blaðið - 10.08.2005, Blaðsíða 29
blaöið MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2005
DAGSKRÁI 29
■ Fjölmiðlar
Probably
the best....
Þegar Stöð i hóf starfsemi haustið
1986 var fljótlega gefinn út bækling-
ur um stöðina og þá dagskrá sem
hún bauð upp á. Bæklingurinn
var auðvitað á ensku, enda var hér
alvöru stöð á ferð sem átti erindi
við erlenda markaði, ekki síður en
þann íslenska. Fyrirsögnin á bæk-
lingnum var á þessa leið: Channel
2 - probably the best TV station in
the world. Hér var mælt af hógværð
og yfirleitt var lögð áhersla á orðið
probably þegar lesið var upp úr bæk-
lingnum. Þetta er rifjað upp hér
vegna þess að dagskrá Stöðvar 2 hef-
ur oft verið á milli tannanna á fólki.
Þetta er lika rifjað upp vegna þess
að undirritaður hefur í sumar ekki
verið í hópi áskrifenda og því í fyrsta
skipti kynnst því að eiga ekki kost á
Stöð 2. Og það verður að segjast eins
og er - stöðvarinnar er saknað. Og
það jafnvel þó að margt annað fangi
hugann á björtum sumarkvöldum.
Kannski er sannleikskorn í gömlu
slagorðunum frá tímum Jóns Ótt-
ars...probably the best. Undirritaður
hefur alla vega ekki kynnst á ferðum
sínum erlendis stöð sem hefur boðið
upp á jafn mikið af góðum þáttum
- jafnt innlendum og erlendum og
Stöð 2. Sú lína hefur verið mörkuð
að bjóða upp á stór innlend „show“
eins og Idol Stjörnuleit. Þetta hefur
gefist afar vel - áskrifendum hefur
fjölgað verulega og tekjur aukist til
muna. Þeir sem eiga ekki síst heiður
skilinn fyrir vinnu á bak við þessa
þætti eru Heimir Jónasson aðstoðar-
dagskrárstjóri stöðvarinnar og Þór
Freysson framleiðandi. Þarna hef-
ur Stöð 2 náð umtalsverðu forskoti
á keppinauta sína - annars vegar
RÚV, sem hefur verið sofandi í sam-
keppninni og hins vegar Skjá 1 sem
hefur verið meira í tilraunaverkefn-
um sem hafa gefist misvel. Þar hafa
menn ekki heldur áskriftartekjur til
að styrkja reksturinn og því verður
að fara ódýrari leiðir. Undanfar-
ið hafa hins vegar sést merki um
breytingar og ber þar helst að nefna
21:00-23:00 23:00-00:00 00:00-6:00
21.00 Fótboltaæði (6:6) (FIFA Fever 100 Celebration) 21.30 Kokkar á ferð og flugl (3:8) (SurfingtheMenu) Áströlsk matreiðslu- og ferðaþáttaröð þar sem tveir ungir kokkar, Ben O'Donoghue og Curtis Stone, flakka á milli fallegra staða 1 Suðurálfu og töfra fram Ijúffenga rétti úr hráefninu á hverjum stað. 22.00 Tíufréttir 22.201 hár saman (7:7) (Cutting It) 23.15 Eldltnan (5:13) (Line of Fire) Bandarlskur myndaflokkur um starfsmenn alrík- islögreglunnar I Richmond (Viriginlufylki og bar- áttu þeirra við glæpaforingja. Meöal leikenda eru Leslie Bibb, Anson MounL Leslie Hope, Jeffrey D. Sams, Juiie Ann Emery, Brian Goodman, Michael Irby og David Paymer. Atriði 1 þáttunum eru ekki við hæfi barna. e. 00.00 Kastljósið Endursýndur þáttur frá því fyrr um kvöldið.
21.30 Strong Medicine 3 (15:22) (Samkvæmt læknisráði 3) Vönduð þáttaröö um tvo ólíka en kraftmikla kvenlækna sem berjast fyrir bættri heilsu kyn- systra sinna. Hjá læknunum Dönu og Lu rlkir engin lognmolla en til þeirra leita konur úr öllum þjóðfélagshópum. Whoopi Goldberg er einn framleiöenda Strong Medicine. 22.15 Oprah Winfrey 23.00 The Handmaid'sTale (Hinar útvöldu) Framtlðarmynd sem segir frá því þegar bók- stafstrúarmenn Bibllunnar hafa komist til valda 1 Bandaríkjunum. Vegna mengunar getur nú aðelns eitt prósent kvenna fætt börn. Kate er ein þeirra útvöldu en hennar blður ekkert sældarllf. Það er yfirvalda að ákveða hver barnsfaðir hennar verður og hér skipta tilfinningar engu máli. Aðalhlutverk: Natasha Richardson, Faye Dunaway, Aidan Quinn, Robert Duvall. Leikstjóri: Volker Schlöndorff. 1990. Stranglega bönnuð börnum. 00.50 Medical Investigations (17:20) (Læknagengið) Hörkusþennandi myndaflokkur. Doktor Stephen Connor fer fyrir sérfræðingasveit sem er kölluð tll þegar hætta er á ferðum og stöðva þarf piágur og smitsjúkdóma. Dr. Connor hefur fullt umboð yfir- valda en þegar fólk fer að gefa upp öndina tekur Dr. Connor málin 1 slnar hendur. Aðalhlutverkið leikur Neal McDonough (Boomtown). 01.35 Fréttir og fsland i dag 02.55 Islandíbítið 04.35 Tónlistarmyndbönd frá Popp TIVI
21.00 Providence - lokaþáttur Syd telur sig hafa fundið hinn eina rétta og svo virðist sem Jim hafi náð sér að fullu. Robbie og Joanie myndast við að koma undir sig fótunum með misjöfnum árangri. Hér er á ferðinni lokaþáttaröðin af þessum frábæru þáttum um Hanson-fjölskylduna í bllðu og stríðu. 22.00 Law & Order 22.45 JayLeno 23.30 CSI:Miami (e) Horatio Cane fer fyrir frlðum flokki réttarrann- sóknafólks sem rannsakar morð og limlestingar 1 Miami. Þættirnlr hafa vakið mikla eftirtekt og eru systurþættir hinna vinsælu CSI og CSI:NY. 1 hverjum þætti rannsaka Horatio og félagar eitt tíl tvö afar ógeðfelld mál sem oftar en ekkl eiga sér stoð 1 raunverulegum sakamálum sem upp hafa komið. Horatio Cane er lelkinn af David Caruso. 00.15 Cheers (e) 00.40 TheO.C. 01.20 Hack 02.05 Óstöðvandi tónlist
21.00 Rescue Me (7:13) Frábærir þættir um hóp slökkvillðsmanna i New York borg þar sem alltaf ereitthvaðlgangi. 21.45 Sjáðu 22.00 Kvöldþátturinn Aðalþáttastjórnandi er Guðmundur Steingrlms- son og honum til aðstoðar er Halldóra Rut Bjarnadóttir. 22.45 David Letterman 23.35 Joan Of Arcadia (6:23) Táningsstelpan Joan er nýflutt til smábæjarins Arcadia þegar skrýtnar uþpákomur fara að henda hana. Hún fer að fá skilaboð frá Guði sem fer að segja henni að gera alls kyns hluti sem hún og gerir. Þessu nýja hlutverki þarf hún slðan að koma inn í daglega líf sitt sem reynlst alls ekkl auðvelt 00.25 Friends 2 (9:24) (Vinir) 00.50 Kvöldþátturinn 01.35Seinfeid 3 (The Boy Friend - part 1) Þriðja þáttaröðin með grínistanum og íslandsvinin- um Seinfeld og vinum hans,
21.30 Mótorsport 2005 Itarleg umfjöllun um Is- lenskar aksturslþróttir. Umsjónarmaður er Blrgir ÞórBragason. 22.00 Olíssport 22.30 UEFA Champions League (CSKA Sofia - Liverpool)
22.00 The 51st State (Gróðavlma) Gamansöm hasarmynd. Aðalhlutverk: Samuel L. Jackson, Emily Mortimer, Robert Carlyle. Leikstjóri: Ronny Yu. 2001. Stranglega bönnuð börnum. 00.00 VanWilder Bönnuð börnum. 02.00 Double Whammy (Toff á ný) 04.00 The 51 st State (Gróðavíma) Stranglega bönnuð börnum.
Bachelor sem ætti að hafa alla burði
til að ná sömu vinsældum og Idol
Stjörnuleit. Það má því búast við að
„tveir turnar“ verði í dagskrá stöðv-
anna í vetur - og það verður forvitni-
legt að sjá hvor sigrar. Það er alla
vega athyglisverður sjónvarpsvetur
framundan.
Þú getur hætt að reykja
námskeið með Guðjóni Bergmann
Skráning á www.vertureyklaus.is
Næsta námskeið á Hótel Loftleiðum 12. og 13.ágúst
Haustið 2005 verða námskeið á Akureyri, ísafirði og Egilsstöðum.
Veislumánuður
PHPINOS
Nú býóur Papinos til veislu allan ágúst mánuö
PfiPINOS
sími: 59 12345
Papinos Núpalind 1 Kópavogi
Papinos Reykjavíkurvegi 62 Hfj
Opiö alla 16-22
899 kr 1000 kr
Stór pizza með 2 áleggstegundum Stór pizza með 4 áleggstegundum
■ Af netinu
Botninum náð. Ég vissi satt best að
segja ekki hvort ég ætti að hlægja
eða gráta eða hreinlega hvort ég ætti
að koma eða fara nú í kvöld þegar ég
sá þennan þátt Wife Swap. Svo ég
hendi þessu nú fljótt og beint af eng-
elsaxneskunni yfir á íslenssaxnesk-
una Konuskipti. Fyrir þá sem vita
ekki hvað ég er að fara er þetta sem
sagt Kanaþáttur sýndur á Stöð i um
eiginkonur sem skipta um heimili,
taka við húsmæðrarstarfinu, setja
reglur og já bara ráða öllu (reyna
það allavega) í einhvern ákveðinn
tíma. Nú jæja ég held satt best að
segja að botninum hafi verið náð
með eindæmum í lélegri dagskrár-
gerð með þessum ansalega þætti
og hefur annar eins viðbjóður ekki
sést á skjánum síðan Jerry Springer
var upp á sitt versta/besta! Ég þurfti
nokkrum sinnum að halda fyrir aug-
un því einhverra hluta vegna skamm-
aðist ég mín geðveikt fyrir þetta og
hvað var ég að spá í að horfa á til
enda. Ég hafði það þó upp úr krafs-
inu að segja skoðum mína á þessu
tilgangslausa og leiðindarþætti. Ef
þessir þættir verða búnir til á ís-.
landi þá er mér nú allri lokið og ég
sver að henda sjónvarstækinu út um
gluggann. Alveg er nú nóg að koma
með þennan íslenska bachelorþátt,
plís ekki gera þetta pínlegra, þið
sem eruð eitthvað í þáttargerðarleik.
Svo ég komi mér nú aftur að þættin-
urn, fyrir það fyrsta virtist nú vanta
heilu kaflana, ef ekki bara bókina
í aðra kerlinguna, segjum bara að
hún heiti Jenn. Hún Jenn kom fyrir
sjónir sem mjög svo pirrandi mann-
eskja, hún skipaði þessum kalli sem
hún var „wife-swappari“ hjá að taka
niður öll uppstoppuðu dýrin sín
sem hann var búinn að skjóta, þar
á undan lét hún taka öll skotvopnin
hans (ekki það að mér sé sama, hvað
þá að ég mundi hafa einhver upp-
stoppuð dýr inni hjá mér). En hún
var dýraverndunafrík og kolrugluð
í þokkabót, greyið þurfti að þrífa á
laugardegi og hafði aldrei liðið eins
og jafnmiklum þræli og þá og það í
12 ár, ojj sóði dauðans. Til að enda
þessi ósköp er komið að endinum.
Jenn missir sig og byrjar að grenja
og áskar hina um hitt og þetta,
nenni bara ekki að fara út í það því
það er eiginlega bara tilgangslaust.
Það sem fólki dettur í hug að setja
í sjónvarp, hvað kemur næst, hver á
stærsta kúkinn kúkalabbi? Og þetta
var mín skoðun á þessum annars fár-
anlega sorglega þætti.
http://blog.central.is/isdrottning
Siðustu daga hef ég unnið ötul-
lega að nýja áhugamálinu mínu,
sjónvarpsglápi. Það felur í sér að
maður situr eða liggur á sófa og
horfir á kassa sem sýnir lifandi
myndir. The Contender er að verða
uppáhaldsþátturinn minn. Þar er
Sylvester Stallone með hóp af væmn-
um boxurum. Það er eitthvað furðu-
legt við þessa menn, þeir eru allan
daginn að rífa kjaft og þykjast vera
töff og svo þegar þeir eru að fara í
hringinn eru þeir háskælandi. Þeir
skæla af því að börnin þeirra eru
svo yndisleg og það eina sem getur
fært fjölskyldunni betra líf er að þeir
vinni einhvern bardaga. Það liggur
því beinast við að ég sendi manninn
minn á boxæfingar svo við getum
nú farið að lifa góðu lífi.
http://uggla.blogspot.com/
Heyrðu ég settist niður í gær og
kveikti á sjónvarpinu og þar rakst
ég á þátt sem heitir The Biggest
Loser. Þarna er samankomið fólk
sem er feitt og keppist við að missa
sem flest kíló til að vinna peninga.
Þau þurftu að hjóla á spinninghjóli
í fjóra tíma og sá sem hjólaði hrað-
ast/lengst vann þrautina. Kræst
hvað ég vorkenndi þeim og hámark
kaldhæðninnar er þegar maður sjálf-
ur liggur i sófanum að éta gúmmí
og maltersers að horfa á feita fólkið
púla!
http://www.liljag.blogspot.com/