blaðið

Ulloq

blaðið - 18.08.2005, Qupperneq 22

blaðið - 18.08.2005, Qupperneq 22
22 I MATUR FIMMTUDAGUR 18. ÁGÖST 2005 blaöið ... 'Á - ' - -ifi Vín úr Cabernet Sauvignon þrúgum eiga það til að vera töluvert ákveðin svo þetta vín er ánægjulega flauelismjúk undantekning. Vínið er með góðu sólberjabragði sem þróast yfir í bragð af dekkri berjum og endar í súkkulaðikeim. Vínið er fallega rautt að lit. Þetta vín er eitt það besta sem hægt er að hugsa sér með grill- mat. Það kallar á létta matargerð og hentar sérlega vel með lamba-, grísa og kálfakjöti. Til að fullkomna máltíðina er gott að hafa smá sætu með matnum, til dæmis sultu eða sykurbrúmaðar kartöflur 'Hafes'' ’ '■ “ Pað er ein aðferð við að elda fisk sem er hrein snilld og býð- ur upp á ótrúlega fjölbreytni, en það er að elda hann í svokölluðu „umslagi." Að elda í umslagi er þeg- ar smjörpappír er lagður ofan á ál- pappír og maturinn er settur ofan á. Síðan er þetta brotið saman eins og umslag og lokað vel fyrir alla enda svo að hvorki gufan né soðið sem myndast inn í komist út. Þá er þetta eldað inni í ofni eða á grillinu. Þetta er náttúrulega algjörlega magnað til að taka með sér í bústaðinn, þá er bara hægt að undirbúa þetta heima og svo hent á grillið með engri fyrir- höfn. Það sem er best að gera er að steikja á pönnu allskyns grænmeti svo sem lauk, gulrætur, papriku eða hvað sem er og það kryddað til og sett á pappírinn. Síðan er fiskbiti settur ofan á og síðan má fara að leika sér með bragðefnið og nota til dæmis fint saxað engifer, hvítlauk, karrý, sítrónusafa, hvítvín, ferskar kryddjurtir eða osta. Möguleikarnir eru endalausir. En til að fá góða sósu sem myndast þarna inn í er nauð- synlegt að setja smjörklípu eða góða ólífuolíu með og svo er bara að loka vel fyrir og muna að snúa vel upp á endana svo ekkert komist út. Sítrusbakaður þorskur í „umslagi" með grænmetis- strimlum og basil (fyrir 4) Aðferð Skerið allt grænmetið í fína strimla og steikið á pönnu í smá olíu þar til það er orðið mjúkt. Þá er þessu skipt í fjögur umslög (eitt á mann). Skiptið fiskinum í fjóra skammta og kryddið með salti og pipar og leggið ofan á grænmetið. Þá er rest- inni af hráefninu skipt á milli allra umslaga. Svo er lokað fyrir og sett á heitt grillið og eldað í ca 5 mínút- ur og síðan látið standa í 5 mínútur áður en umslagið er opnað. Borið fram með kartöflum, salati eða hrís- grjónum. Gangi ykkur vel Kveðja Raggi 800 9 þorskflök (roö-ogbeinlaus) 60 g blaðlaukur 60 g gulrætur 60 g paprika 60 g baunaspírur 60 g kúrbítur 16 stk steinlaus vínber safi úr hálfri appelsínu safi úr einu lime 4 tsk smjör hnefafylli af ferskum basil- blöðum 4 tsk ólífuolía salt og pipar Vín frá Búrgund í Frakklandi Bestu Búrgund vínin eru ekki framleidd í miklu magni enda er megnið af vínunum framleitt af smábændum og eftir- spurn er því mikil. Hver og einn framleiðir lítið og selur því fram- leiðsluna einhverju hinna stóru útflutningsfyrirtækja sem blanda saman vínum frá mörgum smáum vínbændum í samræmi við óskir viðskiptavinanna. Þess vegna er mjög mikilvægt að þekkja útflutn- ingsfyrirtækin því það eru þau sem eru ábyrg fyrir gæðunum. Það er því ekki eins og í Bordeaux þar sem herragarðsnafn er trygging fyrir gæðum vínsins. Flokkun Búrgund vína 1 Búrgund eru vínin nefnd eftir héraðinu sem þau eru framleidd í, til dæmis Pommard, Beune, Merc- urey, Santenay, Moulin a vent, Pou- illy-Fuissé, Volnay, Chablis og fleiri. Vínin eru ekki flokkuð á sama hátt og í Bordeaux, þau bestu eru nefnd „Grand Cru“ sem táknar að um er að ræða bestu vínin, hvít eða rauð frá ákveðnum víngarði. Öll héruð í Búrgund nota annað hvort Pinot Noir eða Gamay (Beauj- olais) vínþrúgur í rauðvín og Chard- onnay í hvítvín. Hins vegar eru til héruð sem nota aðrar hvítvínsþrúg- ur en Chardonnay, til dæmis Sau- vignon Blanc en notkunin er lítil og vínin eru ekki þekkt hér á landi. Þó mörgum finnist Búrgund vín tals- vert léttari en vín frá Bordeaux þá geta bestu vínin frá Búrgund þrosk- ast í allt að 30 ár. Á næstu vikum verður fjallað meira og ítarlegar um helstu Búrgund vínsvæðin; Chablis, Cote d'Nuits, Cote d'Beaune, Ma- connais, Chalonnais, Beaujölais og eiginleikar þeirra skoðaðir. WWW.SMAKKARINN.IS

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.