blaðið - 11.08.2005, Side 31

blaðið - 11.08.2005, Side 31
MENNTASKÓLINN H RAÐBRAUT Heilbrigði og félagslíf Menntaskólinn Hra hvað gerist þar raut, í dag verður Menntaskólinn Hraðbraut settur í þriðja skipti. Skólinn hóf starf haustið 2003 í gamla Lækjarskólanum í Hafnarfirði, en flutti fljótlega í Faxafen 10. Skólastofur þar eru bjartar og rúmgóðar, skrifstofustólar eru fyrir hvern nemanda og keppst er við að hafa umhverfið aðlaðandi og þægilegt. Stjórnendur Hraðbrautar gera sér þó grein fyrir að það er ekki nóg að hafa umhverfið aðlaðandi. Innviðir skólastarfsins verða einnig að vera traustir. Áhersla er því lögð á að mæta þörfum hvers og eins eftir því sem kostur er á. Enginn nemandi á að vera afskiptur og aðgangur að kennurum, náms- ráðgjafa og öðru starfsfólki er alltaf greiður. Áhersla er lögð á að nemendur tjái sig um skólastarfið og láti skoðanir sínar í Ijós, hvort sem þeir eru sáttir eða ósáttir. í meiri háttar málum hefur verið blásið til fundar og málamiðlana hefur verið leitað. Stjórnendur gera sér grein fyrir því að þarfir nemenda eiga alltaf að vera í fyrsta sæti í Hraðbraut. Öðruvísi kerfi Skipulögð kennsla er á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum, en á þriðjudögum og fimmtudögum er„heimanám" stundað í skólanum. Þá eru kennarar til staðar og svara fyrirspurnum nemenda. Mætingaskylda er aila daga vikunnar og á heimanámsdögum hefur verið ráðið yfirsetufólk sem fylgist með mætingum og sér um að vinnufriður haldist. Gott samband hefur myndast milli yfirsetufólks og nemenda og er það partur af þeim persónulega brag sem einkennir skólastarfið. Hraðbraut býður upp á lotukerfi sem felst í því að kenndar eru þrjár námsgreinar í fjórar vikur samfleytt og síðan prófað í fimmtu vikunni. Þeir nemendur sem ná prófum fá síðan viku frí til að ,,h!aða batteríin" og undirbúa sig undir næstu lotu. Þeir sem falia í einu eða fleiri fögum þurfa að sitja í skólanum sjöttu vikuna og undirbúa upptökupróf sem ferfram á föstudegi þá viku. Það er því hvetjandi að ná prófi og má leggja mikið á sig til að uppskera viku frí frá náminu. Loturnar eru sjö á fyrra ári og átta hið síðara, samtals fimmtán. I fimmtándu lotunni eru aðeins kenndar tvær námsgreinar, tjáning og lífsleikni. (lífsleikni spreytir útskriftarhópurinn sig m.a. á því að undirbúa ferðalag nemenda. Fyrsti hópurinn fór í vel heppnaða ferð í Þórsmörk si. vor sem hafði verið undirbúin af nemendum; ferðir, gisting, matur, uppákomur o.s.frv. Einnig stóð hópurinn fyrir „hinni síðustu kvöldmáltíð" þann 8. júlí en það er hátíðarkvöldverðarfyrir útskriftarnema og starfsfólk. Hápunktur kvöldsins var síðan þegar nemendur stóðu upp einn af öðrum og héldu skemmtilegar tölur eða þökkuðu fyrir sig og kom þar m.a. í Ijós hvað tjáningarnámskeiðið hafði borið góðan árangur. Hverjir eru í Hraðbraut Nemendahópurinn er tvískiptur.Yngri hluti hópsins kemur úr grunnskóla en eldri hlutinn er að hefja nám að nýju eftir hlé. Skráðir nýnemar í Hraðbraut veturinn 2005-2006 eru rúmlega 80 og er þeim skipt niður í þrjá bekki eftir aldri nemenda, en slík skipting hefur gefist vel. Hver bekkur hefur sinn sértaka„bekkjar- anda" en þrátt fýrir það blandast þeir þó skemmtilega á milli kennslustunda. Þá miðla hóparnir reynslu og þekkingu sín á milli. Fram hefur komið að eldri nemendureru alls ekki síðri félagsverur en hiniryngri. í dag eru um 60 nemen- dur á síðara námsárinu, um 25 á náttúrufræði- braut og 35 á málabraut. Áfyrra námsárinu stunda nemendur ekki nám á sérstakri námsbraut heldur fara allir í sömú kjarnafögin. Málabrau- tin í Hraðbraut er óvenjuleg að því leyti að þar taka nemendur 18 einingar í stærðfræði sem er langt umfram þær 6 einingar í stærð- fræði sem nemendur taka á hefðbundnum málabrautum. J Það þarf ekki sérfræðinga til, til að sjá að það að ætla sér að nema fjögurra ára nám á tveimurárum krefst heilbrigðis, andlegs sem líkamlegs. Mikið námsálag getur leikið þau grátt sem eru ekki eru nógu sterk. íþróttir eru stundaðar í Hreyfingu auk þess sem sl. vor var tekin upp sú nýjung að bjóða upp á fjallgöngur. Nemendur sem tóku þátt í þeim lýstu ánægju sinni með þá nýbreytni. Því hefur verið ákveðið að leggja meiri rækt við þær. Hraðbraut hefur átt sína fulltrúa í Gettu betur, Morfís, Söngvakeppni fram- haldsskólanna, stærðfræðikeppni framhaldsskólanna og fleiri keppnum. Nemendum skólans hefuryfirleitt gengið prýðilega og eru þeir t.d. núverandi framhaldsskólameistarar í PaintBall. Nemendafélagið ber heitið "Autobahn" í takt við Hraðbrautina. Það hefur staðið fyrir fjölmörgum stuttum ferðum, jólahlaðborði, árshátíð og ýmsu fleiru. Eitt af því sem þykir koma skemmti- lega út er félagslífið í hversdagsleikan- um. Á skóladögum sl. vetur voru ýmsir þemadagar,„bleikur dagur"„grænn dagur"„lopadagur" o.s.frv. Einnig voru ýmsar keppnir t.a.m. átkeppnir þar sem keppt vart.d. í áti á kókósbollum, samlokum o.fl. Nokkrum sinnum yfir veturinn býður skólinn nemendum í pizzuveislu í hádegishléi en þá er pantaður vænn stafli af pizzum og gos til að renna þeim niður. Félagslífið hefureinnig blómstrað í kringum námsgreinar eins og lífsleikni, íslensku og tjáningu. Hraðbraut hefur á að skipa mjög hæfum kennurum og þar starfar m.a. Bjarki Bjarnason íslensku- og sögukennari en hann var valinn vinsælasti kennarinn af nem- endum sl. vetur. Skundar hann með nemendur í ýmsar spennandi vett- vangsferðir eins og t.d. á Njáluslóðir. Náttúrufræðikennarar hafa einnig stundað fróðlegar vettvangsferðir. Þess má geta að margir góðir gestir hafa heimsótt skólann. (tengslum við félagsfræðikennslu komu t.d. þeir Felix Bergsson og Páll Óskar Hjálmtýsson. Erpur - eða Johnny National dúkkaði upp í tengslum við dönskukennslu og rappaði fyrir nemendur á dönsku. Það er vitað að enginn maður er eyland og þátttaka í félagslífi er nauðsynleg til að halda tengslum, enda mannleg samskipti orðin hátt metin á vinnu- markaði ekki síður en bóknám. Ótskrift Þann 9. júlí sl. útskrifaðist fyrsti nemendahópurinn frá Hraðbraut. Það var mikil gleðistund, þó ekki væri hún laus við trega þar sem komið var að kveðjustund frumkvöðlanna, þeirra nemenda sem fýrstifriðu á Vaðið og ákváðu að gera Hraðbraut að sinni braut. (dag er verið að setja skólann í þriðja skiptið eins og fram kemur í upphafsorðum. Frískur hópur kemur inn, nemendur sem ætla sér að halda áfram og sigra heiminn! Þeir sem hafa áhuga á að kynnast þessum skóla sem er„tveimur árum á undan" eins og fram kemur í einum af slagorðum hans, er bent á að skoða heimasíðuna www.hradbraut.is og skoða þar einnig kynningarbækling skólans.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.