blaðið - 11.08.2005, Síða 4
©engin málningavinna
hvorki fúi né ryð
frábær hita og hljóðeinangrun
fallegt útlit
margir opnunarmöguleikar
örugg vind og vatnsþétting
Ljósmynd/Magnús Ólafsson
Ljósmyndasafn Reykjavíkur býður þeim sem hafa áhuga til Ijósmyndagöngu um miðborg Reykjavíkur í kvöld klukkan 20. Miðborgin
verður skoðuð út frá Ijósmyndum MagnúsarÓlafssonarsem teknarvoru á tímabilinu 1900 til 1930. Borið verður saman hvernig Reykja-
vík leit út í þá daga og veit fyrir sér hvaða breytingar hafa orðið á henni. Gangan fer frá Geysishúsinu, Vesturgötumegin, og mun taka
um klukkutíma. Göngugarpar fá Ijósrit af myndum Magnúsar svo auðvelt verði að glöggva sig á þeim stakkaskiptum sem borgin hefur
tekið. Ætlunin er að hlykkjast um miðbæjarkjarnann með viðkomu i Fógetagarðinum, Templarasundi, Austurvelli, Hafnarstræti, Arnar-
hól og fleiri merkum stöðum. Magnús (1862-1937) opnaði Ijósmyndastofu f Reykjavík árið 1901 eftir stutt Ijósmyndanám í Kaupmanna-
höfn.
Atvinnuleysi hér á landi
mælist nú innan við 2% og
hefur nánast aldrei verið
minna. Mikill skortur er á vinnuafli
í ákveðnum atvinnugreinum, svo
sem í byggingargeiranum, þar sem
mikil þennsla er um þessar mundir.
Starfsmenn ráðningaskrifstofa
hafa orðið varir við þessa þróun og
þeir aðilar sem Blaðið ræddi við
í gær eru sammála um að mikil
starfsmannavelta sé nú á markaðn-
um. Margir hafi notað tækifærið nú
í uppsveiflunni og skipt um vinnu,
sem verður augljóslega til þess að
störf þeirra losni og það hafi skapað
keðjuverkun.
Mismunandi skoðanir
á fjölda umsókna
María Jónasdóttir, framkvæmda-
stjóri Ráðningarþjónustunnar segir
að um þessar mundir sé markaður-
inn að taka við sér eftir sumarfrí.
Fyrirtæki hafi haldið að sér hönd-
um yfir sumartímann með manna-
ráðningar, enda vilji yfirmenn ekki
ráða til sín fólk meðan þeir eru sjálf-
GLUGGI TIL FRAMTÍÐAR
ÞÚ VILT FALLEGA VIÐHALDSFRÍA GLUGGA
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2005 blaðið
Mikil hreyfing á
vinnumarkaði
Mun auðveldara að fá vinnu nú en fyrir
nokkrum misserum
.................................... ....k
Saga miðborgar i máli og myndum
ir í fríi. Hún segir nægt framboð af
störfum, en að mun færri sæki um
hverja stöðu nú en áður. Hún er
þannig ósammála Gunnari Haugen,
forstöðumanni ráðningaskrifstofu
IMG. Hann segir að mjög mismun-
andi sé hversu margir sæki um
stöður, en dæmi séu um að allt að
200 einstaklingar berjist um sama
starfið. Ekki sé marktækur munur
á fjölda umsókna nú og fyrir t.d.
ári síðan. Hinsvegar sé rétt að fleiri
störf séu í boði og því auðveldara að
fá vinnu nú en fyrir 2 til 3 árum.
Eftirspurn eftir tölvu-
menntuðu fólki
Bæði eru sammála um að allir sem
eru á vinnumarkaðinum fái atvinnu
að lokum. Það fari hinsvegar eftir
því eftir hverju er leitað hversu fljótt
það gengur fyrir sig. María bendir
til dæmis á að vegna uppgangsins
í byggingageiranum fái almennir
iðnaðarmenn vinnu um leið og þeir
komi á markaðinn og sömu sögu sé
að segja um starfsstéttir á borð við
byggingarverkfræðingaogverkfræð-
inga. Gunnar bendir hinsvegar á að
uppgangurinn sé víðar, til að mynda
sé nú nokkur eftirspurn eftir fólki í
tölvugeiranum, sem og fólki með
viðskiptamenntun. Sú eftirspurn
hafi verið hverfandi fyrir nokkru. ■
Meira en helmingur sérfræðinga og stjórnenda vinnur eitthvað heima við.
Fleiri í fjarvinnslu
Samkvæmt niðurstöðum launakönn-
unar Verslunarmannafélags Reykja-
víkur (VR) vinna um 28% félags-
manna þess fjarvinnu heima. Þetta
er nokkuð hærra hlutfall en mældist
í sambærilegri könnun fyrir ári, en
þá var þessi tala 23%. Þeir sem vinna
fjarvinnslu nú eyða í það tæpum 7
tímum á viku en á sama tíma í fyrra
var þessi tala um 10 klukkustundir,
þannig að tíminn hefur styst nokk-
uð milli ára. í könnuninni var spurt
hversu mikið af vinnuvikunni fólk
ynni almennt heima.
Menntað fólk vinnur frekar heima
Að sögn Steinunnar Böðvarsdóttur
hjá VR er fjarvinnslan hluti af sveigj-
anleika í starfi sem margir búa vié
ídag.
„Fólk er að taka með sér vinnu til
að ljúka heima og yfirleitt er það
starfsmaðurinn sem biður sinn
vinnuveitanda um það,“ segir Stein-
unn.
Hún bendir á að kyn, starfsstétt,
menntun og fleira hafi mikil áhrif á
það hvort fólk vinnur fjarvinnu eða
ekki. Þannig segjast um 34% karla
vinna eitthvað í fjarvinnslu á móti
um 22% kvenna. Ennfremur er fólk
á aldrinum 30 til 40 ára líklegast til
að nýta þennan kost. Menntun hefur
einnig mikil áhrif - 59% þeirra sem
hafa lokið masters- eða doktorsprófi
vinna fjarvinnu. Til samanburð-
ar má geta þess að 28% þeirra sem
hafa lokið einhverju viðbótarnámi
að framhaldsskóla loknum vinna
fjarvinnu og aðeins 12% þeirra sem
hafa grunnskólapróf eða minni
menntun. 1 könnuninni kemur enn-
fremur fram að tæpur helmingur
stjórnenda og sérfræðinga vinnur
fjarvinnu að einhverju marki. ■
PGVf
sem þarfnast stöðugs \
* 3$Zf&f' •TÍf)'* '
PLASTGLUGGAVERKSMIÐJAN
plastgluggaverksmiðjan ehf. i bæjarhrauni 6 i 220 hafnafjörður i sími: 564 6080 i fax: 564 6081 i www.pgv.is
VIÐ
HÖFUM
ALLAR
GERÐIR
BÍLA
ne4*
5-9 MANNA
Tæpar 20 milljónir
vegna hraöaksturs
Þegar umferðarátak Ríkislögreglu-
stjóra, samgönguráðuneytisins,
Umferðarstofu og Vegagerðarinnar
er hálfnað, hafa menn ríkislögreglu-
stjóra 1.560 sinnum stöðvað öku-
menn á þjóðvegum landsins. í lang-
flestum tilfella er um hraðakstur að
ræða eða 1.229 sinnum. Miðað við
lágmarkssektargreiðslur samkvæmt
lögum má búast við því að bara hrað-
aksturinn muni skila rúmum átján
milljónum í ríkiskassann. Þar sem
40 milljónum verður veitt til verkefn-
isins þá þrjá mánuði sem það verður
lítur út fyrir að það komi til með að
standa undir kostnaði. Það skal tek-
ið fram að þessar tölur ná einungis
yfir átakið sjálft en lögregluembætti
landsins hafa einnig verið iðin við
kolann á sama tíma.
Eye-witness reynist vel
„Þetta hefur gengið mjög vel og mér
heyrist á samstarfsmönnum minum
að þeir merki betri umferðarmenn-
ingu heldur en var áður en byrjað
var á þessu umferðarátaki", segir
Hjálmar Björgvinsson, aðalvarð-
Stjóri hjá Ríkislögreglustjóra. Hann
segir að yfirleitt hafi ökumenn tekið
því vel þegar laganna verðir höfðu af-
skipti af þeim og gert sér grein fyrir
brotum sínum. Þá hafi eye-wi
myndavélabúnaður reynst eii
lega vel og orðið til þess að í
þess að tvímenna í einn bíl ha
ið hægt að senda tvo bíla sem e
geri lögregluna sýnilegri.
HÁDEGISVERÐARTILBOÐ 690.
Blandíð saman allt að 3 réttum ur hitaborði
Soltun 3 S 562 9060 Bæjarlinú 14-16 S 564 6111
Tilboðin gitda ekki með heimsendingu