blaðið - 10.08.2005, Blaðsíða 14
Baldursgata
Vel byggt steinhús við Baldursgötu er nú til sölu hjá Miðborg en það var TEIKNAÐ OG
BYGGT ÁRIÐ 1925 FYRIR SlGURÐ NORDAL. Húsið er 230,5 fermetrar á þremur hæðum
auk óinnréttsðs rislofts. Sigurður Karl Jóhannsson, sölumaður hjá Miðborg, segir að þetta sé
glæsilegt og vel byggt hús. "Á aðalhæð eru forstofa, hol, tvær stofur,svefnherbergi, snyrting og
eldhús,” segir Sigurður Karl. "Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi og baðherbergi og yfir þeirri
hæð er rúmgott óinnréttað risloft. Síðan er kjallari og þar er tveggja herbergja íbúð með sér-
inngangi. í nánari lýsingu segir að komið sé inn í flísalagða forstofu og síðan inná parketlagðan
gang. "Eldhús er korklagt með snyrtilegri innréttingu og borðkrók. Innaf eldhúsi er gengið út í
glæsilegan gróinn garð sem er með steyptum veggjum. Einnig er þar gengið niður á neðri hæðina,
þar sem er þvottahús, svefnherbergi, geymsla og tveggja herbergja íbúð með sérinngangi. Einng
er hægt að ganga inn í íbúðina úr þvottahúsi. Tvær parketlagðar stofur með mikilli lofthæð og
falleg um bogaglugga til suðurs. í loftum eru fallegir upprunalegir gifslistar, einnig eru allar
hurðir og búnaður í kringum hurðir upprunalegur og í mjög góðu ástandi. Flísalögð gesta snyrting
er við enda gangs.” Þá segir að á efri hæðinni séu fjögur parketlögð svefnherbergi, þar af hjóna-
herbergið með stórum inn byggðum skápum og svölum til vesturs. Baðherbergi er ÓVENJU stórt,
flísalagt með baðkari og glugga. Yfir efri hæðinni er rúmgott óinnréttað ris loft sem gefur mikla
möguleika. Þaðan er glæsilegt útsýni. ÁSETT VERÐ ER 69 MILLJÓNIR KRÓNA.
HOLTSGATA Falleg 123,8
fm fimm herbergja íbúð á þriðju
hæð. íbúðin skiptist í forstofu/
hol, fjögur parketlögð herbergi,
parketlagða stofu, flísalagt
eldhús, baðherbergi og
geymslu. Einstakt útsýni er af
svölum íbúðar. Góð sameign.
V. 27,8 m. 5790
KAMBASEL 48 226,2 fm gott raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr.
Húsið skiptist í forstofu, tvö flísalögð baðherbergi, þar af annað með baðkari og
sturtuklefa, fimm parketlögð svefnherbergi, tvær parketlagðar stofur með svölum
til suðurs, eldhús með borðkrók og þvottahús. Geymsluloft yfir efri hæð. Stór og
glæsileg verönd til suðurs með skjólvegg. Húsið var málað að utan sumarið 2004.
V. 35,9 m. 5717
Laugavegur 182, 4. hæð • 105 Rvk. • Sími 533 4800 • www.midborg.is • midborg@midborg.is