blaðið - 01.09.2005, Side 12
12 I INNLENDAR FRÉTTZR
FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2005 blaðiö
námskeið
úmSWORHÚSIB
Chirac vitt úrbœtur
i húsnœðismálum
Torfærukeppni fjarstýrðra bíla verður haldin 4.september
á athafnasvæði Gæðamoldar í Gufunesi. Keppt verður í
MonsterTruck,Stadium og Buggy flokkum. Skráning er á
heimasíðu Smábílaklúbbs fslands www.sbki.is.
Jacques Chirac, forseti Frakklands,
vill að fleiri félagslegar íbúðir verði
byggðar og að íbúðarhúsnæði í nið-
urníslu verði gerð upp. Yfirlýsing
forsetans kemur í kjölfar þriggja
eldsvoða á undanförnum mánuðum
þar sem 48 manns létu lífið, einkum
innflytjendur frá Afríku. „Við verð-
um að bregðast við þeim aðstæð-
um sem við stöndum frammi fyrir.
Það er afar brýnt að tryggja öryggi
þess fólks sem býr í varhugaverðu
húsnæði“, sagði Jacques Chirac en
frönsk stjórnvöld hafa legið undir
ámæli vegna lélegs aðbúnaðar inn-
flytjenda, ekki síst í París.
Slökkviliðsmenn Parísarborgar berjast við eld í fjölbýlishúsi á mánudagskvöld.
Þátttakendur í hinni árlegu Tomatina-hátíð í spænska bænum Bunol máluðu bæinn rauðan í orðsins fyllstu merkingu í gær. Um 100
tonnum af tómötum var sturtað á göturnar og upphófst síðan heilmikill slagur sem endaði með því að fólk og byggingar voru löðrandi
í tómatamauki.
íbúar New Orleans hvattir
til að ytirgefa borgina
Kathleen Blanco, ríkisstjóri Lousi-
ana, hefur lýst því yfir að íbúar
New Orleans verði að yfirgefa borg-
ina í kjölfar flóða eftir fellibylinn
Katrínu sem reið yfir suðurströnd
Bandaríkjanna. „Við munum flytja
þá á bátum, með þyrlum eða á hvern
þann hátt sem mögulegur er“, segir
Blanco. Unnið hefur verið að við-
gerðum á flóðavarnagörðum en þar
sem ástandið er tvísýnt kemur ekki
annað til greina en að yfirgefa borg-
ina að mati ríkisstjórans.
Bandaríska varnarmálaráðuneyt-
ið hleypti af stokkunum einhverjum
mestu björgunaraðgerðum í sögu
þjóðarinnar í kjölfar hamfaranna.
Fjögur herskip hafa verið send á
svæðið með drykkjarvatn og neyð-
arbúnað, auk sjúkraskips, þyrla og
björgunarsveita.
Nú þegar hafa að minnsta kosti
110 manns látist í Mississippi afvöld-
um fellibylsins. Tala látinna í Lou-
isiana liggur ekki fyrir enda hefur
megináhersla verið lögð á að bjarga
þeim sem lifðu af. Samkvæmt upp-
lýsingum Rauða krossins dvelja um
40.000 manns í 200 skýlum á svæð-
inu eftir hamfarirnar sem eru einar
þær mestu sem þjóðin hefur gengið
í gegnum.
Fólk sem bjargað var af þaki fjölbýlishúss í New Orleans dregur andann léttar eftir að
hafa verið bjargað um borð í þyrlu bandarísku landgæslunnar.
Kynnmgarkvöld
Hver er tilgangur lífsins?
Hvað gerist þegar ég dey?
ErJesús Guð sjálfur?
Hvernig varð Biblían til?
Er Biblían OrðGuðs?
rt velkomin/nn á kynningarkvöld
. sepf. kl. 19:00 í Krossinum Hlíðasr
g á námskeiðið eða frekari upplýsingar eru í síma 694-41;
KROSSINN
Blandið saman allt að 3 réttum úr hitaborði
Tílboðin gilda ekki meö heimsendingu
Sóltún 3 S 562 9060 Bæjarlind 14-16 S 564 6111
® & * W
" —7——^>