blaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 6

blaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2005 blaAÍÖ Hrefnuveið- um lokið Búið er að veiða allar þær 39 hrefn- ur sem Hafrannsóknarstofnun heimilaði veiðar á þetta árið en síðasta hrefnan veiddist í gær. Alls hafa því verið veiddar 100 hrefnur frá því veiðar voru leyfðar á ný í ágúst árið 2003. Rannsóknarveið- ar eru því hálfnaðar því gert er ráð fyrir að veiða 200 hrefnur áður en þessu rannsóknarverkefni lýkur. Samkvæmt tilkynningu frá Haf- rannsóknarstofnun um málið voru þrír bátar leigðir til veiðanna að þessu sinni en þeir eru Njörður KÓ, Halldór Sigurðsson ÍS og Dröfn R.. Veiðar voru stundaðar allt í kring- um landið á tímabilinu 4. júlí til 17. ágúst 2005 og var þeim dreift í hlut- falli við útbreiðslu hrefnu hér við land að sumarlagi. Fjölþættar rannsóknir á hverri veiddri hrefnu „Sýnasöfnun og önnur gagnaöflun gekk vel þótt óhagstætt tíðarfar hafi tafið veiðarnar á tímabili. Dreifing hrefnu við landið virtist nokkuð frábrugðin því sem var í flugtalning- um í júlí á tímabilinu 1986-2001 og var lítið um hrefnu á sumum svæð- um þar sem hún er venjulega algeng á þessum árstíma", segir ennfremur í tilkynningunni. Markmiðið með rannsóknum á hrefnu er að afla upplýsinga um hvað hún étur hér við land en einnig eru gerðar fjöl- þættar aðrar rannsóknir á hverri veiddri hrefnu, t.d. á sviði erfða- fræði, heilsufræði, æxlunarlíffræði, orkubúskapar og lífeðlisfræði. ■ Frjálslyndiflokkurinn í Reykjavík Útilokar ekki samstarf við Sam fylkingu og Framsóknarflokk „Við höfum aldrei hafnað því að ræða §> við nokkurn mann um samstarf eða | samvinnu ef það gæti orðið okkur | og okkar málum til framdráttar." | Þetta segir Guðjón A. Kristjánsson, - formaður Frjálslynda flokksins um mögulegt samstarf við Samfylking- una og Framsóknarflokk í næstu borgarstjórnarkosningum. Hann tekur hinsvegar fram að engar við- ræður hafi farið fram milli flokk- anna um mögulegt samstarf. Aðspurður um hvort flokkarnir eigi mögulega samleið segir Guð- jón: „ Að mörgu leyti liggur það fyrir að frjálslyndir vilja standa fyrir félags- leg gildi og tryggja velferð borgara þessa lands. Við höfum gefið okkur Dæmi um að laun hafi lækk- að um rúmlega helming Dæmi eru um að laun einstakra starfsmanna í fiskimjölsverksmiðju HB Granda á Akranesi hafi lækk- að um tæplega helming milli ára. Ástæðan er að mun minna hefur ver- ið brætt í verksmiðjunni á þessu ári en í fyrra sem þýðir að vinna starfs- manna hefur dregist mikið saman milli ára. Vilhjálmur Birgisson, formaður verkalýðsfélags Akraness, hitti forráðamenn HB Granda í gær vegna þessa máls og annarra. „Við áttum ágætan fund með for- stjóra, starfsmannastjóra og fleirum. Þar var okkur tilkynnt að Víkingur AK 100 muni fara á síldveiðar í byrj- un október sem ætti að þýða meiri vinnu fyrir umrædda starfsmenn á næstunni", segir Vilhjálmur. Mun minni vinna Það er löng hefð fyrir því í fiskimjöls- verksmiðjum að settar eru á vaktir meðan hráefni er brætt. Við það fá starfsmenn vaktaálög sem og aðra bónusa sem, auk mikillar vinnu, hækka laun þeirra verulega frá því sem þau eru dags daglega. Á síðasta ári var brætt milli 140 og 150 daga ársins en í ár hefur sú tala dottið niður í um 40 sem skýrir lægri tekj- ur starfsmanna. Vegna þessa hafa fimm starfsmenn hætt störfum í verksmiðjunni og að sögn Vilhjálms hafa þeir sjö sem eftir eru íhugað slíkt sömuleiðis. Mun minna hefur verið unnið í fiskimjölsverksmiðju HB-granda á Akranesi í ár en í fyrra „Þetta eru sérhæfðir starfsmenn og það gengur ekki upp að fleiri hætti. Ég tel að forsvarsmenn fyrirtækis- ins geri sér grein fyrir að þeir verða að halda þessum mönnum“, segir Vilhjálmur. Hann segist nú vongóð- ur um að málin fari í betri farveg. gorenje ÍSSKÁPUR Verð kr. 69.900 Áður kr. 96.900 RONNING Borgarfúni 24 | Reykjavík | Sími: 562 4011 | Óseyri 2 | Akureyri | Sími: 460 0800 Dalvegi 32, Kópavogi. Sími 564-2480 Tilboðsdagar Lerki 490 kn Loðvíðir 250 kn Selja 550 kr. Dvergkvistur 399 kr. Myrtuvíðir 490 ki: Sitkagreni 750 kr. Blágreni 490 kr. Ilmreynir 950 ki: Hrúteyjavíðir 550 kr 20% afsláttur af öðrum plöntum Betri plöntur á góðu verði -Tilboð alla daga út fyrir að standa vörð um félagsleg gildi eldri borgara, sjúkra, fatlaðra og fleiri hópa. Frjálslyndi flokkur- inn í borgarstjórn hefur haft sömu áherslur auk þess að leggja áherslu á ýmis mál svo sem verndun húsa og fleira. Mér finnst því sem að sumu leyti gætum við alveg átt samleið með þeim sem hafa verið við völd í Reykjavík undanfarin ár, þó ég taki sérstaklega fram að það sé algerlega órætt mál innan flokksins.“ ■ Svo gæti farið að Frjálslyndi flokkurinn komi í stað fyrir Vinstri Græna og fari ísamstarf við Samfylkinguna og Framsóknarflokkinn fyrir næstu borgarstjórnarkosningar íbúðaverð hækkar áfram Verð á íbúðarhúsnæði á höfuð- borgarsvæðinu hækkaði um tæplega 2% í júlí. í Morgun- korni Islandsbanka er því spáð að verð muni halda áfram að hækka. Því er ennfremur spáð að fermetraverð á höfuðborgar- svæðinu muni að meðaltali fara yfir 200 þúsund krónur á fýrri hluta næsta árs en það stendur í um 196 þúsund krónum um þessar mundir. Bent er á að þró- un íbúðaverðs hafi verið ólíkt eftir því hvort um hafi verið að ræða sérbýli eða fjölbýli. Verð á sérbýli lækkaði litilsháttar í síðasta mánuði og er sagt að það sé nú komið í jafnvægi og því ekki von á mikhim hækkun- um. Því er að hinsvegar spáð að verð á eignum í fjölbýli muni hækka það sem eftir er árs þó ólíklegt sé að verð muni hækka að einhverju verulegu ráði. íslensk erfðagreining: 300 milljónir í nikótínfíkn Bandaríska heilbrigðisstofnun- in hefur veitt Islenskri erfða- greiningu 4,6 milljóna dollara (tæpar 300 milljónir króna) styrk til þess að leita breyti- leika í erfðamengi mannsins sem veldur því að ákveðnum einstaldingum er hættara við að verða háðir nikótíni. Sam- kvæmt samningnum, sem er til fjögurra ára, mun íslensk erfðagreining standa fyrir umfangsmiklum erfðarann- sóknum á nikótfnfíkn á íslandi, auk samanburðarrannsókna í öðrum löndum Evrópu og í Bandaríkjunum. Markmið rann- sóknarinnar er að einangra erfðavísa sem tengjast líffræði- legum orsökum nikótínfíknar. Guimundur F. Kristjónsson GSM: 824 2278 gfk@remax.is NUNA ER RETTI Hvers virði er eignín bín?

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.