blaðið - 11.08.2005, Blaðsíða 15
Mafti6 FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2005
ÁLIT 115
R-listinn a grafarbakkanum
Nú líður ekki á
löngu þar til geng-
ið verður til borgar-
stjórnarkosninga í
Reykjavík. Sjálf-
stæðisflokkurinn
Jón skjöldur hefur verið mikið í
sviðsljósinu vegna
komandi leiðtoga-
prófkjörs þar sem enginn frambjóð-
andi virðist stefna á neitt ákveðið
sæti. Það eina sem er vitað er að Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson ætlar sér
að leiða listann en hinir frambjóð-
endurnir láta líta svo út að þeir séu í
hálfgerðu kurteisisframboði. Menn
gera kannanir en kannast síðan ekki
við neitt. Borgarstjórnarflokkur D-
listans hefur einnig verið í sviðsljós-
inu þegar menn þar hafa skotið föst-
um skotum á R-listann um
málefnalægð og valdabaráttu. Einn-
ig hafa menn haldið fram að tilvera
hans byggist eingöngu á því að halda
völdum og um leið að halda D-listan-
um frá völdum.
Undir venjulegum kringumstæð-
um hefði maður varist þessum
skotum með kjafti og klóm og beitt
mótrökum. Staðan er einfaldlega sú
að nokkuð virðist vera til í þessum
árásum - því miður. R-listinn hefur
í raun gefið út veiðileyfi á sjálfan sig
síðustu mánuði. Endalausir fundir
bak við luktar dyr sem virðast ekki
gefa af sér neinar niðurstöður af viti.
Á meðan sitja málefnin á hakanum
og hinn almenni kjósandi R-listans
hlýtur að klóra sér í hausnum.
Nýjustu Gallupkannanir sýna að
99.......................
R-listinn er einfaldlega
langt frá því að vera
það mikla aflsem
hann var þegar hann
var stofnaður og
virðist því miður vera
í andarslitrunum.
Sjálfstæðisflokkurinn fengi naum-
an meirihluta í borginni yrði geng-
ið til kosninga nú. Að vísu er það
ekki nýtt af nálinni að svona stutt
sé á milli fylkinganna svo skömmu
fyrir kosningar. Samt hljóta það að
vera alvarleg aðvörunarmerki þegar
svona mikill titringur er kominn í
kjósendahóp R-listans og því brýnt
að grípa til aðgerða.
Eg er þeirra skoðunar að R-listinn
sé í raun orðinn Samfylkingunni
fjötur um fót. Ef hún ætlar að eiga
möguleika á að vaxa og dafna í borg-
inni verður það ekki gert öðruvísi
en með eigin framboði. Með góða
málefnastefnu og sterkan leiðtoga
ættum við góða möguleika og ekki
óraunhæft að ætla að flokkurinn
myndi ná í versta falli fjórum mönn-
um. Síðan væri reynandi að mynda
meirihluta og halda borginni. Það
er a.m.k. alveg ljóst að margir mega
ekki til þess hugsa að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi bæði völd í borginni
og í landsmálunum.
R-listinn er einfaldlega langt frá
því að vera það mikla afl sem hann
var þegar hann var stofnaður og virð-
ist því miður vera í andarslitrunum.
Jón Skjöldur, gjáldkeri ungra
jafnaðarmanna í Kópavogi
Strætó
Það var í vor að
sá er þetta ritar,
reiknaði út þyngd-
arpunkt samhang-
andi byggðar á höf-
uðborgarsvæðinu.
Þessi þungamiðja
var þá um miðja
götuna Furugrund
í Kópavogi. Þegar strætisvagnar
voru fyrst notaðir var torgið mið-
punktur og því sjálfgefið að hafa
samgöngumiðstöðina þar, seinna
var Hlemmur miðsvæðis en er það
ekki lengur, Hvað með mjódd . Þeg-
ar verið er að skipuleggja þarf að
miða hvernig eitthvað verður en
ekki hvernig það var. Almennings-
samgöngur geta verið með ýmsum
hætti, í höfuðborg Jemen 'Sanaa'
eru notuð s.k. bitabox. Miðstöðvar
eru á tveim stöðum þ.e. við gamla
markaðinn og nýja pósthúsið. Bíl-
arnir standa í röðum og þjóta af stað
þegar þeir eru orðnir fullir af far-
þegum. Ég spurði einn bílstjórann
hvað þetta væru margir bílar, hann
sagði að þeir væru to.ooo, nú eru ar-
abar ekki voða talnaglöggir og vita
ekki endilega hvað þeir eru margir.
Svona fimm hundruð til þúsund
bílar er sennilegur fjöldi. Fulltrúar
strætó ættu að skreppa þarna aust-
ur og skoða þetta merkilega kerfi.
Þarna í borginni er líka flugvöllur
sem búið er að leggja niður og er
nú hluti af gatnakerfinu. Flugrekst-
urinn er allur kominn upp í sveit.
Hér eru risastórir strætóar akandi
um göturnar oft með bara einn eða
tvo farþega. Er hugsanlegt að bjóða
út til reksturs eina leið til prufu, þar
sem bjóðandinn mætti t.d. nota VW
rúgbrauð þegar fáir eru farþegarnir.
Getur verið að Strætó sé ekki endi-
lega fyrir notendurna.
Er hugsanlegt að Strætó sé tæki
til að flytja peninga frá almenningi
til bíla og varahlutasala.
Gestur Gunnarsson
Gestur
Gunnarsson
ókeypis til
heimila og fyrirtækja
alla virka daga
FRJÁLST
blaóió