blaðið - 10.08.2005, Blaðsíða 6

blaðið - 10.08.2005, Blaðsíða 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2005 blaóiö Tilboðsdagar Loðvíðir 250 kr Myrtuvíðir 490 kr. Ilmreynir 950 kr. 20% afslá+tur af öðrum plön+um Selja 550 kr Sitkagreni 750 kr. Hrúteyjayíðir 550 kr | Lerki 490 kr. ÍDvergkvistur 399 kr ' Blágreni 490 kr. Betri plöntur á góðu verði -Tilboð alla daga Símhringingarnar í Smáralind Fimmtán ára í perraleik Borgarflokkur Sjálfstæð- isflokksins Prófkjör í lok október McDonald's vantar nú þegar nokkra hressa starfsmenn í fullt starf á veitingastöðum við Suðurlandsbraut, í Kringlunni og við Smáratorg. Umsækjendur þurfa helst að vera 18 ára eða eldri. McDonald's eru líflegir og fjörugir vinnustaðir. Alltaf nóg að gera og góðir möguleikar fyrir duglegt fólk að vinna sig upp. Mjög samkeppnishæf laun í boði. Langar þig á HM 2006? [ vor verða heppnir starfsmenn á McDonald‘s dregnir út og fá fría ferð á HM 2006 í Þýskalandi. Starfsmenn í fullu starfi verða í pottinum. FIFA WORLO CUP GERmftOY 2006 Umsóknareyðblöð liggja frammi á veitingastöðum McDonalds’s eða á heimasíðu www.mcdonalds.is McDonald's er styrktaraðili HM 2006 i’m lovin’ if Lögreglan hafði hendur í hári 15 ára pilts sem hefur játað að hafa hringt í símsjálfsala í Smáralind og fíflast með tíu ára drengi sem svöruðu símanum. Þar sem að pilturinn er orðinn 15 ára telst hann sakhæfur og hafa foreldrar drengjanna fjög- urra möguleika á því að leggja fram kæru í málinu. Það hafði þó ekki ver- ið gert þegar haft var samband við lögregluna í Kópavogi í gær. „Málið fer í eðlilegan farveg til félagsmála- yfirvalda þar sem drengurinn hefur ekki öðlast sjálfræði“, segir Björgvin Björgvinsson, aðstoðaryfirlögreglu- þjónn í Kópavogi. Pilturinn játaði á sig verknaðinn auk þess sem hann viðurkenndi að hafa tekið þátt í svip- uðu - þó ekki jafnalvarlegu - athæfi áður. Þá var enginn fótur fyrir því að einhver biði á bílastæði verslana- miðstöðvarinnar. ■ Hagnaður Actavis undir væntingum Actavis Group hf. birti sex mánaða uppgjör sitt í gær. Hagnaður Actavis er tæpur 1,8 milljarður króna eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins sem er um 30% minni hagnaður en á sama tímabili í fyrra. Heildartekjur félagsins námu tæp- um 18 milljörðum íslenskra króna og drógust saman um tæp rúm 5%. Á sama tíma jukust útgjöld um 1,3%. í tilkynningu frá félaginu í gær seg- ir að sala eigin vörumerkja félagsins síðustu þrjá mánuði hafi aukist um tæp 28% en sala til þriðja aðila hafi hinsvegar dregist saman að mestu leyti vegna tafa á afhendingum til helstu viðskiptavina. í tilkynningu frá félaginu segir Ró- bert Wessman, forstjóri, um gengi þess síðustu þrjá mánuði. „Ársfjórðungurinn var annasam- ur hjá fyrirtækinu þar sem við geng- um frá stærstu fyrirtækjakaupum samstæðunnar frá upphafi þegar við keyptum bandaríska samheita- lyfjafyrirtækið Amide.“ Hann segist ennfremur vera bjartsýnn á stöðu fyrirtækisins í heild þetta árið. Fyrirtækið stóð nýlega fyrir hluta- fjárútboði og sölu eigin bréfa lauk í júní þar sem hluthafar skráðu sig fyrir hlutum að markaðsvirði um 263 milljónum evra (21 milljarðar króna). ■ Margir hafa beðið lengi Blailt/Gúndi Allir tengdir fyrir föstudaginn lillil 11 lír Dæmi eru um að fólk hafi þurft að bíða í rúman mánuð eftir að menn frá Símanum komi að tengja heim- ili þess ADSL neti Símans svo það geti fylgst með útsendingum sjón- varpsstöðvarinnar Enski boltinn sem hefur göngu sína á föstudag- inn. „Markmiðið er að tengja alla þá sem hafa þegar pantað áskrift að stöðinni nú í vikunni. Við vitum samt ekki hvernig fólk tekur við sér í vikunni, hvort fleiri fari að panta, en við vonum að við náum að tengja hina í þessari viku“, segir Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Skjás eins. Þá segir hann að áskrifendur séu teknir fram fyrir þá sem einung- is sækja um ADSL tengingu hjá Sím- anum en ekki áskrift að Enska bolt- anum. Um þrjú þúsund heimili bíða þess nú að verða tengd en i þeirri tölu eru ekki einungis áskrifendur Enska boltans. Magnús vill ekki gefa upp hversu margir hafi þegar sótt um áskrift að Enska boltanum en segir þó að hann sé mjög ánægður með viðbrögðin. Sky-útsendingar ólöglegar „Við erum að ganga frá samning- um við Samtök veitinga- og gisti- heimila um að þeir fái að senda frá útsendingum stöðvarinnar", segir Magnús. Fordæmi eru fyrir slíkum samningum og fá þannig barir að sýna frá þeim leikjum enska boltans sem þeir velja. Undanfarin misseri hafa barir sýnt frá leikjum í ensku úrvalsdeildinni með því að nota móttökubúnað frá Sky sjónvarps- stöðinni. Það er hins vegar ólöglegt þar sem Enski boltinn á sýningar- réttinn á efninu hérlendis. Þá hafa verið gerðir samningar við fréttastofu RÚV um að sýna frá því helsta úr ensku úrvalsdeildinni hverju sinni. Nánar er fjallað um sjónvarpsstöð- ina Enski boltinn á síðu 22 í Blaðinu i dag. ■ Borgarflokkur Sjálfstæðisflokks- ins fer að öllum líkindum í próf- kjör um mánaðamótin október - nóvember. Að sögn Ágústs Ragnarssonar, starfsmanns Sjálfstæðisflokksins, verður fundur hjá stjórn fulltrúaráðs flokksins síðar í mánuðinum þar sem ákveðið verður með hvaða hætti prófkjörið verður. Sjálft fulltrúaráðið verður boðað á fund í kjölfarið þar sem hugmyndir verða bornar undir það. Ágúst segir að á síðasta fundi stjórnar fulltrúa- ráðsins hafi verið ákveðið að af prófkjöri verði en að á næsta fúndi hennar komi í ljós með hvaða hætti. Ertu hress? Leggur þrjár milljónir til hjálparstarfs í Níger Rauði Kross fslands hefur ákveðið að leggja til þrjár milljónir króna til hjálparstarfs alþjóða Rauða krossins vegna hungursneyðar í Níger og ná- lægum löndum í Afríku. Ennfremur mun íslenskur sendifulltrúi Rauða krossins fara á svæðið á næstu dög- um. Sá heitir Karl Sæberg Júlíusson en hann mun hafa umsjón með ör- yggismálum vegna hjálparstarfsins en nokkuð er um vopnaða gæslu- hópa í landinu. Þetta kemur fram f tilkynningu frá samtökunum á heimasíðu þeirra. Þar segir ennfremur að óttast sé um afdrif allt að átta milljóna manna á svæðinu ef ekkert verður að gert einkum vegna mikils næringar- skorts meðal barna. Níger er talið vera næst fátækasta land í heimi. Þar varð uppskerubrestur í fyrra- haust og er ástandið sums staðar far- ið að verða mjög alvarlegt. Óttast er um afdrif allt að átta milljóna manna í Níger, næst fátækasta ríki heims. Alþjóða Rauði krossinn hefur þeg- ar hafið matvæladreifingu í landinu til barna undir fimm ára sem talin eru í mestri hættu. Sameinuðu þjóð- irnar tilkynntu á föstudag að senni- lega þyrfti 80 milljónir dollara, jafn- virði um 5 milljarða íslenskra króna, til þess að ná tökum á hungursneyð- inni í Níger.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.