blaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2005 ! blaðið
BAUGSMÁLIÐ
BlaÖiÖ/Gúndi
Þingfesting í Héraðsdómi Reykjavíkur:
< Jón Ásgeir Jóhanneson, forstjóri Baugs, gengur inn í Héraðsdóm, en á eftir honum
kemur verjandi hans, Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður.
A Þrír helstu sakborningarnir í Baugsmáiinu á göngum héraðsdóms, frá vinstri:
Jóhannes Jónsson (Bónus, Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, og Tryggvi Jónsson
fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs.
Barátta Baugsmanna hefst
Sakborningar lýstu alliryfir sakleysi sínu
,Hún er algjörlega röng og ég er
saklaus“, sagði Jón Ásgeir Jóhann-
esson, forstjóri Baugs, þegar Pétur
Guðgeirsson, héraðsdómari, spurði
hann um afstöðu hans til ákæru
hins opinbera á hendur honum í
dómssal Héraðsdóms Reykjavíkur í
gær. Með því má segja að dómsmál-
ið gegn Baugsmönnum hafi hafist
en gera má ráð fyrir að það standi
í tvö ár enn.
Það voru óvenju margir viðstaddir
I Flug og gisting í tvær nætur
| Verð á mann í tvíbýli á Maritim Hotel Frankfurt
1 18.-20. nóv., 20.-22. jan. og 3.-5. mars.
s Innifalið: Flug, gisting, morgunverður, flugvallarskattar og þjónustugjöld.
| Hafið samband við söluskrifstofur lcelandair eða við Fjarsölu lcelandair í síma 50 50 100
2 (svarað mánud. - föstud. kl. 9-17, laugard. kl. 9-17 og á sunnudögum kl. 10-16).
Nú geta handhafar Vildarkorts Visa og
lcelandair notað 10.000 Vildarpunkta
sem 5.500 Ur. greiðslu upp i fargjaldið.
út í he/m ICELANDAIR jSr
www.icelandair.is
þingfestingu Baugsmálsins í gær, fjöl-
miðlamenn - innlendir sem erlendir
- stóðu fyrir utan og innan aðaldyr
dómhússins en einnig var talsvert
um starfsmenn Baugs, aðstandend-
ur sakborninga og einnig nokkrir
fyrrverandi viðskiptafélagar þeirra.
Mesta athygli vakti sjálfsagt að Jón
Gerald Sullenberger kom snemma
til þings og sat á fremsta bekk þeirra
sem fylgdust með í dómsal.
Troðfullur dómssalur
Sakborningarnir komu gangandi
saman í hóp til þingfestingar en
vildu ekki svara neinum spurning-
um. Dómsalurinn rúmaði raunar
ekki svo marga sakborninga með
góðu móti og þurftu tveir þeirra
ásamt lögfræðingum sínum að taka
sæti í sal. Þá komu fulltrúar ákæru-
valdsins í hús og tóku sér sæti and-
spænis sakborningum.
Skömmu fyrir klukkan hálftvö
datt svo allt í dúnalogn og heyra
mátti saumnál detta í salnum sem
var þéttsetinn og stóðu sumir. Þá
lukust upp dyr og inn gekk Pétur
Guðgeirsson dómari sem setti rétt-
inn og gaf Jóni H. B. Snorrasyni sak-
sóknara orðið sem tók til við að reifa
ákæruna gegn Baugsmönnum. Þrátt
fyrir að hún sé mikil vöxtum, fór
hann hratt yfir sögu, en sjálfsagt fór
tyrfið lagamálið fyrir ofan garð og
neðan hjá flestum viðstöddum.
Sakborningar sallarólegir
Menn fylgdust með svipbrigðum
sakborninga á meðan lestrinum
stóð en á þeim var ekki mikinn
bilbug að finna. Jón Ásgeir Jóhann-
esson forstjóri Baugs brá ekki svip,
sýndi saksókn-
aranum hæfileg-
an áhuga en leit
öðru hverju yfir
salinn án þess
þó að horfast í
augu við nokk-
urn mann, allra
síst Jón Gerald Sullenberger, sem
ekki hafði augun af nafna sínum all-
an timann.
Jóhannes Jónsson í Bónus hvessti
aftur á móti sjónirnar á saksóknar-
ann á meðan lestrinum stóð, pírði
augun, mikilúðlegur að sjá. Oðru
hverju leit hann þó á úrið, líkt
og hans biðu mikilvægari erindi.
Meiri taugaveiklunar virtist gæta
hjá Tryggva Jónssyni, fyrrverandi
aðstoðarforstjóra Baugs, hann var
órólegur og annars hugar. Á hinn
bóginn var Stefán H. Hilmarsson,
fjármálastjóri Baugs, sallarólegur
og hristi hausinn þegar ákæruliðirn-
ir, sem snúa að honum, voru lesnir
upp. Stalla hans, Anna Þórðardóttir,
endurskoðandi hjá KPMG, virtist
ekki láta umstangið mikið á sig fá.
Þegar kom að svörum sakborn-
inga við ákærunum fóru þau að for-
dæmi Jóns Ásgeirs og lýstu sig sak-
laus hátt og snjallt.
Að því loknu
greindi Pétur
Guðgeirsson
dómari frá því að
hann hyggðist fá
tvo meðdómend-
ur til liðs við sig,
þá Arngrím ís-
berg héraðsdómara og Garðar Valdi-
marsson, hæstaréttarlögmann og
löggiltan endurskoðanda en hann
er jafnframt fyrrverandi skattrann-
sóknarstjóri. Lögmenn sakborninga
og saksóknari gerðu engar athuga-
semdir við það.
Þá tilkynnti dómari að málið yrði
næst tekið fyrir á sama stað, fimmtu-
dagsmorguninn 20. október kl. 9.15.
Reiknað er með að aðalmeðferð í
Baugsmálinu taki að minnsta kosti
mánuð.
Málflutningur hefst
affullum krafti
hinn 20. október
O Heiðskirt 0 Léttskýlað ^ Skýjað ^ Alskýjað // Rignlng, litilsháttar Rlanins S|M '-i'f Snjókoma Slydúa \JJ Snlóél
Skúr
Amsterdam 23
Barcelona 25
Berlín 24
Chicago 20
Frankfurt 25
Hamborg 22
Helsinki 19
Kaupmannahöfn 19
London 24
Madrid 29
Mallorka 29
Montreal 13
NewYork 22
Orlando 26
Osló 23
Paris 26
Stokkhólmur 20
Þórshöfn 13
Vín 23
Algarve 27
Dublin 18
Glasgow 15
9
///
///
///
11°
10°
Veðurhorfur í dag kl: 18.00
Veðursíminn Í02 0600
Byggt ó upplýsingum fró Veðurstofu íslands