blaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 16

blaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 16
16 I BÖRN OG UPPELDI FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2005 blaöið Vanrœkt böm i Tasiilaq 99. .Pabbi, börnin hérna horfa svo illilega á mig“, sagði ellefu ára gömul blíð- lynd íslensk stúlka við föður sinn þar sem þau voru á skákmóti í Tasiilaq. Daginn eftir var þessi sama stúlka komin í eltingaleik við grænlensku börnin sem henni hafði ekki sýnst sérlega vinaleg við fyrstu kynni. Það er engin sæla að vera barn í þessum 1700 manna bæ sem er sá stærsti á austurströnd Grænlands. Þar er hæsta sjálfsmorðstíðni barna á norðurhveli jarðar. Fjöldi barna í bæn- um hefur orðið fyrir kynferðislegri misnotkun og í þessum fámenna bæ eru tugir barna á munaðarleysingja- hælinu. Engin furða að það er engin hamingja í augum barnanna í Tasi- ilaq. Þau eru litlar daprar manneskj- ur en samt eins og önnur börn því þegar þeim er sýnd hlýja færist ljómi í augun. Charles Dickens skrifaði á sínum tíma um umkomulaus börn þannig að eftir var tekið en það skrif- ar enginn um þessi börn. Flestum virðist standa á sama um þau. Skóla- kerfið kemur þeim ekki til bjargar. Eitt barnanna sagði fslendingi að námið skilaði litlu því kennararnir væru of oft fúllir. Engin furða að það er engin hamingja í augum barnanna í Tasiilaq. Þau eru litlar daprar manneskjur. Vaknað við gól sleðahunda f Tasiilaq er veiðimannasamfélag. Þeir sem sjá bæinn úr fjarlægð koma auga á dýr í hlíðunum og halda jafnvel að þarna séu kind- ur. Þetta eru sleðahundar sem eru vandlega bundnir og góla mestallan sólarhringinn af sulti því þeir fá tak- markaða fæðu. Hvolparnir ganga hins vegar lausir enda stafar enn ekki hætta af þeim en grimmir sleða- hundar hafa orðið mannsbanar. Það er sérkennileg reynsla að gista í bæn- um og vakna klukkan sex að morgni við að sleðahundar góla tugum sam- an í kór og hafa úthald í þann söng fZ-l ' m ; ct-i. M,Ærfll *' ■' : f p| jr, > A ' . \ i k I klukkustundum saman. Tasiilaq er hrár og drungalegur bær. Húsin eru öll í eigu bæjarins. Þau eru lítil og flestöll eins. Þau eru sóðaleg að utan því íbúar losa sig við ruslið fyrir framan hús sín. Þar myndast stórir staflar sem eru losaðir á tveggja vikna fresti. Einhvern veginn hefur maður á til- finningunni að bæjarbúar eigi ekki neitt enda ber fas þeirra með sér að þá skorti sjálfsvirðingu og vonleysi skín úr augunum. Fullorðna fólkið er því ekki betur statt en börnin. Skákin gleður Bæjarbúar taka gestum vel, kalla jafnvel til þeirra vingjarnlegum orðum gangi þeir framhjá. fslend- ingar hafa ekki lagt leið sína til Tasiilaq í miklum mæli. Sennilega eru reglulegustu ferðirnar þær sem skákfélagið Hrókurinn hefur farið síðustu tvö árin. Þær hafa skilað miklu. Grænlensku börnin mæta á skákmótin og tefla af áhuga enda miklu vænlegri leið til árangurs í lífinu að læra að tefla skák frem- ur en að byrja níu ára að drekka brennivín. Óvist er hvort björt framtíð bíði þessara stúlkna í bæ þar sem er hæsta sjálfsmorðs- tíðni barna á norðurhveli jarðar. Manni finnst stundum að auð- jöfrar séu á hverju strái á íslandi. Einn þeirra er sagður hafa keypt sér þotu til þess að geta vaknað hjá barni sínu. Auðjöfrar mættu aílt eins íhuga að leggja andvirði þotu til uppbyggingastarfs í litlum bæ í Grænlandi. Með því væru þeir mjög sennilega að bjarga barnslífum. kolbrun@vbl.is RYMINGARSALA! í DAG, ÁMORGUN OG LAUGARDAG ALLl A TA 50 o c AFSLA'I’TUR

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.