blaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 14

blaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 14
4 blaði Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Karl Garðarsson. ÁRÓÐURSSTRÍÐ í HÁMARKI ^Jjakað hefur verið forvitnilegt fyrir margra hluta sakir að fylgjast með KJPáróðursstríðinu í kringum Baugsmálið og þá fyrst og fremst hjá fli sakbomingum. Jón Ásgeir Jóhannesson ákvað að fara þá leið að handvelja þá fjölmiðla og helst fjölmiðlamenn sem fjölluðu um hans mál. Þannig var breskt blað með vinveittan blaðamann valið og síðan birtist kurteisislegt viðtal við hann í Fréttablaðinu. Loks var Kastljósið valið í fyrra- kvöld og enn bíðum við eftir að Morgunblaðið birti viðtal Agnesar Braga- dóttur við Jón Ásgeir en tíminn er afstæður hjá því ágæta blaði og því hefur viðtalið ekki birst enn þegar þetta er skrifað. Það er ekki gott að vinna á útvarpsstöð ef óskað er efdr viðtali við Jón Ásgeir og væntanlega veit hann ekki enn að Blaðið er til. Þetta er allt gott og blessað. Jón má auðvitað tala við þá sem hann vill. Frammistaða Jóns Ásgeirs í ofangreindum viðtölum hefur verið nokkuð góð - best þó í Kastljósinu þar sem hann þurfti að svara hvað ágengustu spurningunum. Honum tókst að svara öllum spurningunum - menn geta deilt um svörin - en á flesta virkaði hann trúverðugur og samkvæmur sjálf- um sér. Þar hefúr hann fengið mörg atkvæði hjá þeim sem voru í vafa. Slíkt er auðvitað gott fyrir forstjóra Baugs og það sem hann stendur fyrir. Blaðmannafundurinn sem boðað var til í gærmorgun var hms vegar ekki eins sterkur út á við. f hvert sinn sem íslenskir auðmenn hafa lent í málaferl- um hafa þeir leitað til erlendra „sérffæðinga“ sem hvítþvo umbjóðendur sína undantekningalaust í skýrslum sínum. íslenskt réttarfar virðist heldur ekkert vefjast fyrir þessum sérfræðingum sem þekkja það greinilega betur en íslenskir koÚegar þeirra. Þegar öll kurl eru komin til grafar skipa þessar almanntengslasýningar engu máli. Þær geta haft áhrif tímabundið - en endanlegur dómur verður kveðinn upp í réttarsal, ekki á blaðamannafúndum eða í fjölmiðlum. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur, Aóalsími: 510 3700. Símbréf á f réttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: Islandspóstur. » Kíktu á taeknival.is og taktu þátt í TOSHIBA- týpuleiknum og þú gætir unnið fartölvu. Tæknival Ég vil aö tölva sé ekki bara tæki sem nýtist mér í skólanum. Fyrir utan allt þetta hetöbundna þá get ég einnig horft á DVD myndir á WideScreen skjá, tekið bæði Ijósmyndir og videóskrár beint inn á minniskortalesarann í tölvunni og brennt þetta svo á geisladisk. Þetta er flott vél á góðu verði. Verð: 89.700 kr. TM tölvukaupalán 100% lán til allt að 36 /^jtfNmánaða á 9,5% vöxtum. Einnig býðst fartölvutrygging fyrir lántakendur. Kaupauki: Fartölvubakpoki, mús og MS OneNote fylgir öllum Toshiba tölvum. 14 I ÁLIT FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2006 I blaðið — Verður dóttir mín 70% manneskja? Fyrir 20 árum skrifaði „The Wall Street Journal" fyrst um glerþakið á milli kvenna og stjórnunarstarfa. Greinin markaði mikil þáttaskil þar sem þetta var með- al fyrstu skipta þar sem svo sterkur miðill fjallaði um málið frá sjónarmiðum kvenna. Hugtakið um glerþakið varð al- mennt eftir greinina og þótti lýsa vel þeim ósýnilegu hindrunum sem konur mættu í viðskiptalífinu. Árið 1995 var svo mynduð the Glass Cei- ling Commision, með það í huga að leita lausna og auka hlut kvenna í stjórnunarstörfum. Júlí hefti „The Economist" er að miklu leyti tileink- að konum í stjórnunarstörfum og glerþakinu. The Economist kemst þó að þeirri niðurstöðu að þær fram- farir sem við státum okkur af séu einfaldlega ekki nóg. Konur eru enn í miklum minni- hluta í stjórnunarstörfum og konur eru enn ekki metnar að verðleikum, því laun kvenna á æðstu stöðum eru aðeins um 70% af launum karla. Þess má einnig geta að samkvæmt lista Forbes um 25 hæst launuðu for- stjóra Evrópu er ekki eina konu að finna. Glerþakið, jafnvel þótt það sé ósjáanlegt, er raunverulegt. Hér er um raunverulegt vandamál að ræða. Lausnin er félagslegt átak okkar allra. Við verðum að vera til- búin að berjast gegn svo augljósu 99.......................... Ég sem hugsanlegur faðir í framtíðinni læt jafnréttismál mig varða. Jafnrétti er ekki kvennamál - jafnrétti kemur okkur öllum við. misrétti. í eðli sínu er jafnréttisbar- áttan öfgakennd, misrétti á sér oft djúpar rætur í sögu okkar. Margir „jafnréttissinnar“ tóku andköf yfir því að konur fengju að kjósa, sama má segja um konur á vinnumarkaði eða heimavinnandi feður (fólk tekur reyndar enn andköf yfir því). Göm- lu kynjahlutverkin eru partur af okk- ar sögu, mikilvægt er að endurskrifa ekki söguna. En engin menning get- ur afsakað misrétti vegna kyns, trú- i ar, skoðana eða kynhneigðar. Sama hversu djúpar rætur búa að baki misréttis er það ekki partur af okk- ar menningu, heldur sögu. íslendingasögur eru stútfullar af sterkum kvenímyndum og ég vona að sögur okkar tíma beri með sér aðr- ar kvenímyndir en hamingjusömu hóruna. 1 framtíðinni þegar ég tek við að ala upp mín börn mun ég ekki sætta mig við þá 70% framtíðarsýn sem býður konum í dag. Dóttir mín skal hafa öll þau tækifæri sem sonur minn mun væntanlega hafa. Ég sem hugsanlegur faðir í framtíðinni læt jafnréttismál mig varða. Jafnrétti er ekki kvennamál - jafnrétti kemur okkur öllum við. Það þýðir ekki fyrir karlmenn, né konur, að taka ekki þátt í jafnréttis- baráttunni. Jafnrétti kynjanna verð- ur kvennamál eingöngu ef við karl- menn leyfum það. Eingöngu með því að taka virka afstöðu og með þáttöku getum við tryggt dætrum okkar, systrum, mæðrum og vinum jöfn réttindi. Atli Þór Fanndal - www.politik.is Atli Þór Fanndal ímynd stjórnmálamanna ímynd er sálfræði- legt hugtak sem notað er til að lýsa hugmyndum fólks um aðra einstak- linga ásamt við- horfum til þeirra. Við fyrstu kynni Guðbrlnd'Xi, okkar af öðrum ................. verða til hugmynd- ir um einstaklinginn sem hafa iðu- lega áhrif á seinni tíma samskipti. ímynd getur einnig átt við um hug- myndir fólks um fyrirtæki, hags- munasamtök, félög og fleiri aðila. Imynd manna samanstendur af mörgum þáttum og að sama skapi er margt sem haft getur áhrif á ímynd. Slíkir þættir eru t.d útlit, skapgerð, framkoma og klæðaburður viðkom- andi einstaklings. Rannsóknir hafa t.d sýnt að mismunandi framsetn- ingar á sömu manneskjunni eins og breytingar á andlitsmyndum geta leitt til mismunandi ímyndar viðkomandi. Útlit fólks getur því haft mikil áhrif á ímynd þeirra. Stjórnmálamenn er hópur sem bygg- ir starf sitt og frama að miklu leyti á ímynd. Það hefur sýnt sig að kjós- endur sem hafa hvorki þekkingu né áhuga á því málefni sem um ræðir nota iðulega vísbendingar, t.d. útlit til að leiðbeina sér við mat á stjórn- málamönnum. Það getur því verið sérstaklega mikilvægt fyrir stjórn- málamenn að þekkja ímynd sína, kosti hennar og galla, þegar að kosn- ingum kemur. Ef neikvæðar hliðar ímyndar eru þekktar er mögulegt að bregðast við og reyna að breyta þeim eða draga úr. Að sama skapi er hægt að leggja meiri áherslu á jákvæða þætti ímyndarinnar. Með þessu móti geta stjórnmálamenn, ásamt öðrum, átt möguleika á að ná betri árangri og meiri frama í starfi. Rannsóknir hafa sýnt að útlit og lík- amlegt atgervi stjórnmálamanna hefur áhrif á kjósendur þrátt fyrir að upplýsingar um persónuleika Þetta virðist eiga sér- staklega við um konur og hafa rannsóknir sýnt að fallegar konur eru betur metnar ef þær eru klæddar á frjálslegan háttheldur en efþær eru fínar. viðkomandi stjórnmálamanns eða málefnalegar áherslur lægju fyrir. Hins vegar getur of mikil áhersla á útlit verið tvíeggjað sverð. Mjög mikil fegurð getur þannig vakið upp mótstöðu þegar koma á upplýs- ingum á framfæri. Þetta virðist eiga sérstaklega við um konur og hafa rannsóknir sýnt að fallegar konur eru betur metnar ef þær eru klædd- ar á frjálslegan hátt heldur en ef þær eru fínar. Hins vegar sýna sömu rannsóknir að karlar séu metnir á jákvæðari hátt eftir því sem þeir eru myndarlegri og betur klæddir. ímynd manna byggir þó ekki ein- göngu á útliti eins og áður hefur komið fram. Trúverðugleiki manna skiptir einnig miklu máli en trú- verðugir flytjendur eru taldir búa yfir sérfræðiþekkingu á málefninu sem um ræðir, þeim er treystandi, þeir eru álitnir búa yfir góðvilja, krafti og ró og eru taldir félagslynd- ir og úthverfir. Stjórnmálamenn þurfa því ekki aðeins að huga að útliti sínu og klæðaburði heldur jafn- framt framkomu og skapgerð sinni. Ross Perot er þekkt dæmi um mann sem kunni að nýta sér jákvæðar hlið- ar ímyndar sinnar. Perot bauð sig fram til forseta Bandaríkjanna í lok síðustu aldar. Perot varþekktur millj- arðamæringur og kaupsýslumaður en hafði lítið fengist við stjórnmál fram til þessa. Hann var hins vegar vel þekktur fyrir heiðarleika sinn og var vinsæll meðal almennings þrátt fyrir að það hafi ekki nægt honum til að tryggja meirihluta atkvæða. Sveita- og bæjarstjórnarkosningar eru á næsta leiti og alþingiskosning- ar eftir tæp tvö ár. Margir gætu talið það nægan tíma til að byggja upp öfl- uga ímynd en hlutirnir gerast hratt í heimi stjórnmálanna. Fyrir þá stjórnmálamenn sem telja sig geta bætt ímynd sína (sem eru líklega flestir) er því nauðsynlegt að hafa hraðar hendur. Ingunn Guðbrrandsdóttir, ráðgjafi hjá KOM almannatengslum - www.deiglan.is Tenerife Loksins fyrir íslendinga www.sumarferdir.is 575 1515»-BÓKAÐU ALL6N SÓLARHRINGINN 3 r\r n'drir re r , ALLTAf rii Arétrjverði

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.