blaðið - 11.08.2005, Page 6

blaðið - 11.08.2005, Page 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2005 blaðið / Dýralækn- ar ósáttir við Guðna Dýralæknafélag íslands (DÍ) sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem tek- ið er undir gagnrýni embættis yfir- dýralæknis í síðasta mánuði. Þar gagnrýndi yfirdýralæknir Guðna Ágústsson, landbúnaðarráðherra vegna staðsetningar Landbúnaðar- stofnunar annarsvegar og hinsvegar vegna ráðningar forstjóra stofnunar- innar. í ályktun DÍ um málið segir með- al annars: „DÍ mótmælir þeirri ráðstöfun landbúnaðarráðherra að staðsetja Landbúnaðarstofnun utan höfuð- borgarsvæðisins. Ekkert samráð var haft við starfsmenn þeirra stofnana sem mynda Landbúnaðarstofnun þegar ákvöðun var tekin...” A öðrum stað segir ennfremur: „DÍ mótmælir einnig harðlega ráðningu nýs forstjóra þar sem geng- ið var fram hjá greinilega hæfari umsækjendum úr dýralæknastétt... Með þessari ráðningu er gróflega vegið að dýralæknum, en eins og kunnugt er mun starfssvið Land- búnaðarstofnunar að miklu leyti verða á starfsvettvangi dýralækna." Samtök auglýsenda Alfarið á móti hugmynd veróandi útvarpsstjóra Samtök auglýsenda (SAU) lýsa sig alfarið á móti hugmyndum um að Ríkisútvarpið eigi að hverfa af aug- lýsingamarkaði. Páll Magnússon, verðandi útvarpsstjóri, hélt því fram á dögunum að hann teldi það rétt að draga RÚV af þessum markaði. Á fundi framkvæmdastjórnar SAU var samþykkt að auglýsendur vilja að RÚV verði áfram á auglýsinga- markaði af ýmsum ástæðum. Minnkar aðgengi að neytendum Framkvæmdastjórnin telur áhrif brotthvarfs RÚV fyrir auglýsendur í meginatriðum af tvennum toga. I fyrsta lagi minnki aðgengi auglýs- enda að almenningi þar sem RÚV nær augum og eyrum flestra lands- manna og ekki er hægt að ná til ákveðins hluta þjóðarinnar nema í gegnum RÚV. Það yrði því erfiðara fyrir auglýsendur að nálgast neyt- endur ef RÚV nyti ekki við. í öðru lagi telja Samtök auglýsenda að brotthvarf Ríkisútvarpsins af auglýs- ingamarkaði myndi þýða að dýrara yrði fyrir auglýsendur að koma skila- boðum sínum á framfæri við neyt- endur. Þannig myndi bæði framboð auglýsingatíma minnka með tilheyr- andi verðhækkunum og samval aug- lýsingatíma verða óhagstæðara. Hækkar vöruverð Samtökin telja einnig að þetta geti haft víðtæk áhrif á almenning í land- inu. í fyrsta lagi myndu afnotagjöld hækka miðað við óbreyttar rekstrar- forsendur. Þá yrði þetta til þess að mun erfiðara væri fyrir almenning að afla sér upplýsinga um vörur og þjónustu. Einnig er talið að verð á vöru og þjónustu myndi hækka vegna þess að auglýsendur þyrftu að leita dýrari leiða til að koma upp- lýsingum um vörur sínar eða þjón- ustu á framfæri. Að síðustu megi ekki gleyma því að auglýsingar hafa, auk upplýsingahlutverksins, ákveð- ið afþreyingar og skemmtanagildi, og geta jafnvel lengt líf fólks ef rétt reynist að hláturinn lengi lífið eins og rannsóknir benda til. ■ Enn vantar sjálfboðaliða fyrir menningarnótt Menningarnótt verður um aðra helgi með tilheyrandi hátíðarhöld- um, skemmtunum og listviðburð- um. Gert er ráð fyrir að um 100.000 manns muni leggja leið sína í mið- borg Reykjavíkur í tengslum við hátíðina. Að mörgu er að hyggja við undirbúning slíkrar hátíðar og nú leita aðstandendur hennar að sjálf- boðaliðum til að sinna ýmiskonar verkefnum. Siv Gunnarsdóttir, verk- efnisstjóri viðburða hjá Höfuðborg- arstofu segir að nokkra vanti ennþá, svo sem til að vinna í upplýsingabás- um sem koma á fyrir víða í miðborg- inni og einnig sé hugmyndin að fá ljósmyndara til að vera á ferðinni og taka myndir af hátíðinni og gest- um hennar. Hún segir að nokkrir hafi þegar gefið kost á sér, og að það komi skemmtilega á óvart að hluti þeirra skuli vera útlendingar. Þeir séu að flytja til landsins og séu van- ir að taka þátt í slíkri vinnu í sínu heimalandi, og líti á þetta sem tæki- færi til að kynnast fólki og komast inn í samfélagið. ■ Frá menningarnótt í fyrra. Ljósmynd: Svavar Ítagnarsíon Gler augnaversl unin Si ónar hÓl 1 stærri verslun meira úrval frábær tilboð Reykjavíkurvegi 22, Hafnarfirði S.565-5970 www.sjonarholl.is Verið að hræða fólk frá því að nota tjáningarfrelsi Sýslumaðurinn á Seyðisfirði hefur farið þess á leit að þeir einstaklingar sem mótmælt hafa byggingu Kárahnjúkavirkjunar og álvers í Reyðarfirði verði vísað úr landi. Útlendingastofnun er þessa dagana að skoða málið en niðurstaða liggur enn ekki fyrir. Össur Skarphéðinsson, þingmaður, er ósáttur við hvernig staðið hefur verið að málum. Mér finnst almennt mjög harkalega farið að þessu fólki, en það er elt við hvert fótmál um landið í krafti vafasamra lagaheimilda. Nú er þess jafnframt krafist að þvl verði fleygt úr landi. Mér finnst það mjög vafasamtámeðanaðmálumáhendur þessara mótmælenda er ekki lokið. Ég hef stutt Kárahnjúkavirkjun, en ég styð líka skýlausan rétt manna til að mótmæla stefnu stjórnvalda enda sé lögum fylgt. Allir eru saklausir þar til sekt hefur verið sönnuð - það er grundvallarregla. Mér sýnist hinsvegar að framkoma ríkislögreglustjóra gagnvart mómælendunum eigi að fela í sér Össur Skarphéðinsson finnst„harkalega að mótmælendum farið í krafti vafasamra lagaheimilda". sterk skilaboð til að hræða fólk við svipaðar aðstæður frá því að nota rétt sinn til tjáningafrelsis. Það er ennfremur merkilegt að stjórnvöld höfðu, - og hafa ekki fjárveitingar til að fylgja eftir augljósum lögbrjótum á vinnusvæði Impregilo en senda hinsvegar fólk þvert yfir landið til að elta nokkra mótmælendur,” segir Össur. Fáir aðilar eiga mikið í stóru íslensku fyrirtækjunum Tíu stærstu hluthafar í 26 íslensk- um fyrirtækjum eiga að meðaltali um 75% hlutafjár í viðkomandi fyr- irtæki. Fimm stærstu hluthafarnir eiga liðlega 61% hlutabréfa. Þetta kemur fram í úttekt Viðskiptablaðs- ins sem kom út í gær. Þar er fullyrt að eignarhald i íslenskum félögum í Kauphöll Islands sé þröngt og að mikill meirihluti hlutafjár sé í eigu fárra aðila. Bent er á að þetta sé mun þrengra eignarhald en til dæm- is í Bandaríkjunum, og að við stönd- um mun nær löndum Evrópu hvað þetta varðar. Varað er við þessari þróun þvi þröngt eignarhald getur haft þær afleiðingar að mjög dragi úr seljan- leika hlutabréfa í viðkomandi fyrir- tæki. ■ Krefst upplýs- inga vegna Jökulfells- slyssins Færeyski þingmaðurinn Torbjörn Jacobsen hefur sent lögmanni Fær- eyja, Jóannesi Eidesgaard, sérstaka fyrirspurn vegna viðbragða fær- eyskra björgunarmanna þegar Jök- ulfellið sökk við Færeyjar í febrúar síðastliðnum. Fyrirspurnin er í átta liðum og vill Jacobsen meðal annars fá að vita hvaða upplýsingar lögmað- urinn hafði fengið frá því slysið átti sér stað þar til sjávarútvegsráðherra Færeyja greindi frá því 3. mars síðastliðinn að opinber rannsókn myndi fara fram á málinu. Þá vill jingmaðurinn ennfremur fá að vita rvort lögmaðurinn sé ánægður með 3á pólitísku afgreiðslu sem málið íafi fengið. Eins og kunnugt er urðu deilur í kjölfar slyssins um viðbrögð fær- eyskra björgunarmanna,. og telja margir, meðal annars Jacobsen, að hægt hefði verið að senda þyrlu fyrr á slysstað og þannig jafnvel bjarga fleiri mannslífum. Skýrt er frá málinu á heimasíðu færeyska útvarpsins. ■ Skólakort fyrir alla Öllum farþegum Strætó verður frá 15. ágúst boðið upp á að kaupa svo- kallað Skólakort. Kortið tekur mið af skólaárinu en verður þó í boði fyr- ir alla sem vilja. Þetta er gert til þess að koma til móts við óskir og þarfir þeirra sem nýta sér þjónustu Strætó reglulega. Það virkar svipað og önn- ur afsláttarkort Strætó, t.d. græna kortið, en virkar allt skólaárið, þ.e. í nlu og hálfan mánuð. Það mun kosta 25 þúsund krónur og er selt á sölustöðum farmiða Strætó.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.