa reksturinn á eina hendi og með því náum við betur að samnýta tól, tæki og mann- skap. Ég tel að við stöndum sterkari eftir en áður”, segir Ásbjörn. Hann tekur sérstaklega fram að engar áætlanir séu uppi um breytingar á rekstri Isstöðvarinnar, hvorki hvað varðar mannskap eða verkefni. Kaupverð er að sögn Ásbjörns trún- aðarmál. ■ Gífurlegur viðbúnaður í Vesturbæ Gríðarmikill viðbúnaður var við Sörlaskjól í vesturbæ Reykjavíkur seint í fyrrakvöld. Þar komu saman þrír sjúkrabílar, kafarabíll slökkvi- liðsins, læknabíll, leitarbátur frá björgunarsveit, tveir gúmmíbátar þ.á.m. einn frá flugmálastjórn og að minnsta kosti fjórir bílar frá lögregl- unni í Reykjavík með tilheyrandi sírenuvæli. Ástæða útkallsins var að tilkynnt var um mann i sjónum. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn segir að eðli útkallsins hafi orsakað viðbúnaðinn. I málum sem þessum séu allir boðaðir á staðinn. Stóð upp að mitti í sjónum Ekki er vitað hvað manninum stóð til en hann stóð með sjóinn upp að mitti í sundfötum einum fata. Kaf- ari fór á eftir honum í vatnið og náði eftir smá tiltölur að koma mannin- um á þurrt land þar sem hann fékk aðhlynningu í sjúkrabifreið áður en hann var fluttur á slysadeild. Málið telst að fullu upplýst og verður ekki gerð frekari rannsókn á því. ■ Auglýsingadeild 510-3744 blaðið= loftkœling VerÖ frá 49.900 án vsk. ís-húsið 566 6000 Hættuleg blys é víðavangi Sprengjudeild Landhelgisgæslunnar framt frá sér eitraðan reyk sem er hafa borist tilkynningar að undan- mjög hættulegur. Finnist svona blys förnu um merkjablys, svokallaða á víðavangi ber að merkja staðinn markera, sem hafa fundist víða á og tilkynna það til Landhelgisgæsl- SnæfellsnesiogáReykjanesi.Merkja- unnar eða lögreglu. I tilkynningu blys eru mikið notuð af herjum og frá gæslunni er þeim sem finna blys björgunaraðilum til sjós, bæði til æf- bent á að snerta það ekki heldur lesa inga og við björgun. Þau innihalda þær merkingar sem kunna að vera á fosfór en það getur verið hættulegt því. Ef það er mögulegt er æskilegt vegna sjálfsíkveikju þegar efnið að fólk taki niður upplýsingar um þornar og kemst í snertingu við súr- helstu mál blyssins, þ.e. lengd og efni, hvort sem blysið hefur verið breidd þess. Hafi finnandi mynda- notað eða ekki. Fólk er því beðið um vél með sér er gagnlegt að fá myndir að hafa varann á verði það vart við sendar til sprengjudeildarinnar. eitthvað sem líkist blysunum. Ef blysið finnst úti á sjó ber að geyma það utandyra fjarri öllum eld- Snertið ekki fimum efnum. Undir engum kring- Fosfórbrennurhrattoggeturvaldið umstæðum skal geyma þessi blys miklum eldsvoða sé það geymt ná- innandyra. ■ lægt eldfimum efnum og gefur jafn- Wý plata Bjarkar Hjónakornin Matthew Barney og Björk Guðmundsdóttir kynntu í gær nýjustu plötu Bjarkar sem er gerð við kvikmynd Barney, Drawing Restraint 9. Japönsk áhrif eru mikil, bæði í myndinni sem á plötunni. Myndin var tekin um borð í japönsku hvalveiðiskipi í Nagasaki flóa og tónlistin er að miklu leyti samin fyrir elsta hljóðfæri japanskrar menningar, Sho. Drawing Restraint 9 er fyrsta samstarfsverk- efni hjónanna en þau létu sér ekki nægja að gera kvikmyndina og tónlist við hana heldur eru þau einnig meðal leikara myndarinnar. Borgarstjórnarflokkur Sjálfstœðisflokksins Mælist með minna fylgi nú en fyrir fjórum árum Samkvæmt niðurstöðum nýjasta þjóðarpúls Gallup, sem birtur var nú í ágúst, fengi Sjálfstæðisflokkur- inn rúmlega 48% fylgi ef kosið yrði nú til borgarstjórnar en R-listinn 47%. I kjölfar niðurstöðunnar hafa sjálfstæðismenn farið mikinn og þannig lét Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son, oddvidi D lista í Reykjavíkur- Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Stefán Jón Hafstein. Fulitrúar R-iista og borgarstjórn- arflokks Sjálfstæðisflokksins eru ósam- mála um hvernig túlka beri niðurstöður skoðanakannana um fylgi fylkinganna 1 Reykjavík. borg hafa það eftir sér að augljóst væri að Sjálfstæðisflokkurinn sé í mikilli sókn í borginni. Ef fylgi flokkanna nú er hinsvegar borið saman við fylgið fyrir fjórum árum, þ.e. þegar tæpt ár var í síðustu borgarstjórnarkosningar, kemur í ljós að staða Sjálfstæðisflokksins er nokkuð verri i dag en þá. Þá mældist fylgi Sjálfstæðisflokksins í borginni 52% á meðan R-listinn mældist með um 47%. Úr 40% fylgi í 48% á fá- einum mánuðum Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, odd- viti borgarstjórnarflokks Sjálfstæð- ismanna, segir að ekki sé hægt að bera þessar tölur saman því nú sé flokkurinn að fara úr um 40% fylgi í nóvember síðastliðnum í um 48% nú. Því sé ljóst að flokkurinn sé í góðri sókn um þessar mundir. Ég tel að rekja megi okkar árangur til þeirrar vinnu sem við höfum unnið af hendi á undanförnum misserum og árum. Sjálfstæðisflokkurinn á erfitt uppdráttar Stefán Jón Hafstein segir hinsvegar að skoðanakannanir haf sýnt það all- an síðasta áratug að tvær tiltölulega jafnstórar fylkingar takist á um að stýra borginni. „Þetta síðasta kjörtimabil hefur raunar skorið sig nokkuð úr hvað það varðar að Sjálfstæðisflokkurinn hefur virst eiga afar erfitt uppdráttar. En það er auðvitað merkilegt að sjá að þegar framboðsmál Reykjavíkur- listans eru í hvað mestri deiglu, þá sækir íhaldið á og af því dregur maður þá ályktun að fylgisaukn- ingin nú og fyrir réttum fjórum ár- um sé hvorki vegna eigin verðleika Sjálfstæðismanna né frammistöðu þeirra í borgarstjórn.11 Hermenn varnarliðsins Bannað að fara á Traffic Hermönnum varnarliðsins í Keflavik hefur verið bannað að sækja skemmtistaðinn Traffic þar í bæ. Friðþór Eydal, upplýs- ingafúlltrúi hersins, segir ástæð- ur þessa helst vera að hermenn hafi lent í ýmsum uppákomum á staðnum sem komið hafi sér illa fyrir herinn. Jósep Þorbjörnsson, eigandi Traffic, er síður en svo sáttur við ákvörðun hersins og hefúr fengið lögfræðing til þess að fara með málið fyrir sína hönd. Hann segir rök hersins vera rugl og videysu. „Þeir hafa komið rnn á staðinn í heilt ár og ég skil ekki hvers vegna þeir koma hingað ef einhver væri að gera þeim eitthvað hérna.“ Ársskýrsla Neytendasam- takanna Kvartað yfir vátrygginga- félögum I ársskýrslu Neytendasamtak- anna kemur fram að til þeirra sex úrskurðarnefnda sem hægt er að leita til, leita langflestir til úrskurðarnefndar í vátrygginga- málum. Af þeim tæpum 300 mál- um sem fóru til úrskurðanefnd- anna fóru tæp 260 til þeirrar nefndar. Stærsti hluti málanna er sagður varða sakarskiptingu í árekstrarmálum og því ekki að undra að málafjöldinn sé mikill. Tæp tfu þúsund erindi komu á borð til Neytendasamtakanna á sfðasta ári og var kostnaður vegna leiðbeininga- og kvörtun- arþjónustu þeirra tæpar 30 millj- ónir króna. Konur leituðu ívið oftar á náðir samtakanna eða í 56% tilfella.Á árinu bárust flest- ar fyrirspurnir vegna bifreiða, tölva og fasteigna eða yfir 350 fyr- irspurnir í hverjum máláflokki. Sveitarfélögum fækki um helming Á laugardaginn hefst utankjörfundaratkvæða- greiðsla vegna 16 kosninga um sameiningu sveitarfélaga en kosningarnar fara fram þann 8. október í 62 sveitarfélögum. Sveitarfélög á fslandi eru nú 101 talsins en þau voru 104 í upphafi árs 2004. Þegar hafa sameiningartillögur verið samþykktar í 12 sveitarfélögum og munu þær taka gildi í kjölfar sveitarstjórnarkosninga 2006, en þá verða sveitarfélög 92 talsins. Ef allar sameiningartillögurnar sem kosið verður um í október hljóta samþykki verða sveitarfélögin 47 í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna. Kosningarnar eru undir slagorðinu „Treystum byggðina - þitt er valið“. Blandið saman allt að 3 réttum úr hitaborði Frá 11.00 - 13.30 Tilboðin gilda ekki með heimsendingu Sóltún 3 S 562 9060 Bæjarlind 14-16 S 564 6111

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.