blaðið - 10.08.2005, Page 24

blaðið - 10.08.2005, Page 24
24 I MENNING MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2005 blaðiö Ólíkir straumar á Kirkjubœjarklaustri Kammertónleikar á Kirkjubæjar- klaustri verða haldnir í fimmtánda sinn dagana 12., 13., og 14. ágúst. Edda Erlendsdóttir píanóleikari hafði á sínum tíma frumkvæði að tónleika- röðinni og er listrænn stjórnandi tón- leikanna. „Ég á ættir mínar að rekja til staðarins og hugmyndin vaknaði vegna þessara tengsla minna“, segir hún. Efnisskráin í ár er óvenju fjölbreytt en menn geta hlustað á klassík, tangó, djass og íslensk þjóðlög. „Það er frek- ar óvanalegt að blandað sé saman ólíkum straumum í tónlist", segir Edda. „Maður finnur að klassíkin er ekki eins einangruð og hún var kannski áður og svo er orðið algengt að dægurlög eru á efniskrá hjá sinfón- íuhljómsveitum. Með efnisskrá eins og þessari blandar maður saman mis- munandi áheyrendahópum." Óvenjulegt hljóðfæri Flytjendur á tónleikunum, auk Eddu, eru Auður Hafsteindóttir fiðla, Bryn- dís Halla Gylfadóttir selló, Egill Ólafs- son bariton, Olivier Manoury band- óneon og gítar Islancio með þeim Birni Thoroddsen gítar, Gunnari Þórðarsyni gítar og Jóni Rafnssyni kontrabassa. Olivier Manoury, eiginmaður Eddu, leikur á bandóneon á tónleikun- um en það er hljóðfæri sem kannski ekki allir þekkja. Segja má að það sé skylt harmónikkunni en hefur þó mýkri tón og er mikið notað við flutning á tangótónlist. Olivier segist hafa kynnst hljóðfærinu í Frakklandi þegar tangótónlist var í tísku þar og hrifist af því. Hann segir íslendinga hafa tekið tangótónlist vel enda séu þeir forvitnir um góða tónlist. Nýtt lag eftir Egil Á tónleikunum á Kirkjubæjarklaustri verður frumflutt splunkunýtt lag eftir Egil Ólafsson, Kysstu kysstu steininn og textinn er jafnframt eft- ir hann. „Samstarfið við Egil hófst á Klaustri fyrir fjórum árum. Þá þýddi hann tangóljóð á íslensku sem Ólivi- er útsetti síðan“, segir Edda. „Það er gaman að vinna með Agli og hann er skemmtilegur maður og ég ákvað að bjóða honum aftur í ár.“ Edda og Olivier búa í París en ferð- ast mikið vegna tónlistar sinnar og koma reglulega til Islands. „Ég er eins og farfugl, kem heim til íslands í byrj- un júlí og er í tvo mánuði og vinn við að skipuleggja Kammertónleikana á Klaustri“, segir Edda. „Auðvitað kem ég líka hingað þess á milli. Ég tel mig hafa góð tengsl við landið.“ kolbrun@vbl.is Blaöiö/Estherlr Edda Erlendsdóttir og Olivier Manoury verða meðal flytjenda á árlegum Kammertónleikum á Kirkjubæjarklaustri. Þar leikur Olivier á bandóneon sem hann heldur hér á. Verðlauna- söngkona meo tónleika fimmtudaginn eru í Stykkis- hólmskirkju kl. 20.30 en sunnu- dagstónleikarn- ir verða svo í Salnum í Kópa- vogi kl. 15.00. Elísa, Hrólfur ogSteinunnBirna eiga það öll sameig- inlegt að hafa stund- að framhaldsnám í Bandaríkjunum og er efnisskráin að nokkrum hluta þaðan. Þar má nefna lög úr Porgy and Bess eftir Gersh- win og úr Vanessu eftir bandaríska tónskáldið Samuel Barber. ■ Elísa Vilbergsdóttir, Hrólfur Sæ- mundsson og Steinunn Birna Ragnarsdóttir halda tvenna tón- leika i vikunni. Fyrri tónleikarnir verða á dönskum dögum í Stykk- ishólmi á fimmtudagskvöld og þeir síðari í Salnum í Kópavogi á sunnudaginn. Elísa Vilbergsdóttir hefur unn- ið til fjölda verðlauna í Banda- ríkjunum þar sem hún starfar auk þess sem henni var nýverið boðið að syngja hjá Metropolitan óperuhúsinu. Á tónleikunum hef- ur hún fengið til liðs við sig Hrólf Sæmundsson barítónsöngvara en Hrólfur hefur sungið all víða á tónleikum hér heima og erlend- is en er kannski þekktastur sem stofnandi Sumaróperunnar. Þeim Elísu og Hrólfi til halds og trausts er Steinunn Birna Ragnarsdóttir, píanóleikari, en hún er einn kunn- asti píanóleikari landsins og hef- Elísa Vilbergsdóttir. Hún hefur unnið til fjölda verðlauna i Banda- ríkjunum en heldur nú tónleika hérálandi. ur hlotið fjölda viðurkenn- inga f y r i r 1 e i k sinn. E1 í s a og Hrólfur munu svo fara með aðalhlutverk auk Kolbeins Ket- ilssonar og Valgerð- ar Guðnadóttur í óperunni Der Frei- schútz - Galdra- skyttan, sem sett verður upp í Þjóð- leikhúsinu á Lista- hátíð á næsta ári. Tónleikarnir á Hádegistónleikar i Hallgrimskirkju Á hádegistónleikum í Hallgríms- kirkju á fimmtudag leikur Friðrik Vignir Stefánsson orgelleikari nokkur verk. Síðan 1988 hefur Frið- rik Vignir starfað sem organisti og kórstjóri við Grundarfjarðarkirkju og verið skólastjóri Tónlistarskóla Grundarfjarðar Á síðasta ári hélt Friðrik Vignir orgeltónleika í boði Katarinukirkj- unnar í Stokkhólmi, tók þátt í al- þjóðlegum masterklassa í orgelleik í Haarlem í Hollandi. Þá hélt hann einnig orgeltónleika í Stykkishólms- kirkju og í Laugarneskirkju í Reykja- vík. ■ í næsta mánuði kemur út ævisaga leikarans Laurence Olivier eftir Terry Coleman. I bókinni er rýnt í samband Olivier við eiginkonu núm- er tvö, leikkonuna Vivien Leigh, en höfundur hafði aðgang að áður óbirtum bréfum parsins og þar opinberast afar sterkar og ástríðu- fullar tilfinningar. Olivier og Leigh hófu ástarsamband þegar þau voru bæði í hjónabandi en skildu eftir nokkurra ára samband við maka sína og gengu í hjónaband. Bréfin, sem Coleman fékk aðgang að, koma flest úr skjalasafni Olivier og eru mjög opinská um kynlíf og ástríður þeirra hjóna. Leigh var andlega van- heil og það leiddi loks til upplausnar hjónabandsins. Stuttu áður en Olivi- er lést árið 1989 kom vinur hans að honum þar sem hann var að horfa á kvikmynd í sjónvarpi þar sem Leigh var í aðalhlutverki. Með tár í augum Laurence Olivier. Ný ævisaga leikarans kemur út í næsta mánuði og þar er vitnað íáðuróbirt bréf. sagði Olivier: „Þetta, þetta var ást.“ Því hefur verið haldið fram að 01- ivier hafi átt í samkynhneigðum ást- arsamböndum við leikarana Danny Kaye og Douglas Fairbanks Jr. en því hafnar höfundur þessarar nýju ævisögu. Fronsk teiknimyndabók um galdra á Ströndum Marc Védrines heitir franskur teikni- myndasöguhöfundur en hann hefur verið á Ströndum undanfarna daga að sækja hugmyndir i nýja teiknimyndasögu sem kemur út á næsta ári, en teiknimyndablöð eru mjög vinsæl í Frakklandi og eiga þar rótgróna hefð. Að sögn Marc þá kom hann á Galdrasýninguna á Hólmavík fyrir tveimur árum og heillaðist svo af sýningunni og umfjöllunarefninu þar, að hann ákvað að galdrar á Islandi skyldi verða þema næstu sögu sem hann skrifar. „Þessi hugmynd er búin að vera að gerjast í kollinum á mér síðan”, segir Marc „og nú er ég búinn að fá útgefanda í Frakklandi sem er stærsta forlagí landinu á þessu sviði og heitir Dargaud og gefur m.a. út sögurnar af Ástríki og Steinríki”. Þetta verður þriggja bóka sería og fjallar um galdramann af Ströndum oghans aðferðir og ævintýri, en sagan heitir einfaldlega Islandia og byggir að hluta á atburðum sem áttu sér stað. Marc segist afar ánægður að hafa komið á Strandir en hann segist hafa orðið að koma þegar hann frétti af því að galdrasýningin Kotbýli kuldarans í Bjarnarfirði væri tibúin. Hann segir það mjög hjálplegt að sjá hvernig venjulegt fólk bjó á þessum tíma og segist vona að honum takist að láta það enduróma í verkinu. „Þegar ég lagði fram þessa hugmynd fyrir útgefandann þá var hann snöggur að grípa hugmyndina og samþykkti hana samstundis. Menn eru nefnilega alltaf að leita að nýjum efnistökum en mörg hundruð nýrra teiknimyndabóka koma árlega út í Frakklandi”, en Marc Védrines segist vona að þeim takist að finna útgefanda á íslenskri útgáfu seríunnar. Hann er kvæntur íslenskri konu og býr í París Heimild: www.strandir.is

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.