blaðið - 11.08.2005, Qupperneq 31
MENNTASKÓLINN
H RAÐBRAUT
Heilbrigði og félagslíf
Menntaskólinn Hra
hvað gerist þar
raut,
í dag verður Menntaskólinn Hraðbraut settur í þriðja skipti. Skólinn hóf starf
haustið 2003 í gamla Lækjarskólanum í Hafnarfirði, en flutti fljótlega í Faxafen
10. Skólastofur þar eru bjartar og rúmgóðar, skrifstofustólar eru fyrir hvern
nemanda og keppst er við að hafa umhverfið aðlaðandi og þægilegt.
Stjórnendur Hraðbrautar gera sér þó grein fyrir að það er ekki nóg að hafa umhverfið aðlaðandi.
Innviðir skólastarfsins verða einnig að vera traustir. Áhersla er því lögð á að mæta þörfum hvers og
eins eftir því sem kostur er á. Enginn nemandi á að vera afskiptur og aðgangur að kennurum, náms-
ráðgjafa og öðru starfsfólki er alltaf greiður. Áhersla er lögð á að nemendur tjái sig um skólastarfið og
láti skoðanir sínar í Ijós, hvort sem þeir eru sáttir eða ósáttir. í meiri háttar málum hefur verið blásið til
fundar og málamiðlana hefur verið leitað. Stjórnendur gera sér grein fyrir því að þarfir nemenda eiga
alltaf að vera í fyrsta sæti í Hraðbraut.
Öðruvísi kerfi
Skipulögð kennsla er á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum, en
á þriðjudögum og fimmtudögum er„heimanám" stundað í skólanum. Þá
eru kennarar til staðar og svara fyrirspurnum nemenda. Mætingaskylda er
aila daga vikunnar og á heimanámsdögum hefur verið ráðið yfirsetufólk
sem fylgist með mætingum og sér um að vinnufriður haldist. Gott
samband hefur myndast milli yfirsetufólks og nemenda og er það partur
af þeim persónulega brag sem einkennir skólastarfið.
Hraðbraut býður upp á lotukerfi sem felst í því að kenndar eru þrjár
námsgreinar í fjórar vikur samfleytt og síðan prófað í fimmtu vikunni. Þeir
nemendur sem ná prófum fá síðan viku frí til að ,,h!aða batteríin" og
undirbúa sig undir næstu lotu. Þeir sem falia í einu eða fleiri fögum þurfa
að sitja í skólanum sjöttu vikuna og undirbúa upptökupróf sem ferfram á
föstudegi þá viku. Það er því hvetjandi að ná prófi og má leggja mikið á
sig til að uppskera viku frí frá náminu. Loturnar eru sjö á fyrra ári og átta
hið síðara, samtals fimmtán. I fimmtándu lotunni eru aðeins kenndar tvær
námsgreinar, tjáning og lífsleikni.
(lífsleikni spreytir útskriftarhópurinn sig m.a. á því að undirbúa ferðalag
nemenda. Fyrsti hópurinn fór í vel heppnaða ferð í Þórsmörk si. vor sem
hafði verið undirbúin af nemendum; ferðir, gisting, matur, uppákomur
o.s.frv. Einnig stóð hópurinn fyrir „hinni síðustu kvöldmáltíð" þann 8. júlí
en það er hátíðarkvöldverðarfyrir útskriftarnema og starfsfólk. Hápunktur
kvöldsins var síðan þegar nemendur stóðu upp einn af öðrum og héldu
skemmtilegar tölur eða þökkuðu fyrir sig og kom þar m.a. í Ijós hvað
tjáningarnámskeiðið hafði borið góðan árangur.
Hverjir eru í Hraðbraut Nemendahópurinn er
tvískiptur.Yngri hluti
hópsins kemur úr
grunnskóla en eldri
hlutinn er að hefja nám
að nýju eftir hlé. Skráðir
nýnemar í Hraðbraut
veturinn 2005-2006 eru
rúmlega 80 og er þeim
skipt niður í þrjá bekki
eftir aldri nemenda, en
slík skipting hefur gefist
vel. Hver bekkur hefur
sinn sértaka„bekkjar-
anda" en þrátt fýrir það
blandast þeir þó
skemmtilega á milli
kennslustunda. Þá
miðla hóparnir reynslu
og þekkingu sín á milli.
Fram hefur komið að
eldri nemendureru alls
ekki síðri félagsverur en
hiniryngri.
í dag eru um 60 nemen-
dur á síðara námsárinu,
um 25 á náttúrufræði-
braut og 35 á
málabraut. Áfyrra
námsárinu stunda
nemendur ekki nám á
sérstakri námsbraut
heldur fara allir í sömú
kjarnafögin. Málabrau-
tin í Hraðbraut er
óvenjuleg að því leyti
að þar taka nemendur
18 einingar í stærðfræði
sem er langt umfram
þær 6 einingar í stærð-
fræði sem nemendur
taka á hefðbundnum
málabrautum. J
Það þarf ekki sérfræðinga til, til að sjá
að það að ætla sér að nema fjögurra
ára nám á tveimurárum krefst
heilbrigðis, andlegs sem líkamlegs.
Mikið námsálag getur leikið þau grátt
sem eru ekki eru nógu sterk. íþróttir
eru stundaðar í Hreyfingu auk þess
sem sl. vor var tekin upp sú nýjung að
bjóða upp á fjallgöngur. Nemendur
sem tóku þátt í þeim lýstu ánægju
sinni með þá nýbreytni. Því hefur verið
ákveðið að leggja meiri rækt við þær.
Hraðbraut hefur átt sína fulltrúa í Gettu
betur, Morfís, Söngvakeppni fram-
haldsskólanna, stærðfræðikeppni
framhaldsskólanna og fleiri keppnum.
Nemendum skólans hefuryfirleitt
gengið prýðilega og eru þeir t.d.
núverandi framhaldsskólameistarar í
PaintBall. Nemendafélagið ber heitið
"Autobahn" í takt við Hraðbrautina. Það
hefur staðið fyrir fjölmörgum stuttum
ferðum, jólahlaðborði, árshátíð og
ýmsu fleiru.
Eitt af því sem þykir koma skemmti-
lega út er félagslífið í hversdagsleikan-
um. Á skóladögum sl. vetur voru ýmsir
þemadagar,„bleikur dagur"„grænn
dagur"„lopadagur" o.s.frv. Einnig voru
ýmsar keppnir t.a.m. átkeppnir þar
sem keppt vart.d. í áti á kókósbollum,
samlokum o.fl. Nokkrum sinnum yfir
veturinn býður skólinn nemendum í
pizzuveislu í hádegishléi en þá er
pantaður vænn stafli af pizzum og gos
til að renna þeim niður.
Félagslífið hefureinnig blómstrað í
kringum námsgreinar eins og lífsleikni,
íslensku og tjáningu. Hraðbraut hefur
á að skipa mjög hæfum kennurum og
þar starfar m.a. Bjarki Bjarnason
íslensku- og sögukennari en hann var
valinn vinsælasti kennarinn af nem-
endum sl. vetur. Skundar hann með
nemendur í ýmsar spennandi vett-
vangsferðir eins og t.d. á Njáluslóðir.
Náttúrufræðikennarar hafa einnig
stundað fróðlegar vettvangsferðir. Þess
má geta að margir góðir gestir hafa
heimsótt skólann. (tengslum við
félagsfræðikennslu komu t.d. þeir Felix
Bergsson og Páll Óskar Hjálmtýsson.
Erpur - eða Johnny National dúkkaði
upp í tengslum við dönskukennslu og
rappaði fyrir nemendur á dönsku. Það
er vitað að enginn maður er eyland og
þátttaka í félagslífi er nauðsynleg til að
halda tengslum, enda mannleg
samskipti orðin hátt metin á vinnu-
markaði ekki síður en bóknám.
Ótskrift
Þann 9. júlí sl. útskrifaðist fyrsti nemendahópurinn frá Hraðbraut. Það var mikil gleðistund, þó ekki væri hún laus við
trega þar sem komið var að kveðjustund frumkvöðlanna, þeirra nemenda sem fýrstifriðu á Vaðið og ákváðu að gera
Hraðbraut að sinni braut. (dag er verið að setja skólann í þriðja skiptið eins og fram kemur í upphafsorðum. Frískur
hópur kemur inn, nemendur sem ætla sér að halda áfram og sigra heiminn! Þeir sem hafa áhuga á að kynnast þessum
skóla sem er„tveimur árum á undan" eins og fram kemur í einum af slagorðum hans, er bent á að skoða heimasíðuna
www.hradbraut.is og skoða þar einnig kynningarbækling skólans.